Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.03.2020, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 26.03.2020, Qupperneq 20
Ég held ég sé ekkert að brjóta á afa mínum þó ég gefi þetta handrit út rúmum áttatíu árum eftir að það var skrif-að,“ segir Þorvaldur Gylfason prófessor, um skáldsöguna Tímamót eftir Þorstein Gíslason, skáld og ritstjóra. „Það var konan mín, Anna Karitas Bjarnadóttir, sem bjó handritið til útgáfu ásamt mér. Það er fyrsta sam- vinnuverkefni okkar hjóna af þessu tagi. Við gerðum þetta á Ítalíu í lok síð- asta árs, rétt áður en faraldurinn illvígi komst þar á kreik.“ Þorvaldur er sonarsonur Þorsteins. Hann segir afa sinn hafa árið 1936 haldið tólf útvarpsfyrirlestra um heimastjórn- artímabilið og á sama ári gefið út bókina Þættir úr stjórnmálasögu Íslands 1896- 1918. „En það er eins og afi hafi ekki treyst sagnfræðinni einni til að koma sögu tímabilsins til skila heldur skrifar líka lykilskáldsögu um sama tíma, um sama fólk,“ bendir hann á og heldur áfram. „Það handrit skilur hann eftir, skrifað með eigin hendi, þegar hann fellur frá 1938. Alexander Jóhannesson háskólarektor nefnir það í ævisögu sem hann skrifaði um Þorstein og getur þess að það sé óbirt.“ Þorvaldur kveðst hafa grafið handritið upp í fyrra og lesið það þá í fyrsta skipti. „Sá eini sem ég vissi að hafði áður lesið það var Vilhjálmur Þ. Gíslason, föðurbróðir minn sem dó fyrir bráðum 40 árum. Ég sá það í hendi mér að sagan ætti erindi við f leiri en mig, vegna þess að ég þekki ekkert dæmi í gervallri heimssögunni um að sami maður ræki bæði hlutverkin, að skrifa sagnfræði um tímabil í þjóðarsögu sinni og að fylla upp í myndina með skáld- sögu um sama tímabil.“ Konur ganga ljósum logum Eitt af því sem Þorvaldi finnst merkilegt við skrif afa síns er að í útvarpserind- unum og sagnfræðiritinu er engin kona nefnd en hann segir konurnar ganga ljósum logum í skáldsögunni. „Þetta er sá tími sem konur höfðu hvorki kjör- gengi né kosningarétt og höfðu því ekki bein áhrif í stjórnmálum. En afa finnst hann ekki þurfa að taka tillit til þess þegar hann skrifar skáldsöguna og hann fer inn á heimili, ekki bara hefðar- fólksins heldur einnig fátæklinganna. Þarna leyfir hann sér líka að velta því fyrir sér hvernig körlunum hafi verið innanbrjósts þegar þeir voru að þrátta um pólitíkina. Fyrir slíkar vangaveltur var ekkert rúm í sagnfræðipartinum.“ Þorvaldur hefur komist að því að handritið sem nú er loks í prentun átti að verða fyrri hlutinn af tveimur bindum. Segir það ná yfir tímabilið frá 1896 til 1904 og að Valtýr Guðmundsson alþingismaður sé í stóru hlutverki en heiti Gissur Gunnlaugsson í handritinu. „Seinna bindið átti að fjalla um árin frá 1904 til 1918, þar hefði Hannes Hafstein eflaust verið aðalpersónan, hann heitir Hákon Marberg í sögunni. En afi féll á tíma, held ég, því hann fékk hvítblæði og dó 1938.“ Litlu þurfti að breyta í handritinu, að sögn Þorvaldar. „Við einfölduðum aðeins stafsetningu og greinarmerki en afi var málvís og sagði fallega frá. Text- inn er þokkafullur og nálgunin býsna skemmtileg. Fyrri helmingurinn fjallar um lífið í Reykjavík og síðari helmingur- inn lýsir lífinu úti á landi. Höfundurinn lýsir samræðum milli manna og ólíkum sjónarmiðum án þess að gera upp á milli þeirra, sagan er hlutlaus þannig og ekki beint spennandi en hún er afar fróðleg. Margt af því sem þar er talað um er gleymt af yngri kynslóðinni en þó sagan sé trúlega skrifuð 1936-1938 kallast hún á við margt sem fólk á mínum aldri þekkir frá árunum milli 1950 og 60.