Feykir - 03.01.2018, Blaðsíða 8
-
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gaman að byrja að þessu sinni með þessum,
því miður, stóra sannleika Bólu-Hjálmars.
Veröld gefst mér völt og flá
vinur fæst ei tryggur.
Flestir hverfa þessir þá
þegar mest á liggur.
Enn skal haldið af stað á nýju ári og reynt
að tína til eitthvað vísnaefni fyrir lesendur
okkar ágæta blaðs Feykis. Góðu fréttirnar
verða þær að nú í upphafi árs að Ingólfur
Ómar virðist ákveðinn í að halda áfram að
yrkja og leggur þættinum til vetrarvísur.
Hylja skuggar hæð og grund
halla tekur degi.
Emja stormar ýfast sund
öldur rísa á legi.
Ekki hallar á orðavalið í þessari vel gerðu
hringhendu.
Fellur hrím á feyskið blað
frosin híma stráin.
Hallar skímu húmar að
hylur gríma skjáinn.
Ekki skemmir næsta hringhenda brageyrað.
Hríðarmugga hylur svörð
hrími gluggar skarta.
Fellur skuggi á freðna jörð
finn ég ugg í hjarta.
Freistast til að birta eina hringhendu í viðbót
úr þessu ágæta bréfi Ingólfs.
Norðan rosinn nístir brá
næðir um kvos og vengi.
Hrími flosuð hélustrá
hníga á frosið engi.
Þakka Ingólfi fyrir að halda tryggð við
þáttinn og leggja honum oft til ágætar vísur.
Langar næst til að rifja upp ýmislegt sem
tengist hinum magnaða skáldbónda, Villa
á Brandaskarði. Einhverju sinni er þeir
góðvinir Sigurður á Örlygsstöðum og Villi
hittust ræddu þeir saman um Dísukvæði
Davíðs. Bjó þá Sigurður við góð efni en
ókvæntur en Villi við mikla fátækt. Þegar
þeir vinir kvöddust umrætt kvöld orti Villi:
Aumt er að eta úr einni skel
og eiga fást til vina.
En sælt er að vera saddur vel
og syngja um fátæktina.
Síðar, eftir að mér hefur verið sagt, sama
kvöld mun Villi hafa bætt þessari fallegu
hugsjón við.
Ýmsir reistu á sandinum dýrar draumaborgir
og duttlungasöm reyndist þeim oft hin kærsta von.
Því eru margir dæmdir í ævilangar sorgir
það elska fleiri Dísur en Davíð Stefánsson.
Gaman að rifja upp aðeins meira frá Villa,
sem eins og áður segir, var bóndi í Branda-
skarði og bjó þá við nokkuð mikla fátækt.
Villtur engan veg ég finn
varið því er svona.
Nú er allur auður minn
aska brenndra vona.
Vísnaþáttur 703
Að lokum þessi frá Villa.
Æskufuni er útbrunninn
allur kraftur þrotinn.
Kominn að hruni kofinn minn
hver einn raftur brotinn.
Það mun hafa verið í kringum 1930 sem
Hjörtur Gíslason á Akureyri orti svo:
Þó mig vanti í búið brauð
bý ég í fátækt, ríkur.
Því minn glæðir andans auð
Útvarp Reykjavíkur.
Áslaug systir Hjartar mun hafa heyrt vísuna
og ort þá svo laglega:
Ég vil heldur borða brauð
og bera hlýjar flíkur,
en sækja rýran andans auð
í Útvarp Reykjavíkur.
Guðmundur Arnfinnsson mun vera
höfundur að eftirfarandi limru.
Þar kemur, að Katla hún gýs
og kolsvartur mökkur upp rís,
og blasir við hel
en brestur á él
og Bjarki Kaldalóns frýs.
Helgi R. Einarsson er höfundur að þessari:
Geirþrúður gamla á Læk
var getin forðum með kæk,
sem einum finnst ljóður
en öðrum mjög góður.
Hún stöðugt er spriklandi spræk.
Önnur limra kemur hér eftir Helga.
Í ýmsu var fimur hann Fróði
sem foli í merastóði.
Því orðaði Stína
við elskuna sína:
„Æ, gerðetta aftur, góði.“
Geta lesendur sagt mér eftir hvern næsta
vísa er? Held endilega að hún sé eftir tvo
hagyrðinga.
Hringja klukkur heims um ból
himnakóngur blessar.
Kvölda tekur sest er sól
séra Jakob messar.
Sama má segja um næstu vísu, held endilega
að hún sé eftir tvo höfunda.
