Feykir - 12.07.2017, Qupperneq 2
Alltaf skal það koma manni jafn mikið á óvart hvað
tíminn flýgur hjá. Maður merkir það á mörgu, áramótin
eru nýbúin og allt í einu er
komin 28. vika ársins, sumarið
er varla byrjað en samt er það
hálfnað, ég var að setja punktinn
aftan við síðasta leiðara en samt
er ég að skrifa nýjan, hálfum
mánuði síðar. Og alltaf skal það
koma mér jafn mikið á óvart að
nú sé röðin komin að mér og
enn og aftur er ég ekki búin að
upphugsa neitt háfleygt efni til
að fjalla um.
Ef ég hugsa nú aðeins lengra aftur í tímann þá er ég líka
nýorðin stúdent en samt styttist í að ég geti skráð mig í dvöl
eldri borgara á Löngumýri. Það er nú vissulega eitthvað til
að hlakka til.
Ég skrapp í heimsókn til þeirra í síðustu viku. Það var
gaman. Það er svo gaman að sjá hvað eldra fólk virðist alltaf
vera að yngjast, ekki kannski í árum en alla vega í útliti og
anda. Ég man að þegar ég var tíu ára fannst mér fólk,
sérstaklega konur, á þeim aldri sem ég er á í dag alveg
afgamlar, hvað þá þær sem komnar voru yfir sjötugt eða
áttrætt. Og ég er viss um að þær voru mikið fullorðinslegri
þá en þær eru í dag. Þetta held ég að sé að miklu leyti
hugarástandi að þakka og því að nú til dags þykir sjálfsagð-
ur hlutur að eldra fólk taki þátt í hvers kyns félagsstarfi og
íþróttum sem stytta því stundirnar og hressa upp á andann.
Þar eigum við líka fólki eins og Þóreyju, Önnu Huldu og
Gunnari á Löngumýri og öðrum þeim sem starfa með eldri
borgurum mikið að þakka. Þau vinna ómetanlegt starf sem
ber að þakka. Ég ætla bara að vona að þau sjái enn um
dagskrána á Löngumýri þegar röðin kemur að mér að koma
þangað sem eldri borgari í dvöl.
Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður
LEIÐARI
Tíminn flýgur
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Jafningjafræðslan í heimsókn
Hvammstangi
Í síðustu viku fengu unglingarnir í vinnuskólanum
á Hvammstanga heimsókn frá jafningjafræðsl-
unni. Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að
dagurinn hafi gengið prýðilega og veðrið hafi
leikið við krakkana.
Á námskeiðum jafningjafræðslunnar er boðið
upp á góða og hnitmiðaða fræðslu sem mælir með
heilbrigðum lífstíl. Hugmyndafræði jafningja-
fræðslunnar er í stuttu máli sú að „ungur fræðir
unga“. Á námskeiðunum eru ungmennin frædd
um margvísleg málefni, spurningum þeirra er
svarað og farið er í skemmtilega og fræðandi
hópeflisleiki. Lögð er áhersla á gildi góðrar
sjálfsmyndar, heilbrigðan lífsstíl, ókosti vímuefna-
neyslu og samskipti í raunheimum og á netmiðlum.
Jafningjafræðslan er hópur ungmenna á
aldrinum 17-21 árs. Þau koma frá Reykjavík,
Seltjarnarnesi og Kópavogi og hafa mjög
fjölbreyttan bakgrunn og hæfileika. Starfið er
mjög krefjandi og fræðarar verða að vera vel í stakk
búnir til að taka á móti fyrirspurnum af ýmsu tagi
og þess vegna hljóta allir jafningjafræðarar þriggja
vikna þjálfun áður en lagt er upp í fræðslu. Á
undirbúningsnámskeiðinu fá fræðararnir fræðslu
frá fagaðilum sem endurspeglar ungmenna-
menningu hvers tíma ásamt þjálfun í raddbeit-
ingu, framkomu og því hvernig gott er að vinna
með hópa og einstaklinga innan þeirra. /FE
Leysir framkvæmdastjóra LK af
Axel Kára þjónar kúabændum
Sagt er frá því á vef Lands-
sambands kúabænda að körfu-
boltakappinn í Tindastól, Axel
Kárason, muni leysa sveitunga
sinn úr Skagafirði, Margréti
Gísladóttur framkvæmdastjóra
samtakanna, af í hlutastarfi frá
1. ágúst til 1. janúar 2018. Þar
sem Margrét er að fara í
fæðingarorlof mun skrifstofa
LK verða lokuð frá 1. júlí – 1.
ágúst en brýnum erindum skal
beint til Arnars Árnasonar,
formanns LK, yfir þann tíma.
Axel mun hafa starfsað-
stöðu bæði á skrifstofu sam-
takanna í Bændahöllinni í
Reykjavík sem og á heimili
sínu í Skagafirði. Aðspurður
segir Axel starfið felast að
mestu í því að fylgja eftir
hinum ýmsu verkefnum sem
LK er nú þegar að vinna að.
