Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is LICATA sófar og stólar Ný og glæsileg lína í DORMA. Sófar, stólar og skammel úr fallegu og slitsterku áklæði. Aðeins 187.493 kr. LICATA hornsófi Hornsófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm Fullt verð: 249.990 kr. 25% AFSLÁTTUR HEIMA ER BEST TILBOÐ Heima er best verslaðu á dorma.is og við sendum þér það frítt Breyttur afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 12–18 Laugardaga kl. 12–18 www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði KLIKKAÐU Á VÖRU OG ÞÚ FERÐ BEINT INN Í VEFVERSLUN DORMA.IS HEIMA ER BEST tilboðin Heima er best verslaðu á dorma.is og við sendum þér það frítt STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN UM BÆKLINGINN OKKA R RÚM 2–13 | Mjúkvara og d únn 14–17 | Stólar 18–19 | S ófar 20–29 | Hillur, borð o g skápar 30–33 | Affari og smávara 34-42 Hv er ni g frí se nd in g h já D OR M A vi rk ar www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN Þú finnur nýjan bækling á dorma.is Hv er ni g frí se nd in g h já D OR M A vi rk ar á do rm a.i s LICATA 2ja og 3ja sæta sófar Aðeins 89.993 kr. Sófarnir eru í tvennskonar litum af Kentucky áklæði. Annarsvegar koniak og hinsvegar steingráu. Svartir nettir járnfætur. Stærð 2ja sæta: 159 x 94 x 82 cm. Stærð 3ja sæta: 199 x 94 x 82 cm 2ja sæta fullt verð: 119.990 kr. 3ja sæta fullt verð: 149.990 kr. 112.493 kr. Viðbrögð ljóðskáldsins og bókasafnarans V a l d i m a r s Tó m a s s o n a r v i ð f o r d æ m a l a u s u Cov id-fá r inu er u skáldleg, eins og við var að búast, en hann hefur undanfarið birt í áföngum á Facebook kvæðabálkinn Veirufangar. „Í raun og veru er þetta kvæða- bálkur undir sama hætti og Áfangar eftir Jón Helgason,“ segir Valdimar, þannig að Veirufangarnir hans eru síður en svo úr lausu lofti gripnir. „Hvert erindi felur í sér tilvísun í áðurnefndan kvæðaf lokk Jóns, í sömu röð. Flokkurinn endur- speglar núverandi ástand og ber saman líf undir þaki veirunnar og áður, líkt og fyrrnefndur kvæða- flokkur ber saman og vísar til fyrri tíðar,“ segir Valdimar í samtali við Fréttablaðið. Veira veltir þungu hlassi Aðspurt segir skáldið tíðarandann beinlínis kalla á kvæði. „Maður sér svo mikla hverfingu á háttalagi manna að maður getur ekki setið á sér. Að eitt veirukvikindi skuli setja heiminn á endann og fólk skuli flýja frá efnisheiminum, græðginni, og allt í einu sjá að lífið er einhvers virði líka,“ segir Valdimar um þetta fádæma ástand sem sýni svo skýrt hversu fallvaltur hinn kviki og innantómi efnisheimur er. „Þannig að maður sér að laun heimsins eru ekki bara vanþakklæti heldur að innviðirnir sem virka eru uppbygging hins huglæga heims. Ekki efnisleg gæði, merkjavara og svoleiðis tilvistarhjóm.“ Valdimar leggur áherslu á að tilbrigði hans við Áfanga Jóns Helgasonar sé ort af djúpri virðingu fyrir skáldinu sem hann hafi í hávegum. „Það er ólæs maður sem ekki nýtur kveðskapar Jóns Helga- sonar. Það er svo rammlega kveðið og svo íslenskt sem frá Jóni kemur,“ segir hann og víkur að öðrum skáldjöfri. „Nú gengur maður um mannauð stræti eins og skáldið Einar Bene- diktsson orti: „Frá langri nótt gekk ég mannauð stræti.