Feykir - 29.03.2017, Blaðsíða 6
6 13/2017
Arna Rún Arnarsdóttir
Kökur og ostar á
matseðlinum
Arna Rún Arnarsdóttir á Skagaströnd
verður fermd þann 27. maí í Hólanes-
kirkju af sr. Bryndísi Valbjarnardóttur.
Foreldrar hennar eru Guðrún Elsa
Helgadóttir og Arnar Ólafur Viggósson.
Hvers vegna valdir
þú að fermast?
-Til að staðfesta
skírnina.
Hefur þú velt
trúmálum mikið
fyrir þér? -Aðeins,
spái svolítið í mun-
inum á mismun-
andi trúarbrögðum.
Hvernig hefur
fermingarundir-
búningnum verið
háttað? -Spáð og
spekúlerað, ferm-
ingarfræðsla, messur og svo undirbúningur fyrir ferm-
ingardaginn, bæði athöfnina og veisluna.
Hvar verður veislan haldin? -Í Skagabúð.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Já,
kökur og ostar.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Já.
Hver er óska fermingargjöfin? -Utanlandsferð.
Fermingin
mín
Fermingarbörn svara spurningum
UMSJÓN Fríða Eyjólfsdóttir
Ásdís Björg Ragnarsdóttir
Langar í nýjan síma
Ásdís Björg Ragnarsdóttir á Kollsá í
Hrútafirði verður fermd þann 13. apríl
í Prestbakkakirkju af sr. Guðna Þór
Ólafssyni. Foreldrar hennar eru Ingibjörg
Rósa Auðunsdóttir og Ragnar Pálmason.
Hvers vegna valdir
þú að fermast?
-Mig langaði til að
staðfesta skírnar-
heitið mitt.
Hefur þú velt
trúmálum mikið
fyrir þér? -Já, já
ég hef gert það.
Hvernig hefur
fermingarundir-
búningnum verið
háttað? -Ég fór í
eina viku í haust í
Vatnaskóg. Síðan
hef ég verið í fermingarfræðslu og sótt messur.
Hvar verður veislan haldin? -Í skólahúsinu á
Borðeyri.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Já,
loksins. Það verða smáréttir og kökur.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Já, það er kjóll
og kápa.
Hver er óska fermingargjöfin? -Nýr sími með góðri
myndavél.
Tristan Reyr Borghildarson
Langar í krossara
Tristan Reyr Borghildarson á Hvammstanga verður
fermdur þann 30. apríl í Hvammstangakirkju af sr.
Magnúsi Magnússyni. Foreldrar hans eru Borghildur
Heiðrún Haraldsdóttir og Þormóður Ingi Heimisson.
Hvers vegna valdir þú að fermast? -Af
því að ég trúi á guð.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir
þér? -Já svona eitthvað.
Hvernig hefur fermingarundirbún-
ingnum verið háttað? -Frekar hefð-
bundinn undirbúningur, allt gengur vel.
Hvar verður veislan haldin? -Á Sveita-
setrinu Gauksmýri.
Er búið að ákveða hvað verður á mat-
seðlinum? -Já, það verður t.d. ísterta
og alls konar fingramatur.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Já.
Hver er óska fermingargjöfin? -Kross-
ari.
Þorgrímur Svavar Runólfsson
Dróni á óskalistanum
Þorgrímur Svavar Runólfsson á Sauðárkróki verður
fermdur í Sauðárkrókskirkju þann 4. júní af sr.
Sigríði Gunnarsdóttur. Foreldrar hans eru Aðalbjörg
Þorgrímsdóttir og Runólfur Óskar Steinsson.
Hvers vegna valdir þú að fermast? -Vegna
þess að mig langar til að staðfesta skírnina.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér?
-Ekkert rosalega mikið en samt pínu.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum
verið háttað? -Ég hef ákveðið svolítið
mikið og mamma líka.
Hvar verður veislan haldin? -Í félags-
heimilinu í Hegranesi .
Er búið að ákveða hvað verður á mat-
seðlinum? -Já, það á að vera einhvers
konar súpa og kökur.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Já,
nokkurn veginn.
Hver er óska fermingargjöfin? -Dróni og xbox.