Feykir - 18.07.2018, Side 10
Tókstu þátt í einhverjum keppnisgreinum eða starfi á Lands-
móti og hvernig gekk? -Já, ég fór mikla frægðarför á Landsmótið.
Keppti í körfubolta og varð Landsmótsmeistari með Molduxum.
Vorum reyndar eina liðið skráð í aldursflokki 50-99 ára. Við
Uxarnir sáum einnig um framkvæmd keppninnar svo ég get sagst
hafa verið sjálfboðaliði. Þá tók ég þátt í 100 metra spretthlaupi í
50+. Dró fram ævaforna hlaupaskó sem skiluðu mér í mark á 15
sekúndum. Varð annar í mínum aldursflokki en því miður fyrir
stoltið voru einhverjir eldri gaurar sem hlupu hraðar.
Hvernig þótti þér takast til með mótið? -Mér fannst Landsmótið
meiriháttar og takast ótrúlega vel. Það voru reyndar margar greinar
eða atburðir sem fóru framhjá mér vegna þess hversu margt var í
boði.
Ætlarðu að mæta á næsta Landsmót? -Ég væri meira en til í að
mæta á svona hátíð aftur. Áfram UMFÍ! /FE
Svipmyndir frá Landsmótinu á Sauðárkróki og keppendur teknir tali
Margt skemmtilegt í boði á Landsmótