Hugur og hönd - 01.06.1994, Qupperneq 40
AKRANESMÓTIÐ
"T "Tlkan l.-7.júlí síðastliðinn verður mér og börnunum mínum
I / þremur efiirminnileg um langan tíma. Þá daga dvöldum við á
Y Akranesi og sóttum norrœnt sumarmót heimilisiðnaðarfélaga.
Þetta átti að vera sumarferðalagið okkar og til að gera nú ferðina að
raunverulegri útilegu og spara tilkostnað gistum við í tjaldvagni. Við
fylltum töskur afregn- og vindfatnaði og til vara tókum við sólfót. Er
ekki að orðlengja það að veðrið lék við okkur allan tímann og kom er-
lendu gestunum sem og heimafólki verulega á óvart. Var haft á orði að
samband stjórnenda mótsins við almættið vœri nú sérlega gott þar sem
betra veður hafði ekki komið í langan tíma hér suðvestanlands.
Markmið slíkra sumarmóta er að efla
tengsl norræns heimilisiðnaðarfólks.
Þau eru fjölskyldumót og haldin árlega
og er þetta í annað skipti sem það kem-
ur í hlut íslendinga að sjá um mótið,
það fyrra var að Hvanneyri árið 1988.
Að vanda var boðið upp á stutt
námskeið í nokkrum greinum heimilis-
iðnaðar sem þykja einkennandi fyrir fs-
land, börnin fengu sérstakt námskeið
auk þess sem farið var í dagsferðalag um
Borgarfjörð og styttri kynnisferðir.
Þátttakendur voru alls um 60, þar af
9 börn (yngst 4 mánaða) og gistu þeir
flestir í Hótel Ósk sem er heimavist
Fjölbrautaskólans á Akranesi en nám-
skeiðin fóru fram í kennslustofum skól-
ans, Brekkubæjarskóla, svo og úti við.
Hinir fullorðnu gátu valið um nám-
skeið í balderingu, bein- og hornvinnu,
hrosshársspuna, jurtalitun, leikfanga-
gerð, matargerð, spjaldvefnaði og ís-
lenskum útsaumi. Skiptust menn nokk-
uð jafnt á námskeiðin og var almenn á-
nægja með þau eins og sjá mátti á sýn-
ingu sem haldin var síðasta dag móts-
ins. Vinnusemi manna var ótrúleg og
voru hlutir þeir sem búnir voru til bæði
fallegir og hugvitsamlegir. Jólastemmn-
ing í júlíhita ríkti í kringum laufa-
brauðsskurðinn, bú með búfénaði að
gömlum hætti var gert úti í móa á leik-
fanganámskeiðinu og þegar hinir full-
orðnu höfðu lokið byggingu þess fengu
börnin að leika sér. Jurtalitað band
blasti við vegfarendum á svölum Fjöl-
brautaskólans þegar verið var að þurrka
það og litadýrðin gladdi augað. Börnin
voru sérlega dugleg, þau þæfðu púða,
bjuggu til tröllkarla úr fjörusteinum,
fléttuðu vinabönd, bjuggu til gjafaöskj-
Börn og bú.
ur og svo mætti lengi telja. Allir höfðu
nóg að starfa.
Ferðin um Borgarfjörð tókst vel og
heimsóttum við Ullarselið á Hvanneyri
auk þess sem litið var við á helstu sögu-
og merkisstöðum. Akranesbær bauð
mótsgestum í kynnisferð um bæinn og
á eftir var móttaka á vegum bæjarins.
Einnig var farið í minjasafnið að Görð-
um, Guttormur Jónsson myndhöggvari
bauð okkur heim til sín og Gallerí Grá-
steinn var heimsótt, en meðlimir þess
sýndu vinnu sína í hádegishléi nokkra
mótsdaga.
Er óhætt að fullyrða að allir hafi verið
ánægðir með Akranesmótið og á mín-
um bæ er heitasta óskin sú að komast
til Svíþjóðar á næsta sumarmót nor-
rænna heimilisiðnaðarfélaga.
Fyrir hönd fjölskyldunnar sendi ég
öllum sem voru á Akranesmótinu svo
og aðstandendum þess bestu kveðjur.
Guðrún Einarsdóttir
Ljósm. GuSrún G. Jónsdóttir.
40