Feykir - 10.05.2017, Page 2
Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað getur talist ósnert
náttúra og hvort hún fyrirfinnst hér á Íslandi yfir höfuð.
Allt landið hefur verið í notkun eða öllu heldur verið
nýtt frá fyrstu öldum landnáms. Sagt er að landið hafi
verið skógi vaxið frá fjalli og
ofan í fjöru. Ef svo hefur
verið er landið ekki ósnert
þar sem fáa skóga er að finna
sem teljast aldagamlir í dag.
En skógræktin hefur aukist
gífurlega svo sumum er nóg
boðið og vilja skógrækt í
umhverfismat.
Bændur hafa, fram á
þennan dag, nýtt sér allt það
land sem gefur einhverja beit
fyrir búsmalann, bæði í byggð
sem og á afréttum hvar sem þær hefur verið að finna. Var
reyndar svo nærri hálendinu gengið, að sumra mati, að
sauðkindinni var kennt um þann gríðarmikla uppblástur
sem átt hefur sér stað á hálendi Íslands. Bændur eru vel
meðvitaðir í dag um skaðsemi ofbeitar og forðast þvílíkt,
enda hefur skepnum sem hafðar eru á afrétti fækkað
mikið. Hafa þeir verið iðnir við að græða landið og er
sómi að.
Þegar fækkaði í sveitum og fólk þyrptist á mölina á
síðustu öld, þurfti iðnaðurinn rafmagn til að halda uppi
starfsemi. Þá var farið að virkja og vatnsaflið notað til að
knýja hverflana sem framleiddu rafmagnið enda sýndu
útreikningar að það var hagkvæmasti kosturinn. Þetta
kostaði að sökkva þyrfti landi og náttúru. Fórnin var á
kostnað einhvers annars, s.s. beitar, náttúruminja eða
sjónrænna verðmæta. Oft er tekist á um hvar eða hvort
eigi að virkja. Vilja margir meina að nóg sé komið af
vatnsaflsvirkjunum og jafnvel að ekki sé meiri þörf á
rafmagni. Ekki veit ég það en óþarfi finnst mér að
framleiða rafmagn til að flytja á Bretlandsstrendur.
Ég veit ekki hvort ég á að hafa áhyggjur af fjölgun
ferðamanna. En þeim er bent á ósnerta náttúru Íslands og
fara þangað sem hugurinn leiðir þá. Ferðamennskan er
góð og gild en pössum okkur á að missa hana ekki upp í
eitthvað sem við ráðum ekki við. Einn daginn gætum við
setið uppi með stórskaddaða náttúru af völdum
þrammandi náttúruunnenda um fjöll og firnindi.
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Ósnert náttúra
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Tvöföldu stórafmæli fagnað
80 ára afmæli Sögufélagsins og 70 ára afmæli Héraðsskjalasafnsins
Á sunnudaginn var mikið um
dýrðir í Miðgarði þegar
Sögufélag Skagfirðinga og
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
héldu sameiginlega
afmælisveislu. Sögufélagið,
sem er 80 ára, er elsta
starfandi héraðssögufélag
landsins sem enn starfar og
hefur það að markmiði sínu að
skrá og gefa út efni sem varðar
sögu Skagafjarðar. Héraðs-
skjalasafnið er líka hið elsta
sinnar tegundar á landinu og
fagnar nú 70 ára afmæli.
Meginmarkmið þess er að
safna, varðveita og miðla
gögnum sem varða sögu
Skagafjarðar.
„Í tilefni afmælisins var
haldið málþing undir yfir-
skriftinni „Skagfirsk fræði í
fortíð og nútíð“. Forseti
Íslands, Guðni Th. Jóhannes-
son, ávarpaði samkomuna þar
sem hann óskaði Skagfirðing-
um til hamingju með tíma-
mótin og rakti í örfáum orðum
tildrögin að stofnun félaganna.
