Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1994, Qupperneq 30

Hugur og hönd - 01.06.1994, Qupperneq 30
bar að landi, en „Einhverjir karlar mættu mér við skipshlið, útsendir af Eimskip, fóru með mig á hótel til matar og gistingar, fylgdu mér milli skipa eða á járnbraut“ (Vilhjálmur S. Vilhjálms- son, 1960, bls.178). Móttökunefndin var með Halldóru í anda frá því hún steig á land í Ameríku, því hennar beið skeyti frá nefndinni þar sem hún var vöruð við vasaþjófunum. Ekki virðist Halldóra þó hafa verið hrelld, því hún segir að ferðakisturnar með sýningar- gripunum hafi verið ólæstar, bara bundnar aftur og hafi hún ekki orðið vör við þjófnað eða annað misjafnt í ferðinni. Meiri innileiki er í lýsingu Halldóru á viðtökum móttökunefndarinnar en þeirra Eimskipsmanna. Móttökunefnd tveggja kvenna úr hverju félagi, sem tók þátt í boðinu, hafði verið skipuð til að sjá um ferðir Halldóru vestra, sýning- una og fyrirlestrahald. Mér telst svo til að þær hljóti að hafa verið 10 en Hall- dóra talar um ellefu manna móttöku- nefnd. Halldóra segir þær hafa tekið á móti sér með „hinni mestu ástúð“ (Vil- hjálmur S. Vilhjálmsson, 1960, bls. 178). Ennfremur segir Halldóra í Hlín 1938 að viðtökurnar hjá löndum okkar vestra hafi verið hinar ástúðlegustu og þar hrósar hún undirbúningi móttöku- nefndarinnar sérstaklega (Tímarit Þjóð- ræknisfélags Islendinga, 21. árg. 1940; Halldóra Bjarnadóttir, 1938a). Samkvæmt lokaskýrslu og reikning- um móttökunefndarinnar sem sam- þykkt voru á 20. ársþingi Þjóðræknisfé- lags íslendinga í febrúar 1939 hélt Halldóra 30 samkomur á ferð sinni. Hin fyrsta var í Fyrstu lúthersku kirkju í Winnipeg og hin síðasta í Sambands- kirkju í sömu borg. Viðkomustaðir Halldóru voru beggja vegna landamær- anna, í Washington, Norður-Dakota og Minnesota-fylkjunum í Bandaríkjunum og í Bresku Kólumbíu, Alberta, Saskatchewan og Manitoba-fylkjum Kanada. Eftirtaldir viðkomustaðir Halldóru voru tilgreindir í blöðum og tímaritum Vestur-Islendinga 1937-1940: 1. Seattle, Washington; 2. Bellingham, Washington; 3. Blaine og Point Ro- berts, Washington; 4. Vancouver, Bresku Kólumbíu; 5- Edmonton, Al- berta; 6. Moose Jaw, Saskatchewan; 7. Regina, Saskatchewan; 8. Wynyard, Saskatchewan; 9. Leslie, Saskatchewan; 10. Foam Lake, Saskatchewan; 11. Churchbridge, Saskatchewan; 12. Winnipegosis, Manitoba; 13. Langruth, Manitoba; 14. Lundar, Manitoba; 15. Arborg, Manitoba; 16. Riverton, Man- itoba; 17. Gimli, Manitoba; 18. Sel- kirk, Manitoba; 19. Winnipeg, Man- itoba; 20. Upham, N.- Dakota; 21. Akra, N.- Dakota; 22. Mountain, N,- Dakota; 23. Garðar, N.- Dakota; 24. Minneapolis, Minnesota; 25. Minn- eota, Minnesota. Viðkomustaðir hennar voru mun fleiri en annarra gesta sem ferðuðust í boði Þjóðræknisfélagsins á þessum ár- um (Tímarit Þjóðræknisfélags íslend- inga, 19.-21. árg. 1938-1940). f skýrslu móttökunefndar eru taldar 30 samkom- ur, en í Lögbergi er sagt frá samkom- um, sem ekki eru taldar í skýrslunni. Halldóra segist sjálf hafa haldið um 50 samkomur. Ef allt er talið er sú tala ekki fjarri lagi (Halldóra Bjarnadóttir, 1938a). Víkjum nú að því sem skrifað var í Lögberg og frásögnum Halldóru í Hlín til að fræðast um ferðina. FYRIRLESTRAFERÐIN Fyrirlestrahaldið og sýningarnar hófust í Winnipeg með fyrirlestri í Fyrstu lúthersku kirkju og að sýningin var sett upp í „einum stærsta sýningar- sal borgarinnar" ( Vilhjálmur S. Vil- hjálmsson, 1960, bls. 178). Halldóra segist auðvitað hafa klæðst skautbún- ingnum. Þessi fyrsti fyrirlestur var vel sóttur og í kjölfarið fylgdu fyrirlestrar víða um íslendingabyggðir beggja vegna landamæranna. Yfirleitt flutti Halldóra fyrirlestrana í kirkjum íslensku safnað- anna og setti sýninguna upp á sama stað. Kvenfélögin sáu um kaffiveitingar sem oftast voru í Iok samkomunnar. Oft var einsöngur á dagskrá, auk erind- is Halldóru, og undir borðum var oft samsöngur. Um fyrirlestra sína segir Halldóra að hún hafi flutt kveðjur og almennar fréttir að heiman, talað um samtök kvenna á íslandi, heimilisiðnað og kynnt sýninguna (Vilhjálmur S. Vil- hjálmsson, 1960; Halldóra Bjarnadótt- ir, 1938b). Vikuritið Lögberg flutti nokkrar frá- sagnir af fyrirlestrum og sýningahaldi Halldóru, auk þess sem þar voru birtar auglýsingar um samkomurnar. Fyrsta frásögnin er af hátíðahöldum á íslend- ingadaginn 25.7. 1937 í Blaine, Was- hington. Þar kemur fram að fröken Halldóra Bjarnadóttir, sem er kynnt sem ritstjóri og útgefandi kvennablaðs- ins Hlín, hélt aðalræðu dagsins. Ekki er fjölyrt um boðskapinn annað en að hún hafi flutt kveðjur og fróðleik frá „gamla landinu“ og var því vel tekið. Síðan seg- ir: „Þessi tignarlega og gáfaða kona, klædd hinum íslenska þjóðbúningi tók sig prýðilega út á ræðupallinum, þar sem hún flutti erindi sitt.“ (V.B. 1937, bls. 2). Oft var vikið að þessu í frásögn- unum, að Halldóra hafi komið vel fyrir. Sautjánda september var Halldóra enn úti við Kyrrahafsströnd, en það kvöld var haldin samkoma íslendinga í Seattle. Þrjú íslensk kvenfélög sáu um undirbúning samkomunnar og veiting- ar. A dagskránni voru einsöngur Gunn- ars Matthíassonar og erindi Halldóru Bjarnadóttur. Allir tóku svo undir í samsöng íslenskra þjóðlaga á eftir (Jak- obína Johnson, 1937). Samkomuna sóttu um 90 manns samkvæmt þessari frásögn og var Halldóru og sýningunni, sem var höfð uppi um kvöldið, vel fagnað. I sömu klausu er þess einnig getið að handavinnusýningin hafi verið 30

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.