Feykir - 10.05.2017, Qupperneq 4
M I N N I N G
Rumba í lok mánaðarins
Veðurklúbburinn á Dalbæ
Þriðjudaginn 2. maí 2017 komu
félagar í Veðurklúbbnum á
Dalbæ saman til fundar. Hófst
hann kl. 14:00 og voru
fundarmenn ellefu talsins.
Fundinum lauk kl. 14:25. Farið
var yfir spágildi veðurspár fyrir
aprílmánuð og voru
fundarmenn sammála um að
þar hefði vel tekist til.
Tunglið sem kviknaði 26.
apríl kl. 12:16 í suðaustri er
ríkjandi fyrir veðurfar í maí-
mánuði og bendir allt til þess að
veður í maí verði gott. Svolítið
breytilegt en verri veðurkaflar
standa mjög stutt. Reikna má
með smá rumbu alveg í lok
mánaðarins.
Fundarmenn segja að ríkj-
andi vindáttir muni verða
norðan og norðvestan og hita-
stig viðunandi og benda á gamla
veðurvísbendingu sem segir að
eins og viðri á tveggja postula
messu, sem var 1. maí, héldu
þeir gömlu að viðraði á fjórða í
hvítasunnu.
Veðurvísa apríl og maí
Í apríl sumrar aftur
þá ómar söngur nýr.
Í maí flytur fólkið
og fuglinn hreiður býr.
/PF
Fallinn er frá góður
drengur, Björn Ottósson,
Baddi. Kynnin hófust fyrir
37 árum á körfubolta-
vellinum. Baddi var
fjallmyndarlegur maður,
hávaxinn og hraustmenni.
Hann var þekktur í
körfuboltanum fyrir sín
frægu sveifluskot sem
vonlaust var að verjast.
Björn var sérlega dagfars-
prúður maður og brosið
hans vitnaði um gott skop-
skyn. Á haustdögum 1981
stofnuðu nokkrir ungir
menn körfuboltafélagið
Molduxa, Baddi var einn af
þeim. Á vellinum fannst
okkur hann á stundum full
hæverskur og ekki nýtti
hann sér líkamsburði sína
gegn okkur, prúðmennskan
var honum í blóð borin.
Molduxarnir voru og eru
félagsskapur gleðimanna og
þar fann Baddi sig vel, hann
hafði kannski ekki hæst, en
hann var skemmtilegur fé-
lagi og nærvera hans var
alltaf hlý og notaleg. Á fyrsta
starfsári félagsins fórum við
til Siglufjarðar og skoruð-
um á heimamenn í blaki,
körfubolta og reiptogi. Þar
var Björn betri en enginn og
skipaði sitt rúm vel. Við það
tækifæri létum við taka af
okkur ljósmynd til að senda
á undan okkur og í grínkasti
röðuðum við fyrir framan
okkur nokkrum verðlauna-
gripum U.M.F. Tindastóls
svo Siglfirðingar sæju hvers
konar afreksmenn væru
væntanlegir. Á myndinni
stendur Baddi glettinn á svip
við hlið Óttars bakara, svei
mér ef ljósmyndarinn Stefán
Pedersen glotti ekki út í ann-
að við tökuna. Einn kaffi-
brúsi var hafður með á
myndinni til að undirstrika
alvöru málsins.
Björn hafði umfram
okkur þekkingu á íþróttinni
og ekki kom á óvart að hann
skyldi vera fenginn til að
segja unglingum til í þeirri
göfugu íþrótt körfubolta.
Hann var enginn ný-
græðingur í íþróttinni þegar
hann gekk til liðs við Uxana.
Björn var í fyrstu liðunum
sem kepptu fyrir hönd
Tindastóls í körfubolta. Í
ársskýrslu U.M.F. Tindastóls
fyrir árið 1968 kemur fram
að Björn Ottósson hafi spilað
9 leiki fyrir félagið og í þeim
fékk hann aðeins dæmdar á
sig 5 villur alls.
Á síðasta Molduxamóti
hitti ég Badda í íþróttahús-
inu og við tókum spjall
saman. Ákváðum við síðan,
gömlu stofnendurnir að
ganga saman inn í salinn og
horfa á guttana spila. Gott er
að eiga þá minningu.
