Feykir - 12.07.2017, Qupperneq 1
27
TBL
12. júlí 2017
37. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
„
BLS. 6–8
BLS. 9
Húnavakan 2017 er um
helgina á Blönduósi
Fjölbreytt og
metnaðarfull
dagskrá í fjóra daga
BLS. 5
Kristján Már Kárason er
nýkominn frá Suður Afríku
Veiðimaður fram
í fingurgóma
Hreindís Ylva svarar
Tón-lystinni
Skældi yfir lögum
söngkonunnar
Carrie Underwood
Meistaraknapinn Þórarinn Eymundsson og Narri frá Vestri-
Leirárgörðum eru komnir í landslið hestamanna sem keppir
á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fer í Eind-
hoven 7.-14. ágúst. Þetta varð ljóst eftir að þeir félagar
enduðu í öðru sæti í fimmgangi á Íslandsmóti fullorðinna á
Gaddstaðaflötum um helgina.
Þeir Þórarinn og Narri fengu einkunnina 7,88 en Þórarinn
Ragnarsson og Spuni frá Vesturkoti sigruðu með 8,21. Þar sem
Spuni er ekki að fara úr landi er það mat landsliðseinvalds að
þeir félagar Þórarinn og Narri taki landsliðssætið.
„Narri er með afburðar jafnvægi bæði andlega og á gang-
tegundum. Auk þess að hafa mikla útgeislun og myndarskap,“
segir Þórarinn sem er ánægður með árangurinn. „Ég er mjög
sáttur en samt leiður í aðra röndina þar sem hesturinn er að
verða svo góður. En þeir þurfa líka að vera góðir til að vinna
gull fyrir Íslands hönd,“ segir Þórarinn. /PF
Þórarinn og Narri með hörkusýningu á Íslandsmóti fullorðinna um síðustu helgi. MYND: BJARNEY ANNA ÞÓRSDÓTTIR
Enn bætast Skagfirðingar í landsliðið
Þórarinn og Narri á Heimsmeistaramót hestamanna
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Velkomin til Pacta lögmanna
& 440 7900 pacta@pacta.is
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
www.lyfja.is
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Eins og Feykir hefur áður greint frá sendi
Sveitarfélagið Skagafjörður nýlega erindi
til sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu
þess efnis að sveitarfélögin Skagabyggð
og Skagafjörður hafi átt í óformlegum
viðræðum um sameiningu sveitarfélag-
anna. Eru önnur sveitarfélög á svæðinu
sem áhuga hafa á að ræða enn stærri
sameiningu einnig boðin velkomin til
viðræðna.
Byggðaráð Blönduóss tók erindið
fyrir á fundi sínum þann 4. júlí sl.
Byggðaráð er hlynnt sameiningu
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og
telur nauðsynlegt að fækka sveitar-
félögum til að styrkja sveitarstjórnar-
stigið á svæðinu. Eftirfarandi bókun
var samþykkt á fundinum: „Byggðaráð
telur ástæðu til að sveitarstjórnir í
A-Hún ræði erindið á sameiginlegum
fundi sveitarstjórna í A-Hún þar sem
sameining sveitarfélaga, þar með talin
Sveitarstjórnir ræða sameiningarmál
Fundur fyrirhugaður í ágúst
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Þú hringir í síma 540 2700
framangreint verði til umfjöllunar.
Dagsetning slíks fundar er fyrirhuguð
fimmtudaginn 24. ágúst.“
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps tók
málið einnig fyrir á fundi sínum þann
5. júlí sl. Telur sveitarstjórn ástæðu til
að sveitarstjórnir í Austur-Húna-
vatnssýslu ræði erindið sameiginlega.
Þá tók sveitarstjórn Skagastrandar
erindið fyrir á fundi sínum þann 29.
júní eins og áður hefur verið greint
frá á Feyki.is. Taldi sveitarstjórn
ástæðu til að sveitarstjórnir í Austur-
Húnavatnssýslu ræddu erindið sam-
eiginlega. /FE