Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Page 10

Hugur og hönd - 01.06.1994, Page 10
A llt jram á síðustn áratugi á—S var fatnaður af skornum jL JLskammti á flestum ís- lenskum heimilnm og var ofi mik- il vinna lögð í að halda honum vel við. Mikið kapp var lagt á að hafa betri eða spariflíkur með besta móti og þegar þær voru orðn- ar snjáðar og lúnar var þeim slitið út hversdags. Hversdagsfót, ígangs- fót, voru yfirleitt fábreytt og fram undir fyrri heimsstyrjöldina voru þau víða öll heimaunnin og fólk sleit fötum sínum út, allt að síð- asta þmði, ef svo má segja. Yngri systkini voru látin taka við fatn- aði af eldri systkinum, eða hann var gefinn öðrum. Nýtni og nœgjusemi var lífsnauðsyn. Allt var reynt að nota til hins ítrasta, sauma upp úr, venda, nota í fóður, bœtur og síðast í rýjur eða svokall- aðar borðtuskur. Þetta var svo rót- gróinn hugsunarháttur í íslensku þjóðlífi fram yfiir miðja þessa öld að enn eiga margir erfitt með að henda nokkrum hlut. Svanfríður Jónasdóttir, er lengi var vinnukona áýmsum betium í Bárðardal, í hversdags- fótum sínum áriðl897. Hún hefurfest úrkeðjuna í hnappagat á dagtreyjunni og stungið úrinu undir svuntustrenginn. Ljósm. Daniel Bruun. DAGTREYJUR, SKAKKAR OG SMOKKAR Algengt var að venda notuðum föt- um úr slitsterkum efnum. En hvað felst í því að venda flík? Þegar flík var vent, var henni sprett í sundur af mikilli kostgæfni og slitnu hlið efnisins sem þjónað hafði sem rétta, „vent“ yfir á rönguna, þannig að óslitin rangan varð að réttu og flíkin saumuð þannig saman aftur. Það sama var oft gert er saumað var upp úr gömlum flíkum, þá var þeim „vent“ um leið og sniðin var ný flík. Þetta höfðu konur sjálfsagt gert öldum saman en kynslóð móður minnar (fædd 1917) var sjálfsagt sú síðasta sem þurfti að venda og sauma upp úr fötum tii að geta klætt börnin sín. Þegar flíkur voru sniðnar var öilum afgöngum af efninu „haldið vel til haga“ svo hægt væri að bæta eða stykkja flíkina ef siitgöt komu á hana. Ekki var spurt um hve lengi væri verið að gera við, bæta og staga, heldur hversu vel það var unnið. Eðiiiegt var talið að eyða drjúgum tíma í viðhald á fatnaði sem fólk átti árum ef ekki áratugum saman og flestir voru vel meðvitaðir um hve langan tíma tók að „koma ull í fat“. Viðgerðarprufur sem unnar voru í kvenna- og húsmæðraskólum landsins á þessari öld eru líklega meðal síðustu „minnisvarða“ um þessa fyrrum nauð- synlegu kunnáttu. Viðgerðir á fatnaði eru eitthvað sem á nokkrum áratugum er orðið svo fjarlægt fyrirbæri að varla sést viðgerð flík, nema helst á barna- og vinnufatnaði. Viðgerðir og viðhald á íslenskum fatnaði fyrri tíma er tvímælalaust verð- ugt skoðunarefni, sem endurspeglar margt um lífskjör almennings, ótrúlega fátækt, elju, þolinmæði, vandvirkni og ekki síst útsjónarsemi. En hvernig voru íslenskar hversdags- flíkur og hvaða nöfnum voru þær nefndar? Um það mætti skrifa margar bækur en þessi grein fjallar aðeins um eina slíka flík, dagtreyjuna. Hana not- uðu margar íslenskar konur hversdags með síðu og víðu pilsi, allt fram á þriðja tug 20. aldar. Ég hef orðið vör við að margir þekkja orðið dagtreyja en fáir vita um hvers konar treyju er að ræða. Mig langar því að reyna að bæta eilítið hér úr. f því 10

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.