Feykir - 10.05.2017, Qupperneq 5
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir,
sem yfirleitt er kölluð Dalla, býr
á Borðeyri í Hrútafirði. Hún varð
á dögunum Íslandsmeistari
í körfubolta með liði sínu
Keflavík en skömmu áður
höfðu Keflavíkurstúlkur einnig
hampað bikarmeistaratitlinum.
Þá var hún kjörin íþróttamaður
USVH fyrir árið 2016. Salbjörg
Ragna er Íþróttagarpur
Feykis að þessu sinni og
svarar nokkrum laufléttum
spurningum.
Hvar ólstu upp? -Þegar ég var
9 ára fluttum við fjölskyldan á
Laugarbakka og nokkrum árum
síðar á Borðeyri þar sem ég hef
búið síðan þá.
Hverra manna ertu? -Mamma
mín heitir Katrín Kristjánsdóttir og
er ættuð úr Dölunum. Pabbi heitir
Sævar Örn Sigurbjartsson og er úr
Víðidal.
Íþróttagrein: -Körfubolti.
Íþróttafélag/félög: -Spila nú
með Keflavík.
Helstu íþróttaafrek: -Varð
Íslandsmeistari í 9. flokki með
uppeldisfélaginu Kormáki, svo
Íslands- og bikarmeistari með
Njarðvík 2012 og svo aftur
Íslands- og bikarmeistari 2017 en
nú með Keflavík.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Ætli titlarnir með Keflavík standi
ekki upp úr.
Neyðarlegasta atvikið: -Það
er þegar mér tókst að skora
sjálfskörfu þegar ég var að keppa
með strákunum í yngri flokkum,
gleymi því sennilega aldrei.
Einhver sérviska eða hjátrú?
-Nei, get ekki sagt það.
Uppáhalds íþróttamaður? -Úff,
ég veit það ekki.
Ef þú mættir velja þér and-
stæðing, hver myndi það vera og
í hvaða grein mynduð þið spreyta
ykkur? -Hmm, ég veit ekki hvern
ég myndi velja en ég væri til í golf.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? -Finnst ólíklegt annað en
að mér yrði rústað, held ég hafi
bara einu sinni farið í golf og þá
hitti ég nánast allt nema kúluna.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Er menntaður ÍAK-
einkaþjálfari frá Keili, er komin
með B.Ed. gráðu og er að klára
M.Ed. í kennaranáminu.
Lífsmottó: -Þetta reddast.
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Ætli
það séu ekki hjónin Hilmar og
Rósa á Kolbeinsá sem eru í miklu
uppáhaldi hjá mér. Þau eru um
áttrætt en Rósa er ein mesta
skvísa sem ég þekki, alltaf hress
og kát og vill allt fyrir alla gera.
Hilmar er algjör indjáni, ótrúlega
sprækur og alltaf til í að fara á
hestbak með mér upp um öll fjöll.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Er á fullu að vinna í
því að klára masters ritgerðina
mína í kennaranáminu svo ég geti
útskrifast í júní.
Hvað er framundan? -Núna
taka við landsliðsæfingar, en
liðið er að fara að taka þátt í
Smáþjóðaleikunum í lok maí -
byrjun júní. Ég verð svo fyrir norðan
í sumar að vinna á Gauksmýri
og fer svo aftur til Keflavíkur um
miðjan ágúst.
Salbjörg Ragna / körfubolti
Íslands- og bikar-
meistari með tveimur
Suðurnesjaliðum
( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@nyprent.is
Harpa Sóley Brynjarsdóttir, stuðningsmaður nr. 1, og Salbjörg Ragna fagna
Íslandsmeistaratitlinum. MYND AF FACEBOOKSÍÐU SALBJARGAR
Körfuknattleiksdeiild Tindastóls
Pétur og Viðar fara ekki fet
Samningar hafa tekist milli
körfuboltadeildar Tindastóls,
Péturs Rúnars Birgissonar og
Viðars Ágústssonar um að
þeir leiki áfram með
meistaraflokksliði félagsins á
næstu leiktíð. Orðrómur hefur
verið um að þeir yfirgæfu
herbúðir Stólanna en Stefán
Jónsson formaður, sem
kominn er í land eftir
mánaðar úthald á sjó, lætur
það ekki gerast á sinni vakt.
