Feykir - 18.07.2018, Síða 1
28
TBL
18. júlí 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 5
Viðtal við Bjarka Má Árnason,
annan þjálfara Tindastóls í
2. deild karla í knattspyrnu
Seinni umferðin
mun gefa okkur
fleiri stig
BLS. 9-10
Ferðasaga frá Skotlandi
Skokkhópur
Árna Stef á West
Highland Way
Landsmótið á Sauðárkróki
Fjöldi mótsgesta
talinn um fjögur til
fimmþúsund
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
FYRIR HEYSKAPINN
Eigum til tinda og hnífa í flestar gerðir heyvinnuvéla,
einnig slöngur og dekk með eða án felgu.
& 453 8888 NETFANG velaval@velaval.is
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
Símamótið var sett í 34. sinn í
síðustu viku. Metþátttaka var á
mótinu í ár en 328 lið voru skráð til
leiks og rúmlega 2.200 stelpur
kepptu þessa þrjá daga sem mótið
fór fram. Tindastóll sendi þrjú lið á
mótið, eitt lið í 7. flokki og og tvö
lið í 5. flokki.
Stúlkurnar í 7. flokki unnu silfur í B
liðakeppni mótsins en þær unnu sex
leiki og töpuðu einungis úrslitaleiknum.
Í 5. flokki voru 12 stelpur í leik-
mannahópnum og skiptust þær á að
spila leikina í C og D liðakeppninni.
Tindastóll 1 endaði í 2. sæti í C
liðakeppninni og Tindastóll 2 í 1. sæti í
D liðakeppninni. ,,Þetta er mjög góður
árangur liðanna okkar og framtíðin er
björt í kvennaboltanum hjá Tindastóli,“
segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari
hjá Tindastóli. Óskar Smári er þjálfari
7. flokks kvenna og Arnór Daði
Gunnarsson er þjálfari 5. flokks. Báðir
spila þeir með meistaraflokki Tinda-
stóls.
Stólastúlkur fengu hrós frá
Hermanni Óla Bjarkasyni, dómara-
stjóra, en dómarar mótsins gáfu þeim
mikið lof fyrir framkomu og virðingu
gagnvart andstæðingum og dómurum.
„Stelpurnar okkar í Tindastóli,
sýndu það og sönnuðu inni á vellinum
að þetta voru ekki einungis góð úrslit,
heldur var spilamennskan mjög góð,
liðsheildin og liðsandinn frábær og ég
get fullyrt það að hver og ein stúlka
gekk alsæl frá mótinu,“ segir Óskar
Smári. „Við viljum einnig þakka
foreldrum fyrir þeirra vinnu, en án
þeirra væri ekki möguleiki á að senda
liðin til keppni,“ segir Óskar Smári að
lokum. /LAM
Fengu mikið lof fyrir framkomu og virðingu
Stólastúlkur á Símamóti
Arnór Daði Gunnarsson ásamt stúlkunum í 5. flokki, alsæl að móti loknu. MYNDIR AÐSENDAR
Óskar Smári ásamt keppendum í 7. flokki.