Feykir


Feykir - 28.02.2018, Page 8

Feykir - 28.02.2018, Page 8
 Heilir og sælir lesendur góðir. Fyrir einhverjum árum síðan varð að frétta- efni miklar deilur meðal íbúa Mosfellsbæjar vegna búfjárhalds eins íbúans. Af því tilefni orti Guðmundur Arnfinnsson svo: Í Mosfellsbæ mikið þeir gala og mannfólkið vekja af dvala hanarnir tveir og með háreysti þeir sífellt á illdeilum ala. Eins og sagt hefur verið frá nú undanfarið í fjölmiðlum var Hinrik drottningarmaður að kveðja jarðlífið. Á síðasta sumri gerðist sá nokkuð yfirlýsingaglaður um hvar hann vildi ekki liggja er út væri gengið lífsins spil. Af því tilefni orti Guðmundur. Hinrik prins er súr í sinni sínum kjörum leiður á. Hann kveðst ekki í eilífðinni ætla að hvíla Möggu hjá. Minnir að þessi sé eftir allsherjargoðann: Í upphafi var orðið og orðið var hjá þér hvað af því hefur orðið er óljóst fyrir mér. Eitthvað hefur lygimál verið að angra Sveinbjörn er þessi varð til. Margur ló, og margur trúði, mín var róin söm fyrir það. Harmur þó á hugann knúði er hjá þér rógurinn settist að. Að lokum þessi eftir þennan kunna snilling. Minn hugur úr byggðum til fjalla fer er friður og stilling bregst, og annan daginn í eyðisker í óþoli sínu leggst. Sigurlín Hermannsdóttir hefur gaman af því að segja sögur í limruformi. Á hraðferð hann var austur í Höfn því heitbundin voru þau Dröfn en í Öræfasveit beið yngismær heit og nú situr hann uppi með Sjöfn. Hallmundur Guðmundsson hefur haft þokkalega vist er þessi varð til: Ég inni sit og sull´ í bjór, sötra ölið drjúgum. Úti gargar krumma kór, kolsvartur að fljúg´ um. Halldór Snæhólm var kunnur hagyrðingur á árum áður hér í Húnaþingi. Einhvern tímann þegar nálgaðist hreppsnefndarkosningar, kannski í gamla Engihlíðarhreppi, orti hann svo lipra hringhendu: Vísnaþáttur 707 Enginn þokki eða trúað þér lokkar hylli.Þriggja flokka þú ert hjú, þeirra brokkar milli. Þegar Hannibal Valdimarsson fékk þá flugu í hausinn að vilja, ásamt sínum fylgismönn- um, sameinast gamla Sósíalistaflokknum eitt sinn fyrir kosningar, þótti sumum nóg um sem þar voru fyrir á fleti. Einn af þeim var skáldið Kristján frá Djúpalæk og kom hann áliti sínu á framfæri með eftirfarandi vísu. Hljóður reikar hugurinn heiðar fram í dölum. Finn ég ekki flokkinn minn fyrir Hannibölum. Úr því að farið er að fjalla um pólitík er gaman að rifja næst upp þessa kunnu vísu Bjarna frá Gröf. Ég þingmenn háa heyrði þar halda ræður dagsins. Ég held þeir séu hornsteinar í heimsku þjóðfélagsins. Þegar Guðmundur Sigurðsson var með vísnaþætti í útvarpinu sem voru óhemju vinsælir, ásamt svokölluðum snillingum, sendi hann eitt sinn tveimur byltingar- sinnum á Akureyri eftirfarandi vísu. Trúlega í þeim tilgangi að hvetja þá til yrkinga. Enginn svör munu þó hafa borist. Magnast heimsins myrkravöld mjög til allra fanga. Starir á oss stjörf og köld Stalíns afturganga. Áfram munu umræður hafa haldið um dauða þess skrattakolls og munu einhverjir hafa orðið til þess að harma þá guðs gjöf eftir næstu vísu að dæma. Höfundur er hinn snjalli vísnasmiður, Lúðvík Kemp. Nú er engu gefin grið göfugmennskan laus í vistum. Sjálfur Stalín fær ei frið fyrir gömlum kommúnistum. Mikill fjársjóður varð til í vísnaformi þegar snillingarnir ortu í útvarpinu. Á ég til í dóti mínu þó nokkrar vísur sem þá urðu til og get vonandi birt eitthvað af þeim síðar. Væri gaman ef lesendur ættu hjá sér eða kynnu eitthvað af því efni að heyra frá þeim um það. Er þá að verða nóg párað að svo komnu. Gott að leita til Ragnars S. Gröndals með lokavísuna. Létt er að stíga lífsins spor ljúf er gleðin sanna. Þegar eilíft æsku vor er í hugum manna. Veriði þar með sæl að sinni. / Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is 30 ára Stúlkur segja frá grófum kynferðisafbrotum á Sauðárkróki Raddir þolenda hafa áhrif Fréttablaðið Stundin greinir frá því að fjöldi stúlkna á Sauðárkróki hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni af hendi ungs manns af staðnum og tvær þeirra hafi kært hann fyrir nauðgun. Málin voru látin niður falla þar sem þau þóttu ekki líkleg til sakfellingar. Mál stúlknanna er reifað í ítarlegri grein á Stundinni og því lýst hvernig fólk upplifði þöggun og meðvirkni samfélagsins með gerendanum og hvernig kerfið brást þeim í þeirra erfiðu málum. „Það er mjög erfitt að kæra. Sérstaklega í svona litlu sam- félagi, þar sem allt tvístrast, annað hvort ertu með eða á móti. Vissir aðilar stóðu með mér og aðrir með honum. Stundum heyrði ég að einhver hefði sagt eitthvað allt annað en viðkomandi hafði sagt við mig,“ segir önnur stúlknanna, sem kærðu manninn, í viðtalinu. Meðan stúlkurnar tókust á við afleiðingar hinna meintu brota, segja þær það erfitt að hafa þurft að horfa upp á það að hann naut vinsælda og ákveðinnar virðingar; „ … hann verið fyrirmynd barna á Sauðárkróki og í uppeldishlutverki, bæði sem starfsmaður á leikskóla og sem fótboltaþjálfari yngri flokka, en síðasta sumar var honum boðin þjálfarastaða hjá Tindastól.