Feykir - 12.07.2017, Page 11
saman. Þá er Rice Crispiesinu skellt
saman við. Við setjum þetta yfirleitt
í muffinsform og nörtum í eitt og
eitt yfir sjónvarpinu þegar nammi-
grísinn sækir að en þetta hverfur oft
fljótt. Annars er líka gott að gera
köku úr þessu.
Við skorum á Páleyju Sonju og
Lárus Blöndal á Blönduósi að vera
næstu matgæðingar.
Verði ykkur að góðu!
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Ása, Svala, Gróa og Lilja.
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Hefurðu komið
út í Drangey?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Já, ég hef komið úti
Drangey, fyrir sennilega
15 árum síðan.“
Benedikt Rúnar Egilsson
Finna skal kvenmannsnafn
úr hverri línu.
Svör neðst á síðunni.
Ótrúlegt en kannski satt...
Dvergur er oftast skilgreindur sem einstaklingur sem er lægri en
147 sm á fullorðinsaldri, samkvæmt Doktor.is. Dvergvöxtur getur
stafað af um 200 mismunandi læknisfræðilegum orsökum og þess
vegna eru einkenni og eiginleikar dverga mjög mismunandi. Það að
vera lítill er í sjálfu sér ekki sjúkdómur. Ótrúlegt, en kannski satt, þá
bera barþjónar í Kaliforníu ekki ábyrgð á því, ef þeir misreikna aldur
dverga.
Tilvitnun vikunnar
Ég elska Mikka Mús meira en nokkra konu
sem ég hef kynnst. - Walt Disney
„Nei, ég hef ekki komið
út í Drangey..“
Jón Ingi Halldórsson
„Ég hef því miður aldrei
komið út í Drangey.“
Día Ragnarsdóttir
„Já, ég hef farið
út í Drangey. Ekki nema
27 ár síðan.“
Guðný Guðmundsdóttir
BBQ kjúlli og
Rice Crispies
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN frida@feykir.is
Róar Örn Hjaltason og Þuríður
Valdimarsdóttir eru mat-
gæðingar vikunnar að þessu
sinni. Þau búa á bænum Hamraborg í Hegranesi sem þau keyptu
síðastliðið sumar, þegar þau fluttu heim frá Noregi, og fluttu þar
inn í desember.
Róar er uppalinn á Sauðárkróki og Þuríður er frá bænum
Helguhvammi á Vatnsnesi. Hún er sjúkraliði og vinnur á
Dvalarheimilinu á Sauðárkróki og Róar er vélvirki og vinnur á
Vélaverkstæði KS. Þau gefa okkur sýnishorn af uppáhalds-
uppskriftunum sínum; skötusel sem er mjög góður sem forréttur,
BBQ kjúklingi og Rice Crispies. „Annars á ég mjög erfitt með að
fylgja einni uppskrift, ég þarf alltaf að bæta þær eitthvað eða skella
tveimur til þremur uppskriftum saman svo ég á ekki margar
uppskriftir,“ segir Þuríður.
Þuríður og Róar Örn eru matgæðingar vikunnar
RÉTTUR 1
Baconvafinn skötuselur
Aðferð: Skötuselur skorinn í litla
bita, kryddaður með salti og pipar
(helst sítrónupipar) og vafinn með
baconi. Grillaður í stutta stund.
Þessi réttur er borinn fram með
fersku salati.
RÉTTUR 2
BBQ kjúlli
2dl apríkósumarmelaði
2dl Hunts bbq sósa
1 dl soyjasósa
2½ dl rjómi
2 msk púðursykur
Aðferð: Allt sett í pott og suðan
látin koma upp. Svo er kjúklinga-
bitum (mega vera hvaða bitar sem
er en við notum aðallega vængi og
leggi sem við getum nagað af)
skellt í eldfast form og inn í ofn í
þann tíma sem bitarnir þurft til að
eldast.
RÉTTUR 3
Rice Crispies
50 g smjör
100 g suðusúkkulaði
150 g Mars
150 g lakkrískurl
u.þ.b. 4 msk síróp
Rice Crispies eins og hver og einn
vill
Aðferð: Allt sett i skál nema Rice
Crispies og hitað yfir vatnsbaði
þangað til það er orðið vel bráðið
Þuríður og Róar Örn á Suðurlandinu.
MYND ÚR EINKASAFNI
„Auðvitað hef ég komið
út í Drangey..“
Davíð Már Sigurðsson
27/2017 11
Vísnagáta
Þykir gott að hafa á hendi.
Heitan slökkva þorsta sinn.
Er að grænka auralendi.
Eignað páskum blómsturinn.