Feykir - 10.05.2017, Page 9
Mjúklega um landið læðist líkt og kisa að mús,
vorsins andi vængjaður og vildistíðarfús.
Bráðum mun hann bjóða öllum bjart og opið hús!
Bráðum mun hann leiða lífið létt í gleðidans,
vaxta af krafti í verkum öllum vilja sérhvers manns.
Ekki bregst að örvast getur allt í veldi hans!
Ekki bregst að upp hann vekur allra manna þor,
þeir sem voru þungstígir fá þar sín léttu spor.
Erfitt væri árið hvert ef aldrei kæmi vor!
Erfitt væri allt á lífsins ævistunda för
ef við sæjum seint og illa sólskinsdaga kjör.
Vorið okkur veitir best hin vonarhlýju svör!
Vorið er í vitund okkar valin sólartíð,
eftir vetur aftur skína yndisljósin blíð.
Náttúran með nýjum blóma nærir þjóðarlýð!
Andi vorsins
Rúnar Kristjánsson skrifar
Að vera utan af landi,
búandi í borg óttans
getur verið ævintýrum
líkast.
Sú dásemdargleði sem
umlykur mann þegar
maður fattar að allt sem
maður girnist er innan
seilingar. Kringlan,
Smáralind, IKEA og
Bauhaus, allt bara rétt
hjá. Það koma meira
að segja dagar sem
ég ákveð að nýta mér
þann lúxus að fara í
þessar verslanir og
miðstöðvar bara svona
að gamni mínu, af því
þær eru þarna. En innan
seilingar er kannski frekar
teygjanlegt orðatiltæki
þegar vegalengdirnar á
þessa staði eru ekkert
eins og að skreppa
á milli Ábæjar og
Kaupfélagsins, enda allt í
sitthvoru sveitarfélaginu.
Vegalengdirnar eru heldur
ekkert til að hrópa húrra
yfir þegar klukkan er að
slá fjögur á föstudegi og
ég þarf helst að ná að
fara á alla þessa staði
áður en ég bruna norður í
sæluna. Því norðan heiða
bíða spenntir vinir og
ættingjar eftir varningnum
sínum sem ég lofaði að
redda. Sælan að hafa
allt innan seilingar getur
orðið að bévítans böli
þegar maður lofar að
sækja hitt og þetta, fyrir
þennan og hinn. Svitinn
drýpur af manni að
hlaupa þessar verslanir
endilangar og pirringurinn
stigmagnast þegar
maður situr pikkfastur í
umferðarteppu, blótandi
yfir helvítis bílnum á
undan sem brunaði ekki
yfir gatnamótin um leið
og ljósið varð grænt.
Loksins verður leiðin
greiðari og notalegri og
bensínfóturinn þyngist
æ meir eftir því sem nær
dregur Skagafirðinum.
Ég er komin heim.
Allar sendingar farnar
til nýju eigendanna og
kvöldmatur hjá mömmu
framundan. Ég byrja að
taka mitt hafurtask úr
bílnum og státa mig í
hljóði af því hversu vel ég
fer með að pakka létt. Ég
er ekki fyrr búin að taka
veskið mitt og úlpuna
úr bílnum þegar ég átta
mig á að allt sem ég tók
með í norðurferðina var
annarra manna dót. Mitt
var eftir í Reykjavík fyrir
sunnan.
Agnes Skúladóttir,
105 Reykjavík.
- - - - - -
Ég vil skora á vin minn
hann Eyþór Fannar
Sveinsson, margfaldan
iðnmeistara í hinum ýmsu
greinum..
Agnes Skúladóttir brottfluttur Sauðkrækingur
Reykjavík fyrir sunnan
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN palli@feykir.is
Í síðasta Feyki birtist ljóð Rúnars Kristjánssonar Andi
vorsins en fyrir mistök var felldur út einn stafur sem
breytti merkingu þess. Höfundur er beðinn
afsökunar og birtum því ljóðið á ný.