“ Aðalstjórn Tindastóls sendi frá sér yfirlýsingu af þessu tilefni en í henni segir m.a. að þær ungu konur sem stigu fram og sögðu sína sögu eigi skilið þakklæti fyrir mikinn styrk. Skömmin sé gerandans. „Það er mikilvægt að íþrótta- hreyfingin í heild sinni hlusti á þessar raddir þolenda og að- standenda þeirra, læri af þeim og bregðist við af fullum þunga. Ábyrgð stjórnenda, formanna, forsvarsmanna og þjálfara er þar mikil. Stjórnendur Ungmenna- félagsins Tindastóls vilja því sérstaklega taka fram að félagið stendur með þolendum. Við tökum ábyrgð okkar alvarlega og við tökum málstað þolenda alvarlega. Kynferðislegt ofbeldi, kynferðisleg áreitni, einelti eða annað ofbeldi verður ekki undir neinum kringumstæðum liðið í starfi Ungmennafélagsins Tinda- stóls,“ segir m.a. í yfirlýsingu aðalstjórnar. Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar segja af sér Í yfirlýsingu sem birt var sl. mánudagskvöld á Facebooksíðu knattspyrnudeildar Tindastóls kemur fram að Bergmann Guð- mundsson, formaður deildar- innar og Guðjón Örn Jóhanns- son, varaformaður, hafi sagt sig frá störfum fyrir félagið. Gera þeir það til að axla ábyrgð á mistökum sem þeir hafa gert sem stjórnarmenn í málum tveggja manna sem sakaðir hafa verið um kynferðisbrot en notið stuðnings deildarinnar. Segjast þeir vonast til þess að með yfirlýsingunni skapist friður um störf knattspyrnudeildar Tinda- stóls og félagsins alls. Í yfirlýsingu þeirra Berg- manns og Guðjóns taka þeir undir orð aðalstjórnar Ung- mennafélags Tindastóls. Þá iðrast þeir gjörða sinna er varða stuðning við dæmdan kynferðis- brotamann en það mál komst í hámæli sl. sumar. „Við þetta viljum við bæta og lýsa því hér með formlega yfir að deildinni urðu á stór mistök í maí á síðasta ári með stuðnings- yfirlýsingu sinni við Ragnar Þór Gunnarsson, þáverandi leik- mann liðsins, sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot. Sú yfirlýsing átti ekki rétt á sér og þykir okkur leitt að hafa ekki staðið með okkar fólki, hafa valdið því von- brigðum og þolendum óþarfa sársauka. Hvað varðar mál fyrrum starfsmanns okkar sem fjallað er um í Stundinni síðastliðna helgi, en þar koma fram 12 stúlkur og segja sína sögu um samskipti við manninn, er ljóst að deildinni urðu á óafsakanleg mistök við ráðningu hans í barna- og unglingastarf félagsins. Maðurinn er ekki dæmdur fyrir nein brot, en slíkt afsakar ekki í þessu tilviki að við gerðum okkur ekki á neinn hátt grein fyrir því hversu miklum von- brigðum við vorum að valda félagsmönnum okkar og þeim þolendum sem hafa nú stigið fram og sagt sögu sína. Því miður getum við ekki breytt því sem liðið er eða hvað þá tekið til baka þær ákvarðan- ir sem hafa verið teknar í fortíðinni. En við vonum að við getum á einhvern hátt sýnt sársauka þolenda virðingu með því að biðjast afsökunar á ákvörðunum okkar og reyna að leggja okkar af mörkum til þess að félagið verði vel í stakk búið til að taka RÉTT á málum í framtíðinni. Málum eins og hafa komið upp í umræðuna í kjölfar #MeToo byltingarinnar sem og öðrum málum sem ekki eiga heima í heimi íþróttanna, frekar en annarsstaðar. Eins og fram kemur í yfirlýsingum Ung- mennasambands Skagafjarðar (UMSS) og Aðalstjórnar Ung- mennafélags Tindastóls hefur vinna staðið yfir í vetur við að skrifa siðareglur fyrir félagið og er það vel. Til að taka ábyrgð á mistökum okkar segjum við okkur frá störfum okkar fyrir félagið. Það er okkar von að með þessari yfirlýsingu skapist friður um störf knattspyrnudeildar Tindastóls og félagsins alls. Áfram Tindastóll Virðingarfyllst, Bergmann Guðmundsson og Guðjón Örn Jóhannsson.“ /PF 8 09/2018

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.