“ Maður upplifir stemningar úr Einræðum Starkaðar,“ segir skáldið sem þrátt fyrir að vera undir fimmtugu man þá tíð er borgarbragurinn var kóvi líkastur. Kvíðaklámvæðingin „En samt eru þetta hlutir sem maður upplifði niðri í bæ á tíunda áratugnum eftir lokanir búða, á kvöldum og sunnudögum. Þetta er eiginlega alveg sama nándin og ekk- ert ólík tilvera. Þá sátu menn bara inni yfir sjón- varpsveirunni og léttvægu froðus- nakki RÚV og Stöðvar 2 og orðræða manna miðaðist við af þreyingar- efni þar en nú nærist fólk á ein- hverju kvíðaklámi.“ Valdimar hefur á síðum Frétta- blaðsins og víðar verið kallaður Metsölu-Valdi og ekki að ósekju þar sem hann hefur undanfarin misseri dvalið langdvölum í efstu lögum sölulista ljóðabóka. Valdi selur þó bækur sínar ekki síst sjálfur á förnum vegi þannig að ætla má að veiruógnin komi illa við ljóðahagkerfið? „Ljóðskáldið er allt af jaf n launalaust sama hvort það er góðæri eða kreppa,“ svarar Valdi sposkur. „Þannig að maður fór Veirufangar í lífi þjóðar Valdimar Tómasson gengur um mannauð stræti fallins efnisheims- ins og bindur ástandið í mál með kvæðabálkinum Veirufangar. „Nú gengur maður um mannauð stræti eins og skáldið Einar Benediktsson orti,” segir ljóðskáldið Valdimar Tómasson sem einn á ferð upplifir á ógnartímum veirunnar stemningar úr Einræðum Starkaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Veirufangar eru ortir undir sama hætti og Áfangar eftir Jón Helga- son. MYND/KALDAL Úr Veiruföngum Liðið er skammt á skynlausa öld menn skjálfa í veiruheimi, lamar grár óttinn atgerfið þó yndi margt fólkið dreymi veirur fitna og fjölga sér ef forvörn um stund ég gleymi, faðmlög bönnuð og blíða sýnd í bláskini af tölvustreymi. Íhöggvið gnapir búðabjarg bölvað er tómum hillum, út er vísað með vargalund viðskiptamönnum illum, djöflinum kveðið kvæðasafn kraumar í friðarspillum, hjá landanum öllum lund er kvik hann lentur í römmum villum. Nú er í Smitvík nöpur vist ég norpa í tómu porti, líf mitt er allt á einhvern veg út af gengið af korti. Í einsemd kveð ég kvæðastef sem Kristján fjallaskáld orti, á kvöldin heyrast kynjahljóð af klósettpappír skorti. […] Kringlan og öll horn í Heljarvík hrella sem draugakimar, hugur vor tæpur holdið veikt en hressar veirur og fimar, raunaþungt loft og rammt er kul svo ræflinum mörgum svimar, en Kári hraustur kveður djarft og kórónaveiruna skimar. Ærið var bratt á barnum mælt og belgslegar ræður manna, sopið rösklega og sungið hátt síðan vor fljóð að kanna en veiruhrellingar valdsboð réð og veröldin hlýju að banna svo daðrið barst að dimmum skjá og dauflitum tölvuskanna. […] Veirufanga eftir Valdimar má finna í heild á Fréttablaðið.is ÞANNIG AÐ MAÐUR SÉR AÐ LAUN HEIMS- INS ERU EKKI BARA VANÞAKK- LÆTI HELDUR AÐ INNVIÐIRNIR SEM VIRKA ERU UPPBYGGING HINS HUGLÆGA HEIMS. EKKI EFNISLEG GÆÐI, MERKJAVARA OG SVOLEIÐIS TILVISTARHJÓM. aldrei út í kveðskap eða ljóðlist út af því að maður héldi að maður drægi einhvern sporð á land eða þar væru rjómi og rækur uppi á borðum,“ segir Metsölu-Valdi sem óbugaður og ósmeykur heldur áfram mannlífsrannsóknum sínum á auðum götum Reykjavíkurborgar. toti@frettabladid.is 3 0 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.