Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 14
Það vakti eftirtekt þegar fyrrum alþingismaður birti pistil á fésbók sinni, þar sem hann lýsti almennum efa- semdum um aðgerðir og ákvarð- anir sóttvarnalæknis og annarra íslenskra yfirvalda í tengslum við COVID-19 veiruna. Hann bætti um betur og í viðtali í útvarps- þætti nokkrum hélt hann því fram að „útlendingum frá hættu- svæðum hefði verið hleypt óskim- uðum inn í landið til þess að koma smiti inn í samfélagið“ og virtist þar með ekki hafa fylgst með fréttaf lutningi af skíðaglöð-um Íslendingum í Ölpunum. (Ekki það að nokkuð sé hægt að gagn- rýna íslenskt skíðafólk í þessu sambandi og hefði veiran borist til landsins með einum eða öðrum hætti hvort sem er.) Þá klykkti hann út með hjart- næmu, opnu bréfi til forsætisráð- herra, þar sem hann sagði meðal annars: „Þú ert vonandi mjög hugsi, enda hvílir ábyrgðin nú á þínum herðum og ríkisstjórnarinnar. Það er ekki hægt að vísa ábyrgð á sótt- varnalækni, nú þegar öllum má vera ljóst að aðferð hans er röng og getur leitt til stórtjóns.“ Ofangreind atburðarás lýsir þekktu áróðursbragði. Með ósann- indi og hálfsannleik að vopni er reynt að sá efasemdafræjum í huga fólks. Þrátt fyrir að margir láti sér fátt um finnast (sem betur fer), liggur óhróðurinn eftir eins og tyggjó- klessa, sem erfitt getur reynst að hreinsa upp að fullu, eins og jafnan er um tyggjóklessur. Þannig má segja að bragðið hafi heppnast í þeim fáránleika að í sjónvarpsþætti þurftu yfirvöld að sverja þennan áburð af sér og voru einnig fluttar fréttir af því. Sjaldan er ein báran stök og þingf lokkur stjórnmálaf lokks nokkurs birti heilsíðu auglýsingu af svipuðum (eða sama?) meiði í dagblöðum laugardaginn 21. mars. Þrátt fyrir öllu settlegri tón, fer ekki á milli mála að boðskapurinn er sama eðlis og megum við líklega búast við meiru af slíku á næstunni. Á óvissutímum sem þessum ræð- ur úrslitum að allir leggist á eitt. Til viðbótar við dyggðir eins og sam- heldni, yfirvegun, sannleiksást og náungakærleik, er einnig mikilvægt að „mæla þarft eða þegja“. Af úlfum í sauðagæru Gréta Thunberg er orðin heimsþekkt, sænska stúlkan, sem greind var einhverf og talaði ekki, nema þegar henni þótti nauðsyn til, en fór svo skyndilega að tala. Og talaði þá, svo að eftir var tekið. Hún fór í skólaverkfall til að vekja athygli á loftslagsvanda heimsins, hrikalegasta verkefni, sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir. Nú er þessi áður fátalaða stúlka orðin ræðumaður á öllum helstu loftslagsráðstefnum heims og brýnir ráðamenn til aðgerða í loftslagsmálum. Nú fyrir jólin kom út bókin Húsið okkar brennur, baráttusaga Grétu og fjölskyldu hennar, rit- uð af móðurinni, áhrifamikil lesning. Gréta krefst aðgerða í loftslagsmálum, aðgerða í stað orða. Hún segir allar staðreyndir um loftslagsvandann liggja fyrir og lausnirnar einnig, hvað þurfi að gera. Vísindamenn eru nær sammála um, að hlýnun andrúmsloftsins sé af mannavöldum og loftslags- breytingar séu farnar að hafa áhrif á veðurfar og líf fólks um allan heim. Við þurfum að vakna og gera breytingar, draga úr losun gróður- húsalofttegunda strax, því verði ekkert að gert á næstu árum, fer af stað keðjuverkun sem enginn mann- legur máttur fær stöðvað. Þetta er neyðarkall, segir hún. Gréta vill að við tökum loftslagsógnina alvar- lega, því annars gerist ekkert. „Full- orðna fólkið er alltaf að segja: „Við verðum að gefa unga fólkinu von.” En ég vil ekki vonina ykkar. Ég vil að þið hagið ykkur eins og líf ykkar sé í hættu. Ég vil að þið hagið ykkur eins og það sé kviknað í húsinu ykkar. Af því að það er kviknað í því.” Þann- ig talaði Gréta á alþjóðaefnahags- þinginu í Davos í janúar 2019. Samt boðar hún ekkert vonleysi eða upp- gjöf, öðru nær, því enn þá er mögu- leiki á að breyta, en þá verðum við að bregðast skjótt við. Gréta hefur staðið í baráttu. Hún hefur fengið á sig gagnrýni fyrir að vera ung og óreynd, einhverf eða einfalda hlutina um of. Hún gerir sér þó grein fyrir því, að hér er ekki um einfalt verkefni að ræða, að minnka losun á heimsvísu, þar sem í hlut eiga allar þjóðir heims, sem búa við afar misjafnar aðstæður. Ríku iðnþjóðirnar eins og hennar eigið land, Svíþjóð, verða að ganga á undan, segir hún, og draga úr losun um 50 prósent næstu árin, á meðan þróunarríkin svon. fá afslátt og ráðrúm til að byggja upp innviði sína. Staðan hjá okkur Íslendingum er víst ekki sérlega góð um þessar mundir. Við erum ofarlega í losun af Norðurlandaþjóðunum. Við erum ekki að draga úr losun, heldur auka, þrátt fyrir metnaðarfulla aðgerða- áætlun núv. ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í umhverfismálum til ársins 2030, sem enn á eftir að sýna sig, hvort reynist raunhæf. Víst er, að við þurfum að gera betur í lofts- lagsmálum, ætlum við að standa við skuldbindingar okkar gagnvart Parísarsamkomulaginu. Bók Grétu Thunberg er vissulega áminning til okkar Íslendinga. Sem fámenn þjóð björgum við kannski ekki heimin- um ein og sér, en við getum lagt okkar lóð á þá vogarskál. Saga Grétu sýnir okkur, svo ekki verður um villst, hversu miklu ein- staklingurinn fær áorkað, ef hann beitir sér. Gréta er farin að hafa áhrif vítt um heim með rödd sinni, líka hér á landi. Á hverjum föstudegi kemur nú saman hópur ungs fólks á Austurvelli með mótmælaspjöld og krefst aðgerða í loftslagsmálum að hætti Grétu Thunberg. Unga fólkið gerir sér ljóst, að það á mest í húfi, því þess er framtíðin. Þetta allt vekur vonir. Við þurfum að endurskoða margt, byrja hvert í sínum ranni, breyta hugsanagangi, lífsmáta og gildismati, temja okkur meiri auð- mýkt og einfaldari lífsmáta, hætta að líta á peninga og hagvöxt sem hið eina er máli skipti, en íhuga lífsgildin, sem vísa til framtíðar. Því eins og Gréta segir. Nú verða allir að tala skýrt. Við höfum enn lausnir í hendi okkar, en tíminn er naumur, af því það er kviknað í húsinu okkar. Húsið okkar brennur. Húsið okkar brennur Ólafur Þ. Hallgrímsson höfundur er fyrrv. sóknar- prestur Við þurfum að vakna og gera breytingar, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda strax, því verði ekkert að gert á næstu árum, fer af stað keðjuverkun sem enginn mannlegur máttur fær stöðvað. Þetta er neyðarkall, segir hún. Birgir Hrafnsson áhugamaður um ábyrga um- ræðu. Þannig má segja að bragðið hafi heppnast í þeim fárán- leika að í sjónvarpsþætti þurftu yfirvöld að sverja þennan áburð af sér og voru einnig fluttar fréttir af því. HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU – MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Íslendingar lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali.* Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst á orn@frettabladid.is. Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. 93.000 *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019 Tímar sem þessir sýna svo ekki verður um villst hvernig grunnstoðir samfélagsins eru á sig komnar. Við Íslendingar getum verið tiltölulega ánægðir. Öf lugt heilbrigðiskerfi tekst á við veiruna ásamt almannavörnum, skólast ar f heldu r á f ram v ið breyttar og erfiðar aðstæður og at v innu leysist r yg g inga sjóðu r tekur við þeim sem missa vinnuna – svo nokkur kerfi séu nefnd. Allar áætlanir og spár breytast frá degi til dags og ljóst að næstu mánuði og ár munu gjörðir helstu viðskiptaþjóða okkar hafa mikil áhrif hér á landi. Skylda stjórnvalda er að styðja við f jölskyldur og fyrirtæki í gegnum þennan öldusjó þannig að samfélagið verði tilbúið í kröftuga viðspyrnu þegar léttir til. Viðsk ipt aráð var helst t i l snöggt að leggja til niðurskurð hjá hinu opinbera og skerðingu á starfshlutfalli hjá opinberum starfsmönnum. Þetta kom auð- vitað illa við það fólk sem nú stendur í eldlínunni við að berjast gegn útbreiðslu veirunnar á heil- brigðisstofnunum. Eru viðbrögð ráðsins í hróplegu ósamræmi við þá samstöðu og samvinnu sem ríkjandi er í samfélaginu. Ég er stoltur af íslensku samfélagi og samheldni þjóðarinnar. Sam- staðan laskaðist í hruninu og það er mikilvægt að við vinnum okkur núna saman í gegnum erfitt tímabil. Og þegar við höfum náð viðspyrnu og erum búin að ná okkur á strik verða allir að sýna samfélagslega ábyrgð. Þess vegna verða þeir sem geta að halda áfram að greiða til samneyslunnar. Það gengur auð- vitað ekki að einhverjum öf lum innan viðskiptalífsins þyki sjálfsagt að koma hlaupandi í skjól ríkisins, umfram þörf, og nýta sér kraft og samstöðu samfélagsins. Krafa almennings er krafa Framsóknar. Samvinna í þágu samfélagsins alls. Sem betur fer eru flestir þar. Öll él birtir um síðir. Það kemur vor og það kemur sól og daginn lengir. Við höfum áður tekist á við erfiðleika og staðið sterkari eftir. Við getum gert það aftur. Tími fyrir samfélag Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra og formaður Fram- sóknar Samstaðan laskaðist í hruninu og það er mikil- vægt að við vinnum okkur núna saman í gegnum erfitt tímabil. 3 0 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.