Feykir - 29.03.2017, Blaðsíða 10
10 13/2017
Það muna eflaust margir eftir því
hverju þeir klæddust á sjálfan
fermingardaginn og er ótrúlega
gaman að skoða hvernig tískan
hefur breyst í þessu eins og öllu
öðru á milli áratuga. En í ár eru
blúndukjólar og samfestingar
áberandi fyrir dömurnar og
jakkaföt og jakkafatajakkar við
dökkar buxur fyrir drengina.
Falleg blúndumynstur
í kjólunum
Ef við byrjum á dömunum þá er
ríkjandi að sjá hvíta, drappaða og
fölbleika kjóla. Þá er blúndan mjög
áberandi og er hún ekki þessi hefðbunda
blúnda sem hefur verið svo áberandi
undanfarin ár heldur er hún með alls
konar mynstrum. Ég hef alltaf verið
heilluð af blúndunni og ég verð að
viðurkenna að ég væri alveg til í að eiga
einn svona fallegan blúndukjól þrátt
fyrir að eiga tuttugu ára fermingar-
afmæli í ár. En síddin á kjólunum er rétt
fyrir ofan hné og er gaman að sjá að þeir
ná alveg upp að hálsi, jafnvel með litlum,
nettum kraga. Spagettíhlýrar hafa ekki
náð inn í fermingartískuna heldur eru
kjólarnir með breiðum hlýrum eða
stuttum ermum sem gerir þá bæði
stelpulega og settlega. Samfest-
ingarnir eru í
svipuðum litum og kjólarnir, ásamt
svörtu, og er bæði hægt að fá þá með
stuttbuxum og síðbuxum. Sniðið er
þannig að þeir virka eins og „two piece“
eða tvær flíkur og er mikið
skemmtilegra og klæðilegra snið fyrir
svona ungar stelpur. Hvað skótískuna
varðar þá er ég rosalega ánægð að sjá að
10 sm hælarnir eru ekki ráðandi heldur
er kubbahællinn sterkur inn aftur eftir
langa bið í bæði sandölum og
spariskóm. Þessi tíska hentar því
ótrúlega vel fyrir ungu stelpurnar sem
eru að taka sín fyrstu skref á hælum.
Slaufa, bindi,
já eða ekkert um hálsinn
Drengirnir fá ekki jafn saklausa og létta
liti eins og stelpurnar en hjá þeim eru
dökkblá, ljósgrá og auðvitað svört
jakkaföt áberandi. Skyrturnar eru hvítar,
svartar og ljósbláar og þá virðist vera
allur gangur á því hvort þeir séu með
bindi, slaufu eða jafnvel ekkert um
hálsinn, bara hvað hentar hverjum og
einum. Slaufurnar réðu ríkjum í fyrra en
hugsanlega er verið að reyna að ná
meira loose looki í ár með þvi að notast
við ekkert. Ef drengirnir velja að nota
eingöngu jakkafatajakkann þá er hann í
lit, ekki svörtu, og gallabuxur í dökkum
gallaefnum og jafnvel svartar eru valdar
við þá. Þá er gaman að sjá breytingar í
skótauinu í ár fyrir drengina því í fyrra
var eins og það væri ekkert annað
í boði en
strigaskór en núna sjáum við brúna og
svarta spariskó og fyrir þá sem þora þá
eru það Dr. Martens við gallabuxurnar,
sem mér þykir ótrúlega flott og
töffaralegt.
Ekkert að því að
kaupa notuð fermingarföt
Það eru margir foreldrar sem kvíða fyrir
öllum þeim útgjöldum sem fylgja því að
ferma börnin sín og einn stór og dýr
þáttur í þessu öllu er fermingarfatn-
aðurinn. Mjög algengt er að fermingar-
fatnaðurinn sé svipaður og árið áður og
hef ég mjög oft heyrt fólk tala um að
þessi tilteknu föt sem keypt voru hafi
einungis verið notuð einu sinni og aldrei
aftur, hugsanlega hafi skór og skart verið
notað oftar en einu sinni en sjálf fötin
voru orðin of lítil þegar átti að fara að
nota þau aftur. Þá getur verið svolítið
gremjulegt að eyða miklum peningum í
þetta, vitandi að notagildið sé lítið sem
ekkert. Hvað er þá að því að finna
fermingarfötin á sölusíðum á Facebook
á jafnvel helmings verði? Ekkert! Ef
fermingarbarnið er móttækilegt fyrir
þessu þá er um að gera að hefja leitina.
Reyndar fann ég ekki neina sérstaka
sölusíðu sem auglýsir eingöngu
fermingarfatnað en ég er nokkuð viss
um að það líða ekki margir mánuðir
þangað til við sjáum eina slíka síðu á
fésbókinni.
Blúndukjólar og jakkaföt
Feykir skoðar fermingartískuna 2017
UMFJÖLLUN
Sigríður Garðarsdóttir
Á myndunum má sjá fermingarfatnað á stelpur og
stráka frá Gallerí 17. Skoða má úrvalið á
www.ntc.is