„Þannig að það má segja að ég
eigi að viðhalda skriðþungan-
um hennar Margrétar,“ segir
hann og spurður út í hvað
hugsanlega taki við eftir 1.
janúar 2018 segir Axel: „Ég hef
nú ekki velt árinu 2018 mikið
fyrir mér, hér á ekki asinn við.
Þú verður að spyrja Stefán
Jónsson, formann körfuknatt-
leiksdeildar Tindastóls, hvar
ég eigi eftir að halda heimili.
Örlög mín eru að miklu leyti í
hans höndum.“ /PF
Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra var 410.899 kg sem skiptist þannig á hafnir:
Á Skagaströnd var landað 57.718 kg, aflahæst var Katrín GK 266 með 12.471 kg, á
Sauðárkróki var 337.581 kg landað, þar var Málmey SK 1 aflahæst með 167.781 kg, Geisli
SK 66 landaði mestu á Hofsósi eða 3.914 kg en þar var landað 10.738 kg og loks landaði
Bergur Vigfús 4.892 kg á Hvammstanga. /FE
AFLATÖLUR 2.–8. júlí 2017 á Norðurlandi vestra
Tæp 411 tonn á land í vikunni
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 19.454
Fannar SK 11 Landbeitt lína 1.510
Farsæll SH 30 Rækjuvarpa 32.287
Gammur II SK 120 Þorskfisknet 1.552
Hafey SK 10 Handfæri 1.054
Helga Guðmundsd. SK 23 Handfæri 826
Klakkur SK 5 Botnvarpa 109.080
Kristín SK 77 Handfæri 446
Maró SK 33 Handfæri 1.015
Málmey SK 1 Botnvarpa 167.781
Már SK 90 Handfæri 898
Óskar SK 13 Handfæri 254
Tara SK 25 Handfæri 405
Vinur SK 22 Handfæri 1.019
Alls á Sauðárkróki 337.581
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 3.299
Geisli SK 66 Handfæri 3.914
Leiftur SK 136 Handfæri 426
Skáley SK 32 Handfæri 1.673
Þorgrímur SK 27 Landbeitt lína 1.426
Alls á Hofsósi 10.738
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 43 Lína 4.862
Alls á Hvammstanga 4.862
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Handfæri 254
Beggi á Varmalæk HU 219 Handfæri 1.131
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 2.908
Blíðfari HU 52 Handfæri 2.399
Dagrún HU 121 Þorskfisknet 1.665
Dísa HU 91 Handfæri 20
Elín ÞH 82 Handfæri 2.255
Garpur HU 58 Handfæri 527
Geiri HU 69 Handfæri 2.763
Greifinn SK 19 Handfæri 1.428
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 3.009
Gyðjan HU 44 Handfæri 687
Hafdís HU 85 Handfæri 2.258
Hafey SK 10 Handfæri 948
Húni HU 62 Handfæri 2.169
Jenný HU 40 Handfæri 2.306
Kambur HU 24 Handfæri 1.815
Katrín GK 266 Landbeitt lína 12.471
Kópur HU 118 Handfæri 1.390
Kristín SK 77 Handfæri 796
Lukka EA 777 Handfæri 1.926
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 2.426
Már HU 545 Handfæri 1.918
Már SK 90 Handfæri 429
Ólafur Magnússon HU 54 Handfæri 965
Svalur HU 124 Handfæri 1.249
Sæunn HU 30 Handfæri 3.070
Víðir EA 423 Handfæri 2.536
Alls á Skagaströnd 57.718
Axel. MYND: AÐALSTEINN ORRI ARASON
Sólarhringstörn í hægvarpi
Ásgeiri Trausti
Húnvetningurinn Ásgeir Trausti
og félagar hans stóðu í ströngu
fyrir helgi er þeir léku og tóku
upp tugi laga sleitulaust í
sólarhring. RÚV sendi beint frá
gjörningnum úr stúdíói Hljóð-
rita í Hafnarfirði á RÚV 2 og
RÚV.is í svokölluðu hægvarpi.
Flutningur Ásgeirs á lagi
Megasar, Tveimur stjörnum,
vakti mikla athygli en hann
flutti lagið tvisvar þar sem hann
ruglaðist eilítið í textanum í
fyrra skiptið. Ásgeir ákvað að
gefa bæði eintökin Rúv til
varðveislu, en á hinum hliðum
platnanna eru lög eftir Ásgeir
sjálfan.
„Það er mikið gleðiefni að fá
þessa plötu til varðveislu því
hún er ekki einasta vitnis-
burður um frábæran tónlistar-
mann heldur einnig alveg ein-
stakan og sögulegan
sjónvarps- og tónlistarviðburð
sem á efalaust eftir lifa lengi í
minnum fólks,“ sagði Skarp-
héðinn Guðmundsson dag-
skrárstjóri í viðtali við Rúv.is.
/PF
2 27/2017