“ Mögnuð lýsing á Matthíasi Meðal þess sem Þorvaldur nefnir er lýsingin á séra Matthíasi Jochumssyni skáldi í Tímamótum. „Það er fallegasta og magnaðasta lýsing á þjóðskáldinu sem ég hef séð og þekki ég þó sjálfs- ævisögu Matthíasar sjálfs. Hann heitir Guðbrandur Þorláksson í bók afa sem segir skáldið ýmist eins stórf ljót eða lækjarsprænu, eftir því hvert tilefnið er og hvern hann er að tala við. Ungu mennirnir reyni að gera uppreisn gegn honum, því þeim finnist hann gamal- dags, og lýsingin á því hvernig Matthías snýr þá niður með sterkum rökum og ljúfu viðmóti, er dásamleg. Sama má segja um margar aðrar mannlýsingar.“ Í inngangi kveðst Þorvaldur nefna þær fyrirmyndir sem honum hafi tekist að greina í handritinu, ásamt sagnfræð- ingunum, vinum sínum. „Svo er annað fólk sem við áttum okkur ekki alveg á og ég býst við að sumir lesendur hafi gaman af að reyna að finna fleiri fyrir- myndir.“ gun@frettabladid.is Textinn er þokkafullur og nálgunin býsna skemmtileg. Fyrri helmingurinn fjallar um lífið í Reykjavík og síðari helmingurinn lýsir lífinu úti á landi. Höfundurinn lýsir sam- ræðum milli manna og ólíkum sjónarmiðum án þess að gera upp á milli þeirra „Þó sagan sé trúlega skrifuð 1936-1938 kallast hún á við margt sem fólk á mínum aldri þekkir frá árunum milli 1950 og 60,“ segir Þorvaldur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Myndin sem er á bókarkápu er af höf- undinum, Þorsteini Gíslasyni skáldi. Sagan Tímamót í prentun Í handriti úr fórum Þorsteins Gíslasonar ritstjóra (1867-1938), færir hann atburði á Íslandi um aldamótin 1900 í skáldlegan búning. Það kemur út á bók innan skamms.  Fyrstu vordægur Þorsteinn Gíslason orti ljóð. Þekktasta kvæði hans var í Skóla- ljóðunum. Þetta er fyrsta erindið: Ljósið loftið fyllir og loftin verða blá. Vorið tánum tyllir tindana á. Elsku faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi okkar, Haukur V. Guðmundsson lést miðvikudaginn 11. mars á lungnadeild Landspítalans. Í ljósi hinna óvenjulega aðstæðna í samfélaginu um þessar mundir mun útför fara fram í kyrrþey föstudaginn 27. mars. Guðmundur Óskar Hauksson Guðríður Sigurðardóttir Kristján Hauksson Alda Hanna Hauksdóttir Vignir Diego barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Pálsson málari, veiðimaður, fluguhnýtari og náttúruvinur, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 3. apríl klukkan 13.00. Í ljósi samkomubanns og nýjustu fjöldatakmarkana verður athöfninni streymt á netinu. Aðstandendur veita frekari upplýsingar. Hallur Ægir Páll Daníel og Linda Edda Huld Eggert og Ásta Björk barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Halldór Borgarsson áður til heimilis að Jaðri, Höfnum, lést á Hrafnistu Hlévangi, sunnudaginn 22. mars. Í ljósi aðstæðna mun útför fara fram í kyrrþey. Kærar þakkir færum við starfsfólki Hlévangs fyrir góða umönnun. Borgar Jens Jónsson Eygló Breiðfjörð Einarsdóttir Magnús Ingi Jónsson Helga Jónína Guðmundsdóttir Sveinbjörn Guðjón Jónsson Ingibjörg Guðjónsdóttir Rúnar Kjartan Jónsson Hallveig Fróðadóttir María Rós Newman barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, Höskuldur Jónsson fyrrverandi forstjóri ÁTVR, lést á Kanaríeyjum fimmtudaginn 19. mars. Kveðjuathöfn verður auglýst síðar. F.h. aðstandenda, Guðlaug Sveinbjarnardóttir Merkisatburðir 796 Napoléon Bonaparte tekur við stjórn Ítalíuhers Frakka í Nice. 1876 Lúðurþeytarafélag Reykjavíkur er stofnað. Það er talin vera fyrsta hljómsveit á Íslandi. 1920 Varðskipið Þór kemur til Vestmannaeyja, hann er fyrsta björgunar- og varðskip Íslendinga. 1947 Knattspyrnusamband Íslands er stofnað. 1961 Sovétmenn skjóta upp geimfarinu Spútnik 10 og endurheimta það sama dag, ásamt hundinum Zvez- dochka, sem er um borð. 1971 Austur-Pakistan lýsir yfir sjálf- stæði frá Pakistan og ríkið Bangladess er stofnað. 1995 Schengensáttmálinn gengur í gildi. 2000 Vladimír Pútín er kosinn forseti Rússlands. 2 6 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.