Feykir - 12.07.2017, Síða 5
Tilefni þessa stutta pistils er
hvatning. Hvatning til ykkar sem
hafið með umönnun barna að gera.
Börnin eru það dýmætasta í þessum
heimi. Upp á þau þarf að passa.
Samvistir við foreldra og ástvini
skipta miklu fyrir eðlilegan þroska og
andlega vellíðan barna. Því er vert að
huga að því hvernig hægt sé að auka
þessar samvistir eins og hægt er. Ég
vil hér kasta fram einni hugmynd.
Nú blasir verslunarmannhelgin við
handan við hornið. Þessi helgi er við-
kvæm fyrir marga og því tilvalin fyrir
fjölskyldur að þjappa sér saman og fara
fallega með lífið. Síðastliðin 20 ár hefur
Unglingalandsmót verið haldið þessa
helgi á vegum UMFÍ. Nú er svo komið
að heil kynslóð hefur alist upp við það að
fara á Unglingalandsmót og margir vilja
alls ekki missa af þessu þrátt fyrir að vera
komnir af aldri. Það sem mestu skiptir
þar eru minningarnar sem skapast í
samverunni. Að upplifa stemmningu
sem sameinar alla í því markmiði að eiga
góðar stundir við leik, keppni og
skemmtun.
Næstkomandi verslunarmannhelgi
fer fram Unglingalandsmót UMFÍ á
Egilsstöðum. Unglingalandsmót UMFÍ
eru vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð
sem haldin eru árlega. Mótin eru ætíð
miðuð við fjölskyldufólk og mikið er
gert til þess að tryggja að allir skemmti
sér vel, saman. Keppni er fyrir þá sem
eru á aldrinum 11 - 18 ára. Allir geta
tekið þátt, óháð því hvort viðkomandi sé
í einhverju íþróttafélagi eða ekki. Ýmiss
konar afþreying er svo í boði fyrir
systkini, foreldra og aðra yfir daginn að
ógleymdum kvöldvökunum þar sem
allir koma saman.
Keppnisgreinar eru fjölbreyttar svo
allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Nú er bara að safna í lið eða reyna fyrir
sér í einhverju nýju. Greinarnar eru:
Boccia - Bogfimi - Fimleikalíf - Fjalla-
hjólreiðar - Frisbígolf - Frjálsar íþróttir -
Glíma - Golf - Götuhjólreiðar - Hesta-
íþróttir - Knattspyrna - Kökuskreytingar
- Körfuknattleikur - Motocross - Ólymp-
ískar lyftingar - Rathlaup - Skák - Staf-
setning - Strandblak - Sund - UÍA
þrekmót - Upplestur og Íþróttir fatlaðra.
Mótið hefst föstudaginn 4. ágúst og
lýkur um miðnætti sunnudaginn 6.
ágúst. Þó er sú undantekning að keppni í
golfi fer fram á fimmtudeginum 3. ágúst.
Skráning á mótið fer fram á heimasíðu
UMFÍ og hefst 1. júlí. Þátttökugjald er
kr. 7.000.- og er best að greiða það við
skráningu. UMSS mun greiða þessi þátt-
tökugjöld niður um kr. 3.500.- fyrir sína
keppendur. Lokað er fyrir skráningu á
miðnætti sunnudaginn 24. júlí.
Allir sem hafa greitt keppnisgjaldið
geta tekið þátt í öllum viðburðum án
nokkurs annars kostnaðar. Keppa má í
eins mörgum keppnisgreinum og hver
og einn vill og getur.
Ókeypis er fyrir þátttakendur og
fjölskyldur á tjaldsvæði mótsins. Sér-
stakar reglur gilda á tjaldsvæðinu sem
öllum ber að fara eftir og á það ekki síst
við um neyslu áfengis. Aðgangur að
rafmagni á tjaldsvæðinu er fyrir hendi
en rukkað er lágmarksgjald kr. 4.000 -
fyrir alla helgina.
Vil ég hvetja alla krakka, vini, vin-
konur, foreldra, forráðamenn, ömmur,
afa, frændur og frænkur í Skagafirði að
taka sig saman og halda til Egilsstaða um
verslunarmannahelgina í góðra vina
hóp. UMSS hefur ætíð sent góðan fjölda
keppenda á þetta mót og er þetta fastur
liður í lífi margra fjölskyldna í Skagafirði.
Nú vonum við að það bætist í hópinn.
