Feykir - 12.07.2017, Side 4
Meistaramót Íslands í frjálsum
Tveir skagfirskir
Íslandsmeistarar
Um helgina kom besta
frjálsíþróttafólk landsins
saman á Selfossi til að
berjast um meistaratitlana á
Meistaramóti Íslands í
frjálsíþróttum. Alls voru
keppendur um 200 talsins,
þar á meðal Skagfirðingarnir
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir
og Ísak Óli Traustason.
Þau Þóranna og Ísak gerðu
sér lítið fyrir og unnu sínar
greinar, Þóranna í hástökki
kvenna er hún sveif yfir 1,72m.
Á heimasíðu Tindastóls segir
að þar með hafi hún sett nýtt
skagfirskt héraðsmet utanhúss.
Gamla metið átti hún sjálf,
1,67m, sett á Gautaborgar-
leikunum 2014. Kristín Lív
Svabo Jónsdóttir veitti Þórönnu
harða keppni en hún stökk yfir
sömu hæð en felldi oftar rána í
keppninni.
Ísak Óli varð Íslandsmeistari
í 110m grindahlaupi karla,
hljóp á 15,26sek, sem er besti
tími hans í sumar. Næstur kom
Árni Björn Höskuldsson FH
með tímann 15,64. Mótsmetið,
14,10 sek, á Jón Arnar Magnús-
son, sem hann setti árið 1998
en hann keppti fyrir UMSS. /PF
Pollamót Þórs
Þrymur Lávarðameistarar
Um síðustu helgi fór fram á Akureyri hið
geysivinsæla Pollamót Þórs þar sem kempur
kvenna og karla í eldri kantinum rifja upp
gamla takta í knattspyrnu. Mótið er haldið
jafnhliða N1 mótinu sem KA stendur fyrir og
er ætlað yngstu fótboltaiðkendum landsins.
Hið fornfræga félag, Þrymur, tók þátt sem
oft áður og kom sá og sigraði í Lávarðadeildinni
sem ætluð er spilurum eldri en 38 ára. „Þetta
var rosalega gaman. Við unnum Real Grímsey í
vítaspyrnukeppni í úrslitunum. Þetta var sætur
sigur og ekki síst vegna þess að að við vorum
með hálf vængbrotið lið, markmannslausir og
upptekna pabba á N1 mótinu,“ sagði Óli Viðar
Andrésson er Feykir hafði samband við hann í
gær. /PF
Gullfallegir drengir í Þrymsbúningum og sigurvegarar Lávarðadeildarinnar. MYND: ÖGMUNDUR ARNARSON
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Tvö töp hjá Tindastóli
2. deild karla
Eftir ágætt gengi seinni
partinn í júní hófu Tinda-
stólsmenn júlímánuð með því
að lúta tvívegis í gras. Fyrst
kom tap á Húsavík og síðan
skelltu sprækir Seyðfirðingar
Stólunum sl. laugardag.
Völsungur-Tindastóll 2-1
Lið Húsvíkinga og Tindastóls
voru á svipuðum slóðum í
deildinni fyrir leik. Kenny
Hogg náði forystunni fyrir
Tindastól á 41. mínútu en
heimamenn jöfnuðu skömmu
síðar og staðan 1-1 í hálfleik.
Um miðjan síðari hálfleik var
síðan Brentton Muhammad,
markvörður Tindastóls, rek-
inn af velli og voru Stólarnir
ekki sáttir við þá ákvörðun
dómarans. Þar sem Brentton
er eini markvörður liðsins
þessa dagana þá fór varnar-
jaxlinn Ísak Sigurjónsson í
markið. Hann hafði ekki
staðið þar lengi þegar heima-
menn gerðu sigurmark leiks-
ins.
Tindastóll-Huginn 0-1
Þegar Seyðfirðingar komu í
heimsókn vantaði Brentton í
markið og Benni var sömu-
leiðis meiddur. Gísli Eyland
Sveinsson bjargaði Stólunum
enn einu sinni fyrir horn með
því að taka hanskana af hill-
unni. Hann kom þó engum
vörnum við þegar Blazo
Lalevic skoraði með hörku-
skoti á 33. mínútu. Lið Hugins
var sterkara í fyrri hálfleik en í
þeim síðari voru Tindastóls-
menn meira með boltann en
sköpuðu sér fá marktækifæri.
