Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 2
Veður
Suðvestan 15-23 m/s á norðan-
verðu landinu í dag, 8-15 sunnantil,
en hvassara í vindstrengjum við
fjöll. Rigning eða súld á vestur-
helmingi landsins en annars bjart.
Hiti 3 til 11 stig, mildast SA-lands.
SJÁ SÍÐU 20
Ég berst á fáki fráum fram um veg
S A M F É L A G S k á k k e n n a r i n n
Kristófer Gautason ákvað með
skömmum fyrirvara að bjóða upp
á netskákmót fyrir íslensk börn á
vinsælasta skákþjóni heims, Chess.
com. Hann renndi blint í sjóinn
með þátttökuna á fyrstu mótunum
sem fóru fram á fimmtudaginn,
en 177 börn mættu til leiks sem
Kristófer segir hafa komið sér í
opna skjöldu.
„Það var afar ánægjulegt að sjá
þessa miklu þátttöku. Skákin er
nánast hönnuð fyrir netið og því
mjög skemmtilegt að geta kynnt
börn fyrir þessum möguleika til
að keppa við jafnaldra og stytta sér
stundir“ segir Kristófer.
Hann hafði samband við öll sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu og
að endingu tóku fimm þeirra þátt,
Reykjavík, Garðabær, Hafnarfjörð-
ur, Kópavogur og Mosfellsbær.
„Ég skipulagði sér mót fyrir hvert
bæjarfélag á f immtudaginn og
fékk ómetanlega hjálp frá sveit-
arfélögunum sem sendu út tilkynn-
ingar til allra foreldra um mótin,“
segir Kristófer.
Hann hyggst einnig bjóða upp á
skákmót fyrir eldri borgara og tólf
höfðu skráð sig í hópinn um hádegi
á föstudag. „Það eru fjölmargir
eldri borgarar sem tef la á netinu,
en ég reyndi að fá þá sem tef la
kannski ekki að staðaldri til að
taka þátt. Það fer ágætlega af stað.
Þeir sem hafa skráð sig eru ekki
reglulegir gestir á hefðbundnum
skákmótum en vonandi bætast
f leiri við,“ segir Kristófer.
Hann hyggst standa fyrir öðru
móti fyrir börn í dag, laugardag,
og síðan halda áfram að bjóða upp
á tvö mót í viku á fimmtudögum
og laugardögum. „Það hafa fjöl-
mörg íslensk börn bæst í hópinn á
Chess.com og mér sýnist að skrán-
ingarnar séu vel yfir þrjú hundruð
talsins. Ég vona því að næstu mót
verði enn stærri.
Kristófer ætlar þó ekki að láta
höfuðborgarsvæðið duga heldur
er allt landið undir. „Skáksamband
Íslands hefur hjálpað mér við að
senda nokkrum sveitarfélögum
út á landi boð um þátttöku og
viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð.
Það mun því vonandi bætast vel við
hópinn á næstunni,“ segir Kristófer.
Hann segir að þátttaka í stuttu
skákmóti á netinu sé góð tilbreyting
á þessum einkennilegu tímum
þar sem ofgnótt er af frítíma. „Ég
er að minnsta kosti handviss um
að krakkar verði klárari af því að
tefla en að horfa á Youtube,“ segir
Kristófer brosandi.
bjornth@frettabladid.is
Verða klárari af því að
tefla en Youtube-glápi
Tæplega tvö hundruð börn tóku þátt í fyrstu netskákmótunum sem Kristófer
Gautason, skákkennari, stóð fyrir síðastliðinn fimmtudag, á Chess.com,
vinsælasta skákþjóni veraldar. Mikil þátttaka kom Kristófer í opna skjöldu.
Kristófer Gautason bjóst ekki við svo gríðarlegri þátttöku barna í
netskákmótum og raunin varð í liðinni viku. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Skákin er nánast
hönnuð fyrir netið.
COVID -19 Heildarfjöldi COVID-
19 tilfella fór yfir þúsund smit í
gær þegar 57 bættust við. Er því
heildarfjöldinn orðinn 1020. Lang-
flest tilfellin greindust á veirufræði-
deild Landspítalans en hlutfallið
hjá Íslenskri erfða-greiningu var
aðeins 0,4 prósent. Eða 2 tilfelli af
490 sýnum.
Alls hafa 15.500 sýni verið tekin,
eða úr 4,3 prósentum þjóðarinnar,
og birgðastaða sýnatökupinna í
lagi.
Alma Möller, landlæknir, sagði á
blaðamannafundi Almannavarna
í gær að faraldurinn væri í hægum
vexti, ekki veldisvexti.
Hins vegar væru verstu spár að
ganga eftir varðandi gjörgæslu-
tilfellin. 25 COVID-19 sjúklingar
dvelja nú á Landspítalanum, 9
þeirra eru á gjörgæsludeild og 7 í
öndunarvél.
Um 9500 manns eru nú í sóttkví
og Víðir Reynisson, yfirlögreglu-
þjónn brýndi fyrir fólki að virða
samkomubann. Of margar tilkynn-
ingar um að leiðbeiningum væri
ekki fylgt og að gera þyrfti ráðstaf-
anir til að fylgja banninu eftir. „Það
er komið af stað,“ sagði Víðir.
Í l jó s i f r ét t a u m au k n a
áfengisneyslu varaði Alma fólk
við að leita í áfengi á þessum tíma.
Áfengi veiki bæði ónæmiskerfið og
bitni á dómgreind fólks. Þá væri
hætta á auknu heimilisof beldi og
að börnum sé ekki sinnt. – khg
Varaði við
því að leita í
áfengi núna
57
tilfelli bættust við í gær og
heildarfjöldinn nú er1020.
Yfirskrift þessarar myndar eru upphafslínur úr ljóðinu Sprettur eftir Hannes Hafstein. Margir notuðu gærdaginn til að viðra gæðinga sína og hefur
það örugglega verið kærkomin stund fyrir bæði hesta og menn. Enda fátt meira frelsandi en þegar gola kyssir kinn, eins og segir í ljóðinu. Þessir
tveir voru teknir til kostanna á Kaldárselsvegi í Hafnarfirði um miðjan gærdaginn og létu vel að öruggri stjórn knapa síns. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SLYS Vélsleðaslys varð við Veiðivötn
á Suðurlandi í gær þar sem þrír slös-
uðust, kona á miðjum aldri alvar-
lega en aðrir með minni meiðsli.
Sleði hennar fór fram af hengju
og annar á eftir sem lenti á henni.
Lélegt skyggni var og snjóblinda.
Björgunarsveitir voru kallaðar út
klukkan hálf þrjú og 50 manns tóku
þátt í aðgerðinni. Samferðafólk
konunnar f lutti hana til móts við
sveitirnar og mættust þau klukkan
fjögur. Þyrla Landhelgisgæslunnar
var send af stað til að sækja kon-
una og einn annan slasaðan. Lenti
þyrlan um sexleytið í gær við Land-
spítalann í Fossvogi. – khg
Vélsleðaslys
við Veiðivötn
50
manns tóku þátt í aðgerð-
inni og þyrla var kölluð út.
3 0 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð