Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg. ehf DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Guðmundar Brynjólfssonar BAKÞANKAR buzzador® Frítt fyrir alla! Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is Nú þegar allir þurfa að vera innipúkar og sófakartöur, þá viljum við ekki verða uppiskroppa með afþreyingarefni fyrir fjölskylduna. Þess vegna bjóðum við öllum frían aðgang að Jibbí á Nova TV. Horfðu á barnaefni hvar og hvenær sem er — og allt á íslensku! Frítt barnaefni á íslenskuGÓU PIPAR EGG 25 G 169 KR/STK 6760 KR/KG Hund átti ég eitt sinn svartan er kallaður var Gráni. Kom það þannig til að um svipað leyti átti ég hest sem hét Gráni og fannst mönnum ég vera þannig til höfuðsins að útilokað væri að ég gæti munað mörg nöfn. Var því hundurinn einatt kallaður Gráni þrátt fyrir að ég hafi upphaf lega nefnt hann Hvít. Ekki er þessu skrifelsi ætlað að útskýra nafngiftir, heldur segja frá því þegar Gráni bjargaði einfættum manni á Hofsósi frá því að verða fyrir bárujárnsplötu. Þannig var að hundurinn hafði nýlega fengið mig til þess að kaupa fyrir sig f lösku af ákavíti en hann var dulítið fyrir sopann, gerði ég það því Gráni var rólegur með víni og sá lítið á honum. Einn ósið hafði hann þó fullur, en það var að leggjast í símhringingar. Það er svo laugardagskvöld í september 1988 að hundurinn er að glerja sig og kominn í símastuð. Ég átti um þetta leyti gráan Ericsson-síma og man ég að allnokkur húðfita var á skífunni. Enda notaði ég símann mikið við símasölu á Nintendo-sjónvarpsspilum. Nema hvað, þarna situr hundurinn og hefur náð sambandi og heyri ég að hann spjallar við einfættan mann, en auðvitað vissi ég ekki þá að sá var á Hofsósi. En það skipti engum togum að símtal hundsins varð til þess að maðurinn tafðist á leið sinni inn í rúm, en þegar hann kom þangað örlítið seinna fann hann konu sína í tveimur pörtum því bárujárnsplata hafði fokið inn um gluggann og klofið frúna þar sem hún beið „hans megin í rúminu“, eins og segir í DV frá þessum tíma. Gráni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.