Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Síða 12

Hugur og hönd - 01.06.1994, Síða 12
Dagtreyja, Þjms. nr. 1964:63. Ljósm. Myndastofa Þjóðminjasajhs Islands. innar erlendis. Ekki síst var líklega vinnusparnaður í að sauma treyjur, frekar en að prjóna þær úr fíngerðu garni. Tilkoma saumavéla á næstu ára- tugum ýtti einnig undir þessa þróun. I íslenskum nútímabókmenntum er stundum talað um konur í dagtreyjum. Þeim er samt sjaldnast lýst frekar en öðrum hversdagsfatnaði, enda ekki vani að fjalla mikið um venjulega hluti, sem „allir þekktu“. Rithöfundarnir Þórberg- ur Þórðarson, Guðmundur G. Hagalín og Halldór Laxness hljóta að hafa þekkt dagtreyjur því að þeir nefna þær iðulega í bókum sínum. I æviminningum frá seinni hluta 19. aldar er einnig stund- um minnst á dagtreyjur. I „Sjálfstætt fólk“ lýsir Laxness t.d. klæðnaði Rósu, konu Bjarts í Sumar- húsum og segir m.a.: „Hann hafði gefið henni rósóttan búðarkjól sem var ágæt- ur í þurki, en hún vildi þá alltaf vera í gömlum strigakjól sem hún hafði notað við mjaltirnar á Rauðsmýri, eða snjáðu ullarpilsi og stagbættri dagtreyju, og það var einhver ólíðan í henni allri,...“ Seinna í bókinni fáum við lýsingu á klæðnaði Finnu gömlu: „... Finna kom frammí loftið og háttaði sig. Hann heyrði hana hneppa frá sér treyjunni og stíga úr pilsinu. Hún smeygði þraungri klukkunni frammyfir höfuð sér með dálitlum erfiðismunum. Síðan fór hún uppí rúmið við hlið barnsins og klæddi sig úr afgánginum af spjörunum undir sænginni. Hann heyrði hana enn hneppa frá sér tveim þrem tölum, og stimpast við að fara úr nærklæðunum milli rekkjuvoðanna. Svo lagðist hún útaf og strauk sig dálítið hér og hvar undir sænginni“. Þegar Þórbergur Þórðarson lýsir lifn- aðarháttum í Reykjavík á síðara helm- ingi 19. aldar (Frásagnir, Mál og menn- ing, Rv. 1983) segir hann m.a: „Hversdagsklæðnaður kvenna var sirztreyja, lífstykki, nærskyrta úr lérefti, svart vaðmálspils, röndótt millipils, venjulega úr tvisti, nærbuxur, sirz- svunta, svartir ullarsokkar, spjaldofin sokkabönd, bryddaðir sauðskinnsskór og skotthúfa. Sumt kvenfólk gekk einnig í prjónakoti sem náði niður á mitt læri...Algengt var að hafa prjón- aða þríhyrnu á herðum og klút á höfði, hnýttan undir kverk og hornið látið lafa niður á herðarnar“ (bls. 106-107). Myndefni af dagtreyjum er frekar fá- tæklegt, því hversdagsfatnaður var ekki myndefni. Finna má samt myndir, ef vel er að gáð, er sýna vinnandi konur í dagtreyjum. Besta myndin sem ég man eftir er þekkt mynd sem Daniel Bruun tók af mjaltastúlku. Hún mun vera tek- in árið 1897 og er af Svanfríði Jónas- dóttur í Bárðardal. Myndin prýðir kápu íslensku útgáfunnar á verki Bruuns, „Is- lenskt þjóðlíf í þúsund ár“, sem bókaút- gáfan Orn og Orlygur gaf út í þýðingu Steindórs Steindórssonar árið 1987. Dagtreyjur má sjá á fleiri myndum Bruuns og einnig á myndum Sigfúsar Eymundssonar ljósmyndara, svo nokk- uð sé nefnt. En nákvæmar heimildir um dagtreyj- ur er næstum einungis að finna í þeim treyjum sem varðveist hafa á söfnum, úr svörum við spurningaskrám Þjóð- háttadeildar Þjóðminjasafnsins og hjá einstaka eldra fólki. Aður en ég lýsi dagtreyjum í eigu Þjóðminjasafnsins ætla ég að draga fram lýsingar á þeim og öðrum tilheyr- andi hversdagsfatnaði kvenna úr svör- »131 við spurningaskrám Þjóðháttadeild- arinnar. ítarlegustu lýsingarnar fann ég í spurningaskrá nr. 24, þar sem spurst var íyrir um heyannir. I svörum konu úr Kópavogi, sem fæddist 1893, er m.a að fmna efdrfar- andi: „Ég man það frá mínum barnsárum að konur klæddust yst fata í svokallaðar dagtreyjur, pils sem voru lík í sniðinu og peysufatapils, þá mittissvuntu og þríhyrnu. Treyjurnar voru oftast úr vað- máli. Það er að segja ígangstreyjur (er notaðar voru hversdags) en stundum líka úr útlendu efni, ef svo stóð á að var verið að slíta þeim út. Þá var ekki siður að henda flíkinni íyrr en hún var útbætt og stöguð. Þessar treyjur voru sniðnar þannig að þær voru alveg sléttar með axla- og hliðarsaumum, púff á öxlum (á ermum), frammjóum sléttum ermum og brjóstsaumum, náðu ofan í pils- strenginn“. Og kona frá Stokkseyri, fædd 1904, segir m.a. um heyvinnuföt: „Venjulega var fólk í sömu fötum við heyvinnu í góðu veðri, sem það gekk í daglega heimafyrir. Konur voru í dag- treyju sem kallað var. Hún var venju- lega úr sirsi, rósóttu eða dropóttu, fóðruð, aðskorin, hneppt að framan, kragalaus með löngum ermum, síddin aðeins niður íyrir mittið, gyrt ofan í pilsið. Pilsið var úr einskeftu eða vað- máli, dökkleitt, oftast einlitt, fellt undir strenginn og náði niður á mjóalegg. Svo var svunta úr tvisti, rykkt eða felld und- ir stálið. Stundum voru þær í óvönduðu pilsi utan yfir sem nefndist kastpils og voru fullorðnar konur oft í kastpilsi úr pokastriga. A herðunum höfðu þær prjónaða þríhyrnu kögraða, sem var lögð á misvíxl á brjóstinu og bundin afturfyrir um mittið. Skýluklút úr sirsi höfðu þær á höfðinu. Sokkarnir sem konur voru í voru úr ull, oft úr togi ef þær þurftu að vaða. Skórnir voru ann- aðhvort úr kindarskinni eða stórgripa- skinni. I rigningu eða köldu veðri voru þær í rigningarúlpum, sem nefndar voru, þær voru úr vaðmáli eða ein- skeftu, einhnepptar upp í háls og náðu niður á mjaðmir. Rónir sjóvettlingar voru mikið notaðir sem hrífuvettlingar. Við bindingu voru notaðir hanskar úr ullarbandi, sem voru með þremur þumlum sem náðu fram á miðja fmgur og voru opnir framúr. Einn þumallinn var fyrir þumalfmgur, svo voru tveir fingur í hvorum hinna....... Ef heyjað var á votengi fór fólk oft úr sokkunum þegar hlýtt var í veðri, og brettu þá karlmenn upp buxurnar eða bundu þær upp, en konur styttu upp pilsin“. Að síðustu eru skilmerkileg svör karl- 12

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.