Guðni sagði ekki mögulegt að
telja upp alla þá einstaklinga
sem með starfi sínu hafa lagt
Sögufélaginu lið en þó væri
eitt stórvirki sem ekki yrði hjá
komist að tilgreina; Byggða-
sögu Skagfirðinga, sem Hjalti
Pálsson ritstýrir. Guðni nefndi
einnig til sögu Kristmund
Bjarnason á Sjávarborg, og
skáldin Hannes Pétursson,
Guðrúnu frá Lundi og Ólínu
Jónasdóttur og sagði að hér í
sveit væru tengsl skáldskapar
og fróðleiks einmitt sterk. Þá
bætti forsetinn við: „Ágætu
ráðstefnugestir: Við þurfum
einmitt þetta – blöndu skáld-
skapar og fræða – þegar við
leitumst við að skilja það sem
gerðist, reynum að lifa okkur
inn í löngu liðna tíð. Við
þurfum líka fræðileg vinnu-
brögð, rannsóknir sagnfræð-
inga og annarra með nýstár-
legum kenningum, samanburði
og ályktunum. En til jafns
þurfum við að leggja rækt við
þann áhuga heimafólks í hverri
sveit að kunna skil á sögu sinni
og uppruna. Þetta hefur ykkur
tekist, Skagfirðingar góðir. Ég
óska Sögufélagi Skagfirðinga
til hamingju með afmælið, og
Héraðsskjalasafninu sömu-
leiðis.“ Þá sló Guðni á létta
strengi og sagði að rétt eins og
að kyrja vísuna góðu, „Skála´
og syngja Skagfirðingar,“ gæti
allt eins átt við að segja: „Skrá
og skrifa Skagfirðingar.“
Aðrir gestir sem tóku til
máls voru Ásta Pálmadóttir
sveitarstjóri Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, Hjalti Pálsson
formaður Sögufélagsins og
Sólborg Una Pálsdóttir héraðs-
skjalavörður. Auk þess fluttu
þau Guðný Zoega, Harpa
Björnsdóttir, Unnar Ingvars-
son og Viðar Hreinsson fyrir-
lestra. Sölvi Sveinsson sá um
að stýra málþinginu.
Meðan á dagskránni stóð
gæddu gestir sér á hátíðakaffi
sem Kvenfélag Seyluhrepps til-
reiddi með miklum sóma. /FE
Nú eru strandveiðar hafnar og hefur bátum sem landa í höfnunum á svæðinu því fjölgað
verulega. Á Skagaströnd bárust rúm 49 tonn á land í síðustu viku, tæplega 245 tonn á
Sauðárkróki og rúm 13 tonn á Hofsósi. Engu var landað á Hvammstanga. Heildarafli
vikunnar á Norðurlandi vestra var 307.221 kíló. /FE
Aflatölur 30. apríl – 6. maí 2017
Strandveiðar hófust 2. maí
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 14.116
Fannar SK 11 Grásleppunet 819
Fálki ÞH 35 Grásleppunet 4.860
Gammur II SK 120 Grásleppunet 2.978
Hafey SK 10 Handfæri 2.389
Helga Guðmundsdóttir SK 23 Handfæri 1.180
Kristín SK 77 Handfæri 1.244
Klakkur SK 5 Botnvarpa 89.526
Maró SK 33 Handfæri 2.113
Málmey SK 1 Botnvarpa 113.678
Már SK 90 Handfæri 1.566
Steini G SK 14 Grásleppunet 2.104
Sæfari SK 100 Grásleppunet 5.105
Vinur SK 22 Handfæri 2.217
Ösp SK 135 Handfæri 959
Alls á Sauðárkróki 244.854
HOFSÓS
Leiftur SK 136 Handfæri 1.047
Leiftur SK 136 Grásleppunet 1.265
Skáley SK 32 Grásleppunet 5.010
Von SK 21 Grásleppunet 1.631
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 4.153
Alls á Hofsósi 13.106
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Handfæri 2.351
Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 5.897
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 2.362
Blíðfari HU 52 Handfæri 2.125
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 2.370
Dagrún HU 121 Grásleppunet 3.188
Dísa HU 91 Handfæri 878
Fengsæll HU 56 Grásleppunet 4.990
Garpur HU 58 Handfæri 1.185
Geiri HU 69 Handfæri 2.447
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 1.524
Gyðjan HU 44 Handfæri 910
Hafdís HU 85 Handfæri 994
Húni HU 62 Handfæri 2.548
Jenný HU 40 Handfæri 2.378
Kópur HU 118 Handfæri 1.132
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 2.408
Már HU 545 Handfæri 1.869
Onni HU 136 Handfæri 577
Svalur HU 124 Handfæri 1.472
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 3.268
Sæunn HU 30 Handfæri 2.388
Alls á Skagaströnd 49.261
Aukasýningar í næstu viku
Leikfélag Sauðárkróks
Aðsókn að Sæluvikustykki
Leikfélags Sauðárkróks hefur
verið góð enda um sprell-
fjörugan farsa að ræða.
Lokasýning var auglýst nk.
sunnudag en nú hefur verið
ákveðið að efna til aukasýninga.
Sú fyrri verður þriðjudaginn 16.
maí klukkan 20:00 og sú seinni
miðvikudaginn 17. maí klukkan
20:00. /PF
Hjalti Pálsson færir forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, Byggðasögu
Skagafjarðar. MYND: FB-SÍÐA HÉRAÐSSKJALASAFNS SKAGFIRÐINGA
2 18/2017