Reiðhjólahjálmar
til sex ára barna
Kiwanishreyfingin á Íslandsi og Eimskipafélag Íslands
Kiwanishreyfingin á Íslandi og Eimskipafélag Íslands standa
þessa dagana fyrir dreifingu á reiðhjólahjálmum til allra sex
ára barna á Íslandi sem eru nú að ljúka fyrsta bekk í
grunnskóla.
Þetta farsæla samstarf hefur varað frá árinu 2004 og lætur
nærri að Eimskip og Kiwanis hafi fært um 60 þúsund börnum
hjálma frá þeim tíma. Þessi gjöf hefur í gegnum árin margsannað
gildi sitt og mikilvægi þess að nota reiðhjólahjálm.
Það er ómetanlegt fyrir Kiwanishreyfinguna að eiga svona
góðan og sterkan styrktaraðila að og saman stuðlum við að bættu
umferðaröryggi barna í umferðinni.
Kiwanis og Eimskip biðja foreldra að fylgjast með næstu daga
þegar börnin koma heim með hjálmana, til þess að stilla þá rétt
svo þeir hlífi börnunum eins vel og mögulegt er. Til að gjöfin
nýtist sem best og skili tilætluðum árangri er mikilvægt að barnið
noti hjálminn ávallt þegar það hjólar, leikur sér á línuskautum,
hlaupahjóli eða hjólabretti.
Nákvæmar leiðbeiningar fylgja með hjálmunum. /FRÉTTATILK.
Frá afhendingu hjálmanna 1. maí. MYND: KIWANIS
18/2017 9
Harðindi
VETURINN FRÁ NÝÁRI 1802 varð hinn harðasti
er menn mundu og langstæður mjög. Var
hann síðar nefndur Langjökull. Hafísinn fór
ekki af Skagafirði fyrr en 14. ágúst og
„fuglafli við Drangey var öldungis enginn.“
Stóran hval hafði rekið í Málmey í vikunni
fyrir páska en bóndinn þar leyndi hval-
rekanum svo að fáum varð að gagni og hlaut
bóndi svo mikið ámæli fyrir að hann hraktist
úr eyjunni. Hins vegar rak sléttbak á
Naustum við Hofsós „og höfðu margir gott
af honum.“
Á þinginu á Skefilsstöðum 16. júlí 1802
var tekið réttarpróf vegna þess að landsetar
Reynistaðarklaustursjarða og Hólastólsjarða
óskuðu að bókuð yrði og staðfest umkvörtun
þeirra yfir bágindum í yfirstandandi harðæri
til lands og sjóar því „hér er enn nú í þessari
Ketusókn svo gróðurlaust að varla er sýni-
legt að tún verði nokkurn tíma á þessu sumri
ljáborin, því síður úthagi og fyrir utan þau
svokölluðu Björg í þessari þingsókn játa
þingvitnin að ei sjáist enn nú grænt strá í
hlaðbrekkum og af sjónum hefir engin björg
fengist þar hann er enn nú ei skipgengur
fyrir hafís. Svo afsaka áðurnefndir landsetar
sig frá að geta næstkomandi vetur haldið lífi
í þeirra jarðarkúgildum, hvað ei er heldur
sýnilegt áðurtaldra orsaka vegna, líka sem
og svo því að geta betalað leigur eftir þau
sem vegna gróðurs og grasleysis [verða]
mjög svo gagnslítil og sums staðar gagnslaus.
Óska því að þeim sýnist vorkunn og þeirra
mjög svo bágborna ásigkomulag berist undir
hlutaðeigandi yfirvöld og biðja innilega fyrir
að þeir mættu fríast frá helmingi af þeim
kúgildum...“
/ Byggðasaga Skagafjarðar 1. bindi, bls. 131.
( BYGGÐASÖGUMOLI ) palli@feykir.is