Feykir - 12.07.2017, Síða 10
Farandsýning á förum í lok mánaðarins
Kona á skjön – um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi
Í Gamla barnaskólanum að Aðalgötu 2 á
Sauðárkróki stendur nú yfir sýningin Kona á
skjön, um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi. Á
sýningunni er rithöfundarferli Guðrúnar gerð
skil en bækur hennar áttu miklum vin-
sældum að fagna meðal þjóðarinnar á þeim
tíma sem þær komu út, á árunum frá 1946 og
til 1973. Nú í seinni tíð hefur áhuginn á
verkum hennar glæðst að nýju og nú hefur
þekktasta verk hennar, Dalalíf, verið gefið út í
fjórða skiptið. Það eru þær Kristín Sigurrós
Einarsdóttir og Marín Guðrún Hrafnsdóttir,
langömmubarn Guðrúnar, sem hafa veg og
vanda af sýningunni.
Blaðamaður leit við á sýningunni á dögunum og
hitti þær stöllur að máli. Þær eru hæst-ánægðar
með viðtökurnar sem sýningin hefur fengið og
segja aðsóknina hafa verið mjög góða. Sýningin
er borin uppi af lesmáli á spjöldum og hefur
hvert spjald yfirskrift sem sótt er í verk
Guðrúnar; kaflaheiti úr sögum hennar eða
bókaheiti. Þær segja að þannig finnist þeim
Guðrún hafa búið til sýninguna með þeim og
andi sagnanna og orðfæri Guð-rúnar skili sér til
sýningargesta. Þar er einnig að finna talsvert af
ljósmyndum af Guðrúnu og einnig nokkra
persónulega muni sem tilheyrðu henni. Má þar
nefna sálmabók sem hún átti og gömlu
sauðskinnsskóna hennar. Ennfremur nokkur
sendibréf og handskrifaðar stílabækur sem
geyma handrit að síðustu skáldsögu Guðrúnar,
Utan frá sjó, en það er eina handritið sem
varðveist hefur. Gömul myndbrot og viðtöl frá
sjónvarpinu eru sýnd á gömlum sjónvarpsskjá
og ýmsir gamlir munir sem ekki tengjast
Guðrúnu beint hjálpa til við að skapa stemningu
þess tíma er Guðrún skrifar um í sögum sínum,
bændasamfélagið á fyrri hluta síðustu aldar.
Guðrún fæddist árið 1887 í Fljótum í
Skagafirði og ólst þar upp í mikilli fátækt. Hún
giftist tuttugu og þriggja ára gömul og eignaðist
þrjú börn. Eiginmaður hennar var smiður og fór
mikið að heiman til vinnu svo Guðrún var oft
ein með börn og bú og hafði lítinn tíma til að
sinna hugðarefni sínu, ritstörfunum. Engu að
síður var hvert bréfsnifsi á heimilinu útskrifað
en því hélt hún leyndu og faldi þegar gesti bar að
garði. Samt sem áður má hugsa sér að mikil
fjarvera eiginmannsins hafi einmitt orðið til þess
að hún hafi frekar nýtt lausar stundir til skrifta
en hefði hann verið heima að staðaldri. Það var
svo ekki fyrr en Guðrún flutti á Sauðárkrók árið
1939 að hún fékk tíma til að skrifa og kom fyrsta
bók hennar, fyrsta bindi Dalalífs, út árið 1946.
Eftir það fylgdi hver bókin á fætur annarri og
tóku lesendur henni opnum örmum. Hið sama
varð ekki sagt um bókmenntaelítuna sem
flokkaði bækur Guðrúnar með erlendu reifara-
rusli og afþreyingarbókum. En Guðrún náði til
lesenda með sínu alþýðlega málfari og má á
vissan hátt segja að hún hafi verið Arnaldur og
Yrsa þess tíma þar sem bækur hennar komu út
nánast á hverju ári á tímabili.
Kona á skjön er opin daglega kl. 13 -17 út
júlímánuð og er aðgangur ókeypis. Hún er
hugsuð sem farandsýning og hafa þær Kristín og
Marín hug á að flytja hana suður yfir heiðar ef
hentugt húsnæði býðst. Því væru allar ábend-
ingar um slíkt vel þegnar. Vilja þær stöllur koma
á framfæri bestu þökkum fyrir viðtökurnar og
ekki hvað síst til allra þeirra sem gerðu sýning-
una að veruleika með styrkjum og annarri
aðstoð, t.d. við öflun efnis og muna. Þá eru
ótaldar þær fjölmörgu ágætu konur sem hafa
lagt þeim lið með því að sitja yfir á sýningunni
og taka á móti gestum.
Enn á eftir að manna nokkrar laufléttar og
skemmtilegar vaktir og ef einhver vill leggja
verkefninu lið er um að gera að hafa samband
við Kristínu og Marín. Þá má benda áhuga-
sömum á að Facebooksíðuna Guðrún frá Lundi.
Marín og Kristín við uppsetningu sýningarinar.
MYNDIR: ÓAB
Við óskum
Blönduósingum
gleðilegrar Húnavöku
Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut Sími 455 6000 www.skagafjordur.is
Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga | Sími 455 9200 www.tengillehf.is
Flúðabakka 2 Blönduósi Sími 452 4385 www.lyfja.is
Blöndustöð www.landsvirkjun.is
Ægisbraut 1 Blönduósi Sími 452 4272 www.prima.is
Meira í leiðinni
Árbraut 31 Blönduósi Sími 452 4030
Árbraut 29 Blönduósi Sími 452 4067 www.textile.is/
Skrifstofa Túnbraut 1-3 | Sími: 455 2700 | skagastrond@skagastrond.is
Sveitarfélagið
Skagaströnd
Húnabraut 13, 540 Blönduósi Sími 452 4321 www.hunabokhald.is
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.isOddagötu 18 545 Skagaströnd
Sími 452 2958
www.n1.is
www.sjova.is
SAMANTEKT
Fríða Eyjólfsdóttir
10 27/2017