Feykir - 10.05.2017, Qupperneq 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Flóki, Kristinn, Fjalar og Bolli.
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Hvernig heldur
þú að Svölu gangi
í Júróvísion?
Spurt í Árskóla
UMSJÓN palli@feykir.is
„Ég held að hún eigi eftir að
rúlla þessu upp.“
Diljá Ægisdóttir
Finna skal karlmannsnafn
úr hverri línu.
Svör neðst á síðunni.
Ótrúlegt en kannski satt...
Strandveiðar á Íslandi eru háðar sérstöku leyfi Fiskistofu sem
gefið er út til leyfisumsækjanda uppfylli hann skilyrði útgáfu
strandveiðileyfis. Strandveiðileyfin eru bundin við tiltekin
landsvæði og er heimilt að veiða á handfæri allt að 9.200 lestir af
óslægðum botnfiski á þessu ári. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er
bannað að veiða fisk á úlfaldabaki í Idaho í Bandaríkjunum.
Mexíkanskt lasagna,
sósa og salat
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN frida@feykir.is
Jenný og Arnar fluttu frá
Njarðvík á Hvammstanga í
október í fyrra ásamt tveimur
börnum sínum, öðru í leikskóla og hinu í 5. bekk, og sjá ekki eftir
því. Jenný tók við starfi sviðsstjóra á fjölskyldusviði í Húnaþingi
vestra, Og Arnar er stuðningsfulltrúi í grunnskólanum. „Lífið á
Hvammstanga hefur verið einstaklega ljúft og erum við búin að
koma okkur vel fyrir og höfum við kynnst mörgu frábæru fólki,“
segja þau.
„Flestir fjölskyldumeðlimir fá heitan mat í hádeginu, þá er nú oftast
eitthvert snarl á kvöldin og njótum við því að elda góðan mat um helgar.
Í uppáhaldi hjá okkur öllum er folaldakjöt. Það er yfirleitt bara kryddað
og grillað eða sett á pönnu með engri olíu, gott salat og einhverjar
skemmtilegar kartöflur hafðar með. Við borðum líka mikið af fersku
salati og ristum við helst alltaf einhver fræ útí það. Galdurinn við að
gera salatið enn betra er að setja fetaost yfir salatið og hella svo heitum
fræjum yfir hann. Okkur langar að deila með ykkur sitt litlu af hverju,
einum kjúklingarétti sem er vinsæll hjá okkur, góðu spínatsalati og sósu
sem við fáum ekki leið á,“ segja matgæðingarnir Jenný og Arnar.
Matgæðingar vikunnar eru
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir og Arnar Svansson
Tilvitnun vikunnar
Það er allt fyndið svo lengi sem það kemur fyrir
einhvern annan. – Will Rogers
RÉTTUR 1
Mexíkanskt lasagna
1 stk rauðlaukur
1 stk rauð paprika
4 kjúklingabringur
mexikanskt krydd í bréfi
2 krukkur salsasósa
1 dós (400 g) rjómaostur
4 burito vefjur
rifinn ostur
Aðferð: Steikið grænmetið og
kjúklinginn saman og kryddið,
salsasósur og rjómaostur sett
saman í pott og hitað þangað til
rjómaosturinn er bráðnaður. Setj-
ið þá allt saman, grænmetið,
kjúklinginn og sósuna. Leggið eina
vefju í eldfast mót og ausið sósunni
með innihaldinu yfir, setjið aðra
vefju og gerið eins þangað til mótið
er orðið fullt og stráið rifnum osti
yfir og bakið þangað til osturinn er
bráðnaður. Borið fram með
Nachosi.
„Þetta er flott lag. Ég held
hún komist áfram.“
Alma Karen Snæland
„Ég held að henni eigi eftir
að ganga vel og að hún
komist áfram.“
Snæfríður Ægisdóttir
Jenný og Arnar. MYND ÚR EINKASAFNI
„Júróvísion? Það hef ég ekki
hugmynd um. Fylgist mjög
lítið með þessu.“
Ragnar Ágústsson
RÉTTUR 2
Æðisleg sósa með
grillinu í sumar
„Þessi sósa er mikið notuð á okkar
heimili, sérstaklega með grilluðum
mat. Hún er góð með öllum mat en
þó sérstaklega með grilluðum
kjúklingi og sætum kartöflum.“
1 dós sýrður rjómi, við notum
alltaf 18%
1 hvítlauksrif
biti af engiferrót, gott er að miða
við svipaða stærð og hvítlauksrifið.
Aðferð: Pressið hvítlaukinn og
engiferrótina saman við sýrða
rjómann í sitthvoru lagi og hrærið.
Ef ykkur finnst þetta vera of sterkt
þá minnkið hvítlaukinn og engi-
ferrótina.
RÉTTUR 3:
Spínatsalat
1 rauðlaukur
100 g waterchestnuts
1 poki frosið spínat (afþýtt)
1 pk. púrrulaukssúpa
1 dós sýrður rjómi
3 msk Grísk jógurt
Aðferð: Takið spínatið og leggið á
þerripappír og reynið að vinda
vökvann eins vel og þið getið. Saxið
laukinn og hneturnar smátt og
setjið í skál, Klippið spínatið einnig
smátt og bætið út í. Sigtið súpuna
yfir þannig að ekki fari neitt gróft úr
henni í salatið. Bætið sýrðum rjóma
og jógúrtinu saman við og hrærið.
Mjög gott er að gera þetta salat
daginn áður en á að borða það.
Borið fram með brauði eða kexi.
Verði ykkur að góðu!
„Ég veit ekki hvernig ég á að
svara þessari spurningu. Hún
vinnur, er það ekki?“
Herjólfur Hrafn Stefánsson
18/2017 11
Vísnagáta
Í ullarreyfi oft hann finnst.
Ennþá er til trúuð sál.
Úr gömlum gólfum hennar minnst.
Gestum rétt á undirskál.