Ég er bundinn auðargná
öllum sundum lokað.
Innan stundar er ég frá
yfir hundinn mokað.
Lagleg hringhenda þar á ferð. Fer þá að
verða fyllt upp í kvótann að þessu sinni.
Gott að leita til Rögnvaldar Björnssonar
með lokavísuna.
Þegar dags er þrotið stjá
þróttur burtu flúinn.
Fátt er sælla en sofna þá
syfjaður og lúinn.
Veriði þar með sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is 30
ára
Eiga þeir að auglýsa hvað
sem er, þó það sé bara á
Snapchat. Það finnst mér
ekki og ég tel að það þurfi
að gera með einhvers konar
samkomulag í þjóðfélaginu
um þetta. Hvort sem það
er auglýsing um áfengi,
þvottaefni, snyrtivörur eða
fatnað, að þá þarf að liggja
ljóst fyrir hver er markhópur
auglýsingarinnar og hvar
á að birta hana. Snapchat
hentar ekki fyrir allt, þar
eru jú börn og unglingar
notendur og við fullorðna
fólkið eigum að passa þau
og leiðbeina þeim. Ég stórefa
það að allir foreldrar séu
að ritskoða Snaphcat hjá
börnunum sínum og margir
horfi því á efni sem þeim er
ekki ætlað.
Snapchat er frábær miðill
sem og aðrir samfélagsmiðlar
en ég held að við þurfum
að fara að taka okkur tak
varðandi auglýsingar þar
inni, bæði beinar og duldar.
Því bið ég Áhrifavaldana að
nýta sín áhrif til góðs.
- - - - - - -
Ég skora á Þóru Margréti
Lúthersdóttur að koma með
næsta pistil.
Samfélagsmiðlar eru
furðulegt fyrirbæri sem hafa
þróast mjög hratt undanfarin
ár. Flest okkar þekkjum
og notum miðla eins og
Facebook, Snapchat, Twitter
og Instagram. Þessir miðlar
eru frábærir hver á sinn hátt
til ýmissa hluta.
Flestir notendur þessara
miðla fara þarna inn daglega
og tíminn sem fer í slíka
notkun er sífellt að verða
meiri og meiri. Notendur
þessara miðla eru á öllum
aldri. Þetta vita auglýsendur
og hefur orðið sprenging
í notkun þessara miðla
til auglýsinga. Kostaðar
auglýsingar eru áberandi
á miðlunum en svo er líka
mjög auðvelt að finna duldar
auglýsingar. Oft er ekki
augljóst hvort um auglýsingu
er að ræða. Á Facebook og
Snapchat er þetta t.d. að
verða sífellt meira áberandi.
Notendur þessa miðla eru
á öllum aldri en ég ætla
að leyfa mér að halda að
unglingar landsins séu stór
hluti notenda Snapchat
hérlendis.
Fyrir nokkru skutu upp
kollinum svokallaðir
Áhrifavaldar. Það eru
samfélagsmiðlanotendur
(sérstaklega á Snapchat)
sem hafa atvinnu af því
að auglýsa vörur og koma
fram á viðburðum til að
sýna sig og sjá aðra. Þessir
áhrifavaldar hafa jafnvel
tugþúsunda fylgjendur á
öllum aldri og gerir það
málið örlítið flóknara. Þeir
hafa jafnvel umboðsmenn
sem koma þeim á framfæri
og allt sem gert er, er auglýst
á samfélagsmiðlunum. Of oft
eru skilin milli auglýsingar
og kynningar/umfjöllunar
mjög óskýr og það er
kannski sett í hendur okkar
sem notenda þessa miðils
að greina þarna á milli.
Við erum misgóð í slíku og
ég set spurningarmerki við
slíkar umfjallanir/kynningar/
auglýsingar sem beinast
að börnum og unglingum,
sérstaklega þar sem áfengi
kemur við sögu.
Það er ekki að ástæðulausu
sem þessi starfsgrein er
kölluð Áhrifavaldar, þeir
sem þar starfa hafa áhrif. Í
mörgum tilfellum hafa þeir
góð áhrif, fjalla um mikilvægi
góðrar heilsu, hreyfingu og
mataræði. En viljum við að
þeir hafi neikvæð áhrif?
ÁSKORENDAPENNINN
Dagný Úlfarsdóttir Ytra-Hóli A-Hún
Áhrifavaldar á samfélagsmiðlum
UMSJÓN
palli@feykir.is
Dagný Úlfarsdóttir MYND ÚR EINKASAFNI
8 01/2018