Hugur og hönd - 01.06.1994, Síða 39
ERMAR:
Fitjið upp 43-45 L á sokkaprj. nr. 4
og prj stroff samkvæmt munstri nr. 2.
Skiptið í prj nr. 5 og prj slétt með
grænum lit nr. 9422, aukið jafnt 17 L í
fyrstu umf í 60-62 L.
Aukið um 2 L á miðri erminni í 5.
hverri umf, 18-19 sinnum (96-100 L)
Prj ermina 48-52 cm. Fellið af.
FRÁGANGUR:
Saumið í saumavél tvo sauma með
þéttu spori utan um br. L á bolnum og
klippið á milli. Lykkið saman á öxlum
og ermarnar við bolinn.
Klömbrur
LÝSING:
Peysa úr LÉTTLOPA, prjónuð með
myndprjóni. Stærðir S-L.
EFNI:
LÉTTLOPI (í svigunum eru áherslu-
litirnir)
FLÖTUR:
I: gulur litur nr. 9426 - (9427,9264)
II: grænn litur nr. 9422 - (9421,9423)
III: grænblár litur nr. 9423 - (9424,9422)
Langur hringprjónn eða beinn prjónn
nr. 4'/2, og 5.
Stuttur hringprjónn nr. 4.
PRJÓNFESTA:
18 L og 24 umf slétt prjón gera 10 x 10
cm reit á prjóna nr. 5.
Sannreynið prjónfestuna.
Yfirvídd: 112-122 cm
Sídd: 70-78 cm
Ermalengd: 48-53 cm
AÐFERÐ:
Myndprjón er prjónað fram og til
baka á beina prjóna eða langan hring-
prjón. Þegar skipt er um lit skal víxla
þráðunum þétt á röngu til að koma í
veg fyrir að bil myndist rnilli litaflat-
anna.
I þessari peysu er bætt við litaumferð-
um til áherslu í hverjum litafleti. Eru
notaðir litirnir sem eru gefnir upp í
svigunum og einnig litirnir í litaflötun-
um við hliðina á. Er þetta gert óreglu-
lega til að ná fram líflegum áhrifum.
BOLUR:
Framhlið:
Fitjið upp 92-102 L á prj nr. A'h með
grænu nr. 9422. Prj fram og aftur sl, 7
umf. Þá skal prj 1 umf br á réttu og svo
aftur 7 umf sl.
Prjónið jaðarlykkjuna alltaf sl.
Aukið jafnt um 10 L, þá eru 102-
112 L á prj.
Prj þá myndprj samkvæmt teikningu
fram og aftur að hálsmáli.
Það eru 32-36 umf í hverjum
litafled.
Litafletirnir færast til um 1 L í 2.-
hverri umf, þ.e.a.s. í hverri umf á réttu.
Þegar komið er að hálsmáli, skal
merkja fyrir miðju (51-56 L hvorum
megin) og prj axlarstykkin sitt í hvoru
lagi. Skal taka saman 1 L í 2.hverri umf
fyrir hálsmáli. ÞANNIG:
Flægri boðungur: Byrja frá miðju á
réttu. Prj 1 L sl„ taka næstu L óprj, prj
næstu og steypa óprj L yfir. Skal fækka
svona um 1 L í hverri umf á réttu. Þeg-
ar prj hafa verið 32-36 umf skal fella af
35-38 L sem eftir eru.
Vinstri boðungur: Byrja frá hliðinni
á réttu. Prj skal sl þar til 3 L eru á prj,
þá skal prj saman 2 L og prj síðustu L
sl. Skal fækka svona um 1 L í hverri
umf á réttu. Þegar prj hafa verið 32-36
umf skal fella af 35-38 L sem eftir eru.
Bakhlið:
Bakhlið skal prj eins og framhlið en
sleppið hálsmáli. Sjá teikningu.
Fellið ekki af í lokin.
ERMAR:
Fitjið upp 36 L á prj nr. 4>/2 með
grænu nr. 9422 og prj 12 umf sl, þá
skal prj 1 umf br á réttu, og endurtakið
svo 12 umf sl.
Aukið út jafnt um 12 L, þá eru 48 L
á prjóninum.
Hefjið þá myndprjón, en nú eru 34-
38 umf í litafleti.
Aukið út um 1L í hvorri hlið í 4.
hverri umf á réttu, 25-28 sinnum.
Prj 3 munsturbekki, eða í 98-104 L
og 102-114 umf í allt. Setjið L á
geymslunál eða þráð.
FRÁGANGUR:
Lykktð saman á öxlum og lykkið
ermar við bol svo litafletirnir nái rétt
saman. Saumið saman ermar og hliðar
bolsins. Brjótið líningarnar á ermum og
bol að röngu um br umf og saumið
niður.
HÁLSMÁL:
Með grænu nr. 9422 á lítinn hringprj
nr. 4 skal taka upp lykkjurnar á bak-
stykkinu, 38-40 L, og prjóna upp 32-
35 L í hvorri hlið hálsmálsins, samtals
102-110 L.
Prj 1L sl og 1L br, 13 umf, fellið af
(1L sl og 1L br).
Leggið listann á víxl og saumið niður.
39