Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 49

Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 49
Drengjahúfa á tveggja ára 50 g blátt ullargarn 10 g angóragarn, prjónar nr. 4. Húfan er prjónuð í rvennu lagi, fyrst röndótti hlutinn og síðan kollurinn. Byrjað er að prjóna tvö eyrnaskjól sem eru röndótt, 2 umferðir sléttprjón með hvorum lit þannig: Fitjið upp 8 lykkjur með bláa ullar- garninu og aukið út 1 lykkju í byrjun hvers prjóns þar til lykkjurnar eru orðn- ar 22 og rendurnar 8(16 umferðir). Þegar bæði eyrnaskjólin hafa verið prjónuð eru fitjaðar upp 8 lykltjur með bláa ullargarninu (hálfur hnakld) og annað eyrnaskjólið prjónað yfir á sama prjóninn. í framhaldi af því og þá fitjaðar upp 30 lykkjur (enni) og hitt eyrnaskjólið prjónað og fitjaðar upp 8 lykkjur (hálf- ur hnakki). Húfan skiptist þannig: 8 lykkjur mynda hálfan hnakkann, 22 lykkjur eyrnaskjól, 30 lykkjur yfir ennið, 22 lykkjur eyrnaskjól og 8 lykkjur hnakki. Er nú röndótti hluti húfunnar prjónaður fram og til baka (fyrsta lykkj- an alltaf prjónuð slétt) þar til 6 hvítar angóragarnsrendur hafa verið prjónaðar til viðbótar. Þá eru prjónaðar 5 umferðir úr bláa ullargarninu og fellt af. Jaðrarnir saum- aðir saman með aftursting. Kollur: Teknar eru upp 88 lykkjur á fjóra prjóna í þriðju röngu umferðinni efst á röndótta hlutanum og prjónaðar 10 umferðir með bláa ullargarninu. Úrtaka: Tekið er úr á 8 stöðum þannig: *prjóna 9 lykkjur og 2 saman* endur- taka frá *til*. Takið þannig úr í annarri hverri umferð (ath. lykkjunum á milli úrtakanna fækkar um eina í hverri um- ferð) þar til 2 lykkjur eru eftir á hverj- um prjóni, prjónuð 1 umferð og teknar saman 2 og 2 lykkjur, slíta frá og draga endann í gegnum síðustu 4 lykkjurnar. Kantur að framan: Teknar eru upp 124 lykkjur í kring- um opið þannig: 14 lykkjur að aftan, 40 lykkjur í kringum hvort eyrnaskjól og 30 að framan. Prjónaðar 5 umferðir slétt prjón og fellt af. Kanturinn að framan á að rúllast aðeins upp. Snúið bönd úr garninu og festið í eyrna- skjólin. Hildur Sigurðardóttir 49

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.