Fréttablaðið - 26.03.2020, Síða 16

Fréttablaðið - 26.03.2020, Síða 16
Ágústa Rut segir að það hafi verið mikið áfall að stofunni var lokað en það hefði þó legið í loftinu að svo yrði. Við- skiptavinum hafði fækkað þar sem margir eru í sóttkví og dregið hafi úr bókunum í snyrtimeðferðir. Það væri eðlilegt þegar ástandið væri svona. „Við vorum með miklar sóttvarnir hjá okkur á stofunni og vorum bæði með andlitsgrímu og hanska. Auk þess var allt sótt- hreinsað eftir hvern viðskipta- vin og eingöngu notaðir einnota pinnar og þess háttar,“ segir hún. „Og sprittbrúsar auðvitað um allt. Þetta var mjög skrítið ástand hjá okkur eins og á öðrum stöðum,“ segir hún. Það er þó engin ástæða til að örvænta. Núna verður skyn- semin að ráða för. Þegar Ágústa er spurð hvað konur eigi að gera þegar þær komast ekki í sína venjubundna snyrtistofuferð, til dæmis í litun og plokkun, svarar hún. „Það sem skiptir mjög miklu máli núna er að hugsa vel um húðina. Hún er mikilvægt líffæri og þarf umönn- un. Notið hreinsimjólk og and- litsvatn bæði kvölds og morgna hvern dag. Einnig er gott að nota djúphreinsi og maska einu sinni til tvisvar í viku. Það ættu allir að taka sér tíma í heimasnyrtingu með djúphreinsun. Bera á sig húð- krem og dekra við sig þegar tíminn er nægur. Til dæmis að skrúbba líkamann eftir sturtu. Þá vil ég líka minna fólk á að nota vandaðan og næringarríkan handáburð þegar sífellt er verið að spritta hendur, jafnvel handmaska. Hendurnar þurfa líka stöðugt dekur á svona tímum. Ekki skartgripi eða lakk Neglur eiga að vera stuttklipptar og best að geyma skartgripina á góðum stað. Það er auðvelt fyrir bakteríur að safnast undir langar neglur og það er ekki ákjósanlegt núna. Snyrtifræðingar vinna til dæmis ekki með skartgripi enda er okkar kennt það í skóla að forðast þá og halda hreinlætinu í lagi,“ segir Ágústa. „Þá má líka benda á að forðast naglalakk. Ef við erum með lakkaðar neglur sjáum við síður óhreinindi undir nöglum auk þess sem bakteríur geta myndast í glufum sem við sjáum ekki á lakkinu. Það þurfa allir að hugsa svolítið öðruvísi þessa dagana.“ Ágústa segir að það sé engin ástæða til að vera ósnyrtur heima hjá sér. Best sé að halda venjulegri rútínu eins og þegar maður fer til vinnu. „Um að gera að vera vel snyrtur í heimavinnunni,“ segir hún og bætir við að til sé mikið úrval af alls kyns blýöntum og burstum í snyrtivöruverslunum til að skerpa litinn á augabrúnunum. „Ég myndi ekki mæla með að konur séu að lita sjálfar heima með ektalit eða plokka augabrúnir,“ segir hún. Þótt hún sé ekki hársnyrtir var Ágústa spurð hvað sé þá best að gera með hárið en sjálf átti hún tíma í klippingu eftir að stofunum var lokað. „Ég myndi ráðleggja það sama, nota góðar hárvörur og setja olíu í endana til að koma í veg fyrir slit. Ég hef sjálf verið að gera það. Það er hægt að setja djúpnæringu í hárið um leið og maður dekrar við húðina,“ segir Ágústa og bætir við að hún reyni alltaf að passa vel upp á hár og húð. „Það skiptir miklu máli að passa upp á þessa hluti. Sem betur fer eru flestar íslenskar konur duglegar að hugsa vel um sig og þær vilja líta vel út,“ segir hún. Ágústu finnst gott að fara í kósýgalla þegar hún kemur heim úr vinnu. Hún segir þó mikilvægt að dressa sig aðeins upp núna þótt fólk haldi sig heima. Það sé miklu skemmtilegra. „Mér finnst auðvit- að rosalega gaman að kaupa falleg föt en ég er líka voða klassísk, geng mikið í svörtu eins og margir aðrir. Ég hleyp ekki eftir tískustraumum en kaupi það sem mér finnst fallegt en líka þægilegt.“ Óhefðbundin námsleið Ágústa fór ekki beina leið í snyrti- fræðina þótt hún hafi haft áhuga á henni frá því hún var smástelpa en amma hennar er snyrtifræðingur. „Ég fór þessa hefðbundnu leið, fyrst í menntaskóla og síðan í háskóla. Ætlaði að verða hjúkr- unarfræðingur en fann mig ekki í því námi. Þá fór ég í kennaranám en fann mig ekki heldur þar. Ég ákvað síðan að láta hjartað ráða för og fór í snyrtifræði og útskrifaðist 2014. Ég var á nema- samningi hjá Mecca Spa á Hótel Sögu en byrjaði hjá Gyðjunni 2015 og líkar mjög vel. Við erum með stóran hóp fastra viðskiptavina og síðan erum við alltaf að taka á móti nýjum andlitum líka, þær yngri eru farnar að koma mikið,“ segir hún. CrossFit hefur verið áhugamál hjá Ágústu og ferðalög. Svo er hún mikil fjölskyldumanneskja þótt hún hafi ekki enn stofnað sína eigin. „Foreldrar mínir bjóða alltaf fjölskyldunni í mat í hverri viku til að efla sambandið sem er mjög skemmtilegt. Ég er mikið með fjöl- skyldu minni og vinum. Þessa dag- ana reynir maður að láta ástandið ekki hafa mikil áhrif á sig. Ég get samt ekki heimsótt ömmu mína og maður getur ekki annað en fundið fyrir stressi og óróleika. Ég fylgi vel leiðbeiningum frá Þórólfi, Víði og Ölmu, þvæ hendur vel, spritta og reyni að forðast að snerta andlitið. Vonandi verður komin betri tíð eftir páska. Ég get alla vega varla beðið eftir að komast aftur til vinnu.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Það er um að gera að dekra við sig á meðan maður hefur nægan tíma heima og líka þótt maður sé í heimavinnu, segir Ágústa. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Framhald af forsíðu ➛ Þá vil ég líka minna fólk á að nota vandaðan og nær- ingarríkan handáburð þegar sífellt er verið að spritta hendur, jafnvel handmaska. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.