Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 28
Móttökunefndin sem var kjörin til aS taka á móti Halldóru Bjarnadóttur og greiða götu bennar vestan hafs. Halldóra situr
fyrir miðju ífremri röð. Myndin var tekin í Winnipeg i maí 1938.
FERÐ HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
TIL VESTURHEIMS 1937-1938
Það er af mörgu að taka þegar sagt er
frá lífsstarfi Halldóru Bjarnadóttur, sem
var brautryðjandi á mörgum sviðum ís-
lensks þjóðlífs. I þessari grein ætla ég
aðeins að rekja eitt dæmi af þeim verk-
efnum, sem Halldóra tókst á hendur í
þágu heimilisiðnaðarins.
Ferð Halldóru Bjarnadóttur um Is-
lendingabyggðir í Bandaríkjunum og
Kanada árin 1937-38 er lítt þekkt á fs-
landi, en gefur góða mynd af konunni
og starfi hennar. Ferðin var farin í þeim
megintilgangi að kynna íslenskan heim-
ilisiðnað og styrkja þar með stöðu hans
meðal Vestur-íslendinga. Jafnframt
kynnti Halldóra annað hugðarefni sitt,
samtök kvenna á íslandi, en starf henn-
ar að uppbyggingu íslenskra kvenna-
samtaka er annar meginþáttur í lífsstarfi
hennar. Með þessari frásögn, sem er
hluti af stærri rannsókn, vonast ég til að
leggja lítið eitt af mörkum til að minn-
ing Halldóru Bjarnadóttur fyrnist ekki.
Guðrún Helgadóttir
AÐDRAGANDI VESTURFARAR
HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
Aðdragandi vesturfararinnar var lang-
ur, ef litið er til stærra samhengis en ævi
Halldóru. íslendingar tóku að flytjast
vestur um haf upp úr 1870 og fyrsti
hópur íslenskra landnema kom til
Kanada árið 1873 (Júníus H. Kristins-
son, 1983). Allt frá þeim tíma voru
menningarleg tengsl milli íslands og
landnámsins vestra. Tengslin voru bæði
með formlegum hætti, ef svo má segja,
og með persónulegum hætti. Formlegu
tengslin voru skipulegt starf, svo sem
útgáfustarfsemi á íslensku, íslensku-
kennsla fyrir börn og fyrirlestraferðir ís-
lenskra fræðimanna um Bandaríkin og
Kanada. Þetta voru aðferðir sem Vest-
ur-íslendingar sem hópur viðhöfðu til
að styrkja menningu sína. Persónuleg
tengsl vina og vandamanna yfir lönd og
sæ hafa þó átt jafnríkan þátt í að móta
þjóðernisvitund kanadískra og banda-
rískra þegna af íslenskum uppruna. Hin
formlegu tengsl miða gjarnan að því að
auka hróður þjóðernisins, en persónu-
legu tengslin eru byggð á gagnkvæmri
umhyggju einstaklinga.
Halldóra Bjarnadóttir tengdist Vest-
28