Að lokinni fyrri umferð 2.
deildar eru Stólarnir í tíunda
sæti en tólf lið eru í deildinni.
Næstu leikir eru hér heima
gegn botnliðum Sindra og
Fjarðarbyggðar. /ÓAB
Kvennaboltinn
Fyrsti sigurinn í 1. deildinni loksins í höfn
Kvennalið Tindastóls lék sl.
föstudag við lið ÍR í 1. deild
kvenna í knattspyrnu. Þrátt
fyrir fína frammistöðu í
bikarnum þá hafði stelpunum
ekki tekist að ná sigri í 1.
deildinni og fyrir leikinn var
liðið aðeins með eitt stig að
loknum átta leikjum. Það var
því vel fagnað í leikslok þegar
fyrsti sigur sumarsins varð
staðreynd eftir dramatískan
hörkuleik gegn Breiðhylt-
ingum. Lokatölur 3-2.
Stelpurnar léku svo gegn
Keflavík sl. mánudag syðra og
var um hörkuleik að ræða. Eva
Banton kom Stólunum yfir á
18. mínútu en sú staða varði
ekki lengi því Anita Lind
Daníelsdóttir jafnaði metin
aðeins mínútu síðar. Aníta var
ekki alveg hætt því undir lok
leiksins kom hún heimastúlkum
yfir og þar við sat. Naumt tap
gegn sterkum Keflavíkurstúlk-
um. Tindastóll situr á botninum
ásamt Víkingi Ólafsvík með
fjögur stig en á toppnum trónir
Þróttur Reykjavík með 18 stig.
Lið Tindastóls hefur verið að
ná betur og betur saman eftir
því sem hefur liðið á sumarið.
Aðeins tveir leikir hafa tapast
stórt; fyrsti leikurinn gegn ÍA
fór 6-0, þar sem erlendir leik-
menn liðsins voru ekki komnir
með leikheimild, og síðar hafði
Selfoss betur 1-4. Aðrir tapleikir
hafa tapast með einu marki. /PF
& ÓAB
Mynd: Fernando Bethencourt Muñoz. MYND ÚR EINKASAFNI.
Þrír Stólar í æfingahóp
Körfuboltalandsliðið
Craig Pedersen, þjálfari landsliðs karla, og
aðstoðarþjálfarar hans Arnar Guðjónsson og
Finnur Freyr Stefánsson, hafa valið og boðað 24
leikmenn sem munu mæta til æfinga þann 20.
júlí þegar æfingar hjá landsliðinu hefjast.
Þrír af þeim verða leikmenn Tindastóls
næsta tímabil; þeir Axel Kárason, Sigtryggur
Arnar Björnsson og Pétur Rúnar Birgisson.
Á vef KKÍ segir að hópurinn verði minnk-
aður fljótlega niður í hóp 14 til 15 leikmanna
sem æfir saman í sumar og úr honum verður
svo valið endanlegt tólf manna lið sem heldur út
til Finnlands á lokamót EM, EuroBasket 2017.
Landsliðið mun undirbúa sig fyrir EM með
æfingaleikjum gegn Belgíu hér heima 27. og 29.
júlí og fara í tvær æfingaferðir fyrir EM. /PF
4. deildin í knattspyrnu
Allt á uppleið
Fjórðudeildar liðin á Norður-
landi vestra, Drangey og
Kormákur/Hvöt eru á sigur-
braut í 4. deildinni en þau
léku bæði um síðustu helgi.
Kormákur/Hvöt fékk
Úlfana í heimsókn á laugar-
deginum og endaði leikurinn
4-2 fyrir heimamenn. Skagfirð-
ingarnir Arnar Skúli, Arnar
Ingi og Árni Einar Adolfsson
voru drjúgir og skoruðu mörk
Kormáks/Hvatar. Gunnar Axel
Böðvarsson og Steinar Haralds-
son voru markaskorarar gest-
anna.
Drangey fékk Álafoss í
heimsókn sl. sunnudag og fór
sá leikur 3-2 fyrir heimamenn.
Markaskorarar leiksins voru
þeir Guðni Þór Einarsson,
Jóhann Daði Gíslason og Ágúst
Friðjónsson fyrir Drangey og
Patrekur Helgason og Haf-
steinn Freyr Ómarsson fyrir
gestina. Drangey situr í 6. sæti
D riðils en Kormákur/Hvöt í 5.
sæti C riðils. /PF
4 27/2017