„Það kom aldrei til greina að
Pétur færi. Pétur fer ekki fet,“
sagði Stefán ábúðarfullur eftir
að skrifað hafði verið undir í
stofunni á Sjávarborg en þar
býr Björn Hansen stjórnar-
maður og hægri hönd Stefáns.
„Ég held að þetta verði bara
flottur vetur, erum sami
kjarninn og bætum við okkur
tveimur topp leikmönnum,
þannig að mér líst bara mjög
vel á þetta,“ sagði Pétur er
Feykir hafði samband við hann
skömmu eftir undirskrift.
Aðspurður um hvort önnur lið
Pétur Rúnar og Stefán formaður takast
í hendur eftir undirskrift leikmanna-
samnings. MYND AÐSEND MYND
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Silfur og brons á
Öldungamóti
Kormákur blak
Á blakmóti öldunga, sem
fram fór í Mosfellsbæ fyrir
stuttu, átti blakdeild Kormáks
þrjú lið: Birnur sem kepptu í
6.b deild, Birnur-Bombur í 8.a
deild og Húna sem kepptu í
deild 6b.
Húnar, sem voru að keppa í
fyrsta skipti, höfnuðu í öðru
sæti í sinni deild, unnu fjóra
leiki af sex og færðust upp um
deild. Birnur-Bombur hlutu
bronsverðlaun með fjóra unna
leiki og tvo tapaða. Liðin í
öðru til fjórða sæti voru jöfn
að stigum og stigahlutfall réði
sæti. Birnur unnu fyrsta
leikinn en töpuðu hins vegar
öllum hinum eftir að einn
lykilmaður liðsins meiddist
illa á kálfa. Öldungamótið fór
fram á 13 blakvöllum í
Mosfellsbæ. Alls voru kepp-
endur um 1400 talsins og er
það fjölmennasta Öldungamót
frá upphafi. /FE
Birnur-Bombur höfnuðu í 3. sæti í sinni deild.
MYND AF FACEBOOK-SÍÐUNNI KORMÁKUR BLAK
Feykir.is
Smá í Feyki :: Síminn er 455 7171
smáAUGLÝSING
Húsnæði óskast
Óska eftir húsnæði til kaups eða leigu.
Heppileg stærð u.þ.b. 90-130 fm. Bílskúr væri kostur.
Sigrún Hrönn Pálmadóttir sími 8455680
Frjálsíþróttadeild Tindastóls
Margrét nýr
formaður
Formannaskipti urðu á
aðalfundi frjálsíþróttadeildar
Tindastóls sem haldinn var
þann 26. apríl sl. Margrét
Arnardóttir var kjörin
formaður í stað Sigurjóns
Leifssonar, sem ekki gaf kost
á sér áfram en hann hefur
gegnt formennsku frá árinu
2010.
Þær Kolbrún Þórðardóttir
og Thelma Knútsdóttir voru
einnig kjörnar í stjórn deild-
arinnar í stað þeirra Guðrúnar
Ottósdóttur og Hafdísar Ólafs-
dóttur sem gáfu ekki kost á sér
til áframhaldandi stjórnar-
starfa. /PF
Sigurjón býður Margréti velkomna til
embættis. MYND: TINDASTÓLL.IS
Ert þú
áskrif-
andi?
hefðu reynt að krækja í hann
sagði Pétur: „Það voru nokkur
lið sem höfðu samband en ég
ætla að bíða með að fara suður
í skóla og þá kom í rauninni
bara Tindastóll til greina.“
Rétt áður en Feykir fór í
prentun spurðist það út að
Stefán formaður hafi gert
samning við hinn magnaða
varnarjaxl, Viðar Ágústsson í
stássstofunni á Sjávarborg.
Aðspurður hvort hann hafi
fundið fyrir mikilli pressu um
að vera heima enn eitt
tímabilið, segir Viðar að það
hafi ekki verið. „Þetta var bara
spurning um hvort ég ætlaði í
nám. Og þar sem ég er
óákveðinn með það þá ákvað
ég að taka slaginn með
Stólunum. Mér finnst liðið líta
mjög vel út.“ /PF
18/2017 5