Við viljum minna á að einstaklega flottar
rauðar þægilegar bómullar hettupeysur
eru til sölu á Skrifstofu UMSS, Víðigrund
5, fyrir alla þá sem fara og alla sem
langar að skarta svona flottri peysu. Þær
má merkja með UMSS, sínu aðildarfélagi
(t.d U.M.F Hjalti) og setja uppáhalds
íþróttagreinina sína á ermina. Endilega
pantið ykkur peysu sem fyrst.
Gaman væri að sjá rauðan samstilltan
hóp ganga fylktu liði inn á völlinn á
Egilsstöðum 4. ágúst næstkomandi.
Góða skemmtun!
Arnrún Halla Arnórsdóttir
Formaður UMSS
AÐSENT : Arnrún Halla Arnórsdóttir
Kæru Skagfirðingar
Frá Unglingalandsmóti UMFÍ á Króknum 2014. MYND: ÓAB
Húnavakan 2017
Fjölbreytt og metnaðarfull dagskrá í fjóra daga
Húnavakan á Blönduósi
verður haldin að vanda þriðju
helgina í júlí eða dagana
13.-16. júlí næstkomandi.
Húnavakan hefur áunnið sér
fastan sess meðal bæjar-
hátíða landsins en hún hefur
verið haldin í núverandi mynd
síðan árið 2006 þegar hún
tók við af hátíðinni Matur og
menning sem haldin var á
Blönduósi um árabil.
Dagskráin þetta árið er hin
veglegasta. Á fimmtudagskvöld
er því beint til íbúa bæjar og
sveita að skreyta hús sín og
garða og er að þessu sinni hvatt
til sameiginlegs þema með
skreytingum í rauðum lit og
ísbjarnarlógói. Eftir að allt er
orðið skínandi fínt eru göturnar
eða hverfin hvött til að grilla
saman. Klukkan 22 um kvöld-
ið verður svo Blö Quiz í
félagsheimilinu og verða veitt
verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Á föstudag verður opið hús hjá
fjölmörgum fyrirtækjum á
staðnum þar sem gestir og
gangandi eru boðnir velkomnir
til að kynna sér starfsemina og
hjá mörgum þeirra er boðið
upp á spennandi tilboð.
Kvennaskólinn, Þekkingar-
setrið, Textílsetrið og Vinir
Kvennaskólans taka á móti
gestum milli klukkan 13 og 17
og kynna starfsemi Kvenna-
skólans og bjóða jafnframt upp
á leiðsögn um Minjastofu
skólans og Vatnsdælu.
Hátíðin verður svo form-
lega sett á torginu framan við
félagsheimilið kl. 18:45 þar sem
umhverfisverðlaun Blöndu-
óssbæjar verða veitt en að því
loknu hefst risa kótelettukvöld
og skemmtun í félagsheimil-
inu. Um kvöldið spilar hljóm-
sveitin Feðgarnir á Retro á
Hótel Blönduósi og í félags-
heimilinu verður stórdansleik-
ur með Á móti sól.
Á laugardag verður hægt að
kaupa sér útsýnisflug hjá
flugklúbbi Blönduóss ef veður
leyfir milli kl. 9 og 17. Kl. 11
hefst Blönduhlaup USAH við
félagsheimilið og á sama tíma
hefjast söngprufur fyrir Míkró-
húninn sem er söngkeppni fyrir
börn. Eftir hádegið verður
fjölbreytt dagskrá í boði fyrir
unga sem aldna, m.a. markaðs-
stemning við félagsheimilið,
Míkróhúnninn, Gunni og Felix
Myndir frá Húnavöku 2016. MYNDIR: FB-SÍÐA HÚNAVÖKU
skemmta, hoppukastalar verða
á svæðinu og margt, margt
fleira. Klukkan 16 hefjast
orgeltónleikar í kirkjunni þar
sem Eyþór Franzson Wechner,
organisti, leikur. Um kvöldið
verður kvöldvaka í Fagra-
hvammi með fjölbreyttri
skemmtidagskrá og deginum
lýkur með Pallaballi í félags-
heimilinu.
Á sunnudag verður hægt að
skella sér í sápurennibraut í
Kirkjubrekkunni og hin árlega
prjónaganga hefst við Hótel
Blöndu kl. 13.
Heimilisiðnaðarsafnið verð-
ur opið alla dagana, Laser tag
og Paint ball verða á
skólalóðinni á föstudag og
laugardag, hestaleigan Galsi
hefur opið alla helgina ásamt
mörgu fleiru sem hér er ótalið.
Það er því greinilega óhætt fyrir
íbúa Blönduóss og nágrennis
að fara að hlakka til helgarinnar.
Dagskrána í heild sinni má
nálgast á Facebooksíðunni
Húnavaka.
UMFJÖLLUN
Fríða Eyjólfsdóttir
27/2017 5