Mest höfðum við saman
að sælda við Badda í
íþróttahúsinu þar sem hann
var lengi húsvörður. Í því
starfi birtust mannkostir
hans. Framkoma hans, bæði
við börn og fullorðna, var
einstök, engin vandamál eða
vesen, bara þjónusta og
góðvild. Fyrir það og allar
samverustundir þökkum við
Uxar af heilum hug. Það er
reglulega sorglegt að Baddi
skyldi ekki fá að njóta efri
áranna með sínu fólki. Það
átti hann, eins og aðrir,
sannanlega skilið.
Sigríði og fjölskyldunni
sendum við samúðarkveðjur.
Fyrir hönd Molduxanna,
Ágúst Guðmundsson
Björn Ottósson
Fæddur 19. nóvember 1947 – Dáinn 26. apríl 2017
Hvernig nemandi varstu? Ég
held að ég hafi verið yfirveguð og
samviskusöm.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum? Ég man mest hvað
ég var hamingjusöm og naut þess
að fylla heimilið af gestum.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Að sjálfsögðu
hárgreiðslukona.
Hvað var uppáhalds leikfangið þitt
þegar þú varst krakki? Barbie-dótið
mitt.
Besti ilmurinn? Nýbakað brauð.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Ég var ballöðusjúk,
hlustaði t.d. á Celine Dion, Whitney
Houston og Mariah Carey.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? Klárlega Simply the Best
með Tinu Turner.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Er alveg hrikalega
léleg í sjónvarpsglápi en íslenskir
landsleikir af ýmsu tagi fara bara
helst ekki framhjá mér.
Besta bíómyndin? Dirty Dancing,
því ég fæ nostalgíukast í hvert sinn
sem ég horfi á hana.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Það hreyfir mest
við mér að horfa á mín eigin börn
keppa í íþróttum.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Er nú ekki mikil
samkeppni en að skipuleggja hin
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Helga Kristín Gestsdóttir.
ÁRGANGUR: 1981.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Á fjögur börn; Gest Mána 12 ára, Hafþór Inga 7
ára, Hildi Margréti 5 ára og Sigurstein Helga 3 ára. Svo kærasta
sem býr í Sviss.
BÚSETA: Reykjavík.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Ragnhildar
Helgadóttur og Gests Þórarinssonar. Ég var svo heppin að
vera alin upp á Blönduósi.
STARF/NÁM: BSc í iðjuþjálfunarfræði frá Háskólanum á Akur-
eyri. Starfa á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins en þar sækja
börn og ungmenni og fjölskyldur þeirra greiningu og ráðgjöf
vegna þroskafrávika.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Spennandi ferðalög út fyrir landsteinana
Helga Kristín
ýmsu svið daglegs lífs er mitt sérsvið
og nauðsynlegt á barnmörgu heimili.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Marensinn minn klikkar
ekki.
Hættulegasta helgarnammið?
Rjómasúkkulaði með karmellukurli
og sjávarsalti.
Hvernig er eggið best? Linsoðið
með salti.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Frestunaráráttan – en ég
vinn bara svooo vel undir pressu!
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Óheiðarleiki og það
að sjá alltaf neikvæðu hliðina á
hlutunum.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? Mistök eru sönnun þess að
þú ert að reyna.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Ég man eftir mér að flytja að
heiman dragandi dótaskúffuna á
eftir mér.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín? Ég elska Tomma og
Jenna og get alltaf hlegið af þeim.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? Celine Dion –
ég væri svo sannarlega til að syngja
á einum tónleikum sem hún.
Hver er uppáhalds bókin þín? Ég er
alltaf með bók á náttborðinu og hef
unun af að lesa mér til afþreyingar
en akkurat núna kemur engin ein
bók upp í hugann.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Dísus.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati? Fyrir
mig sem fyrirmynd þá er það klárlega
Vigdís Finnbogadóttir en það er
ekki hægt að líta framhjá að Mark
Zuckerberg hefur haft stórvægileg
áhrif á að minnka heiminn!
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu? Ég myndi fara að
hitta pabba, sem er látinn, til að
gefa honum eitt knús, segja honum
það sem ég átti eftir að segja og
kveðja hann almennilega.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Átt þú þau öll? (börnin)
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu....
myndi millilenda í Sviss að sækja
kærastann og fara til Balí.
Ef þú ættir að dvelja alein á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? Get ekki valið þrjá þar
sem ég á 4 börn.
Nefndu eitthvað þrennt sem þér
finnst þú mega til að gera áður
en þú gefur upp öndina: Verða
hundaeigandi, upplifa ömmuhlut-
verkið og heimsækja Balí.
4 18/2017