Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Page 42

Hugur og hönd - 01.06.1994, Page 42
Opna í handriti, Lbs. 80a, 8vo. Handritasafh Hannesar biskups Finnssonar, handritadeild Landsbókasafhs. „bæði að stærð og tilbúningi“ og hún). Einnig verður að játa að vangaveltur voru um hvort „gildleiki“ á brjóst- bómu, vefjarbómu og rif ætti við um- mál eða þvermál. Tekin var ákvörðun um að lesa þetta sem þvermál og gera uppdráttinn samkvæmt því. Stærð þess- ara hluta sem verður býsna mikil, þótti þó sennilegri í svo breiðum vefstól (brjóstbóman rúmir 170 cm) en þver- mál sem væri aðeins tæpir 7 cm á brjóstbómu og rif og 9 cm á vefjar- bómu. Nöfn á vefstólshlutum á upp- drætti er að finna í orðalistanum hér að neðan, merkt sömu tölum. Um uppskrifiina. Handritið er skrif- að með fljótaskrift 18. aldar. Þó reynt hafi verið að vanda lesturinn gætu hafa slæðst inn villur og er beðist velvirðing- ar á þeim. En þar sem vafi leikur á því, hvort rétt sé lesið, eru orð eða bókstafir sett í hornklofa, einnig ef síðustu stafir orða hverfa inn í kjölinn. Ahersluatriði í handritinu eru skrifuð með breyttu letri, en í uppskriftinni hér að neðan eru þau orð feitletruð og öll ritgerðin færð til nútímastafsetningar, að öðru leyti var farið svo nálægt handriti sem kostur var. 42 VEFSTAÐURINN Með sínum trjám og tilfæringum það frekast ég kann frá honum að segja. 1) Uppstandarar tveir, hvor þeirra á hæð 3'/4 Islands eður Hamborgar áln- ir, á breidd l2/s kvart., á þykkt því nær 3 þuml. 2) ofaná hverjum upp- standara er armur 13/4 al. á lengd, U/5 kvart. á breidd, þykktin eins og á uppstöndurunum því þeir eru í þá greyptir. 3) Krappi einn er í kverk- inni á hverjum uppstandara armi, 4) milli uppstandaranna er þverslá sem er sett í gegnum þá með það slag að úr miðjunni til hvors enda á henni eru höggnir 3 þuml. en þeir 2 þuml. beggja megin þess burthöggna á hverjum enda fyrir sig gengur í gegnum þau göt á uppstöndurunum sem þar til eru ætluð. Sláin er að breidd 7 þuml. en þykkt 2'h þuml. og á lengd 3 al. 2 þuml., en innan uppstandaranna 213/2o al. vel svo. 2 járnlokur eru íyrir utan hvern upp- standara er ganga í gegnum þau stykkin slárinnar sem út úr standa uppstöndurunum. Þessi slá stendur á rönd. 5) Ofan á hana er negldur setubekkur en fyrir ofan hann er 6) er sívalt tré kallað brjóstbóma vel 3 al á lengd og 9 þuml. á gildleika, það er fest við uppstandarana með járnspöngum. 7) Ur uppstöndurun- um báðum á hina aðra síðu ganga tvö tré 213/20 al. löng, kölluð síðu- stykki, þau á breidd l2/s kvart., þykktin eins og á uppstöndurunum. 8) Niður úr síðustykkjunum (sitt úr hverju) eru tvö tré U/20 al. há, l2/5 kvart. breið, þykktin jöfn síðustykkj- unum. Þau eru greypt í síðustykkin og síðustykkin í uppstandarana eins og armarnir í þá að ofan. Sá partur af uppstandaranum sem er fyrir neð- an síðustykkin 3'/s kvart. Ofan á síðustykkjunum eru áfellur 1 al. langar og vel 4 þuml. breiðar, þykkt- in jöfn við síðustykkin. 9) Milli síðustykkjanna er slá sem kölluð er þverbekkur, hún gengur gegnum síðustykkin og er að öllu leyti bæði að stærð og tilbúning eins og sú er ég fyrr um gat, hún hefur og sínar 4 járnlokur. Upp úr áfellunum sem ég fyrr nefndi standa tréstykki tvö, kvartelshá frá áfellunum, vel 4 þuml. breið og jafnþykk áfellunum. 10) Við þau liggjurj vefjarbóman eður i

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.