Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 34

Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 34
Haraldur DiSriksson. 7—lallega smíðaður spunarokkur f 7 gííz/r verið hreint augnayndi á JL að líta, nánast listaverk. En spunarokkur þarfað vera meira en augna- yndi, hann þarfað vera á þann hátt gerð- ur að það sé auðvelt að spinna á hann, og til þess að það lánist þarf að ýmsu að hyggja enda gripurinn samsettur úr mörg- um einingum. Rokkur. ROKKASMIÐUR Á SELFOSSI íslenski spunarokkurinn er sérstakur á margan hárt, og þá helst að hann er oft nettari og fínlegri smíði en margar aðrar tegundir spunarokka. Venjulega eru flestar einingar rokks- ins renndar og þar kemur vel fram hve leikinn smiðurinn er og svo í hinu að fullt samræmi sé miili allra hluta rokks- ins. Aður fyrr voru hér fjölmargir rokka- smiðir og gripir margra þeirra mjög eft- irsóttir. Rokkarnir voru atvinnutæki sem til voru á nær öllum heimilum landsins og fleiri en einn á mörgum. Failegustu og bestu rokkarnir urðu oft að ættargripum sem konur skildu síst við sig, til dæmis voru þær ófáar kon- urnar, er urðu landnemar í Kanada, sem tóku spunarokkinn sinn með sér yfir hafið, það eru til margar ljósmyndir og frásagnir sem sýna að rokkurinn kom sér vel fyrir frumbyggjana og var mikið notaður. Nú eru ekki margir smiðir sem smíða 34 gömlu íslensku gerðina af spunarokk- um. Hér segir af einum völundi sem býr á Selfossi og hefur getið sér orð fyrir fal- lega smíðisgripi sína, og þá ekki síst fyr- ir spunarokkana sem hann hefur smíðað, en þeir eru nú komnir hátt á sjöunda tuginn. Þetta er Haraldur Diðriks- son frá Langholti í Flóa, fædd- ur 1914 og því orðinn áttræð- ur að aldri. En það sér enginn á Haraldi, að hann sé kominn á þennan aldur, hann er heilsuhraustur og starfsorkan og vinnugleðin enn til staðar. Haraldur ólst upp í Lang- holti til 16 ára aldurs og vann við bú foreldra sinna fram að þeim tíma. Móðir hans var systir listmálaranna Ásgríms og Jóns Jónssona. Árið 1930 fluttist fjölskyld- an til Eyrarbakka. Þá var Har- aldur búinn að ákveða að læra trésmíði. En ekki komst hann strax að sem lær- lingur hjá meistara á Eyrarbakka, á því varð tveggja ára bið. Námið tók þrjú og hálft ár, var hefðbundið alhliða tré- Utskorinn hnífur, skeiS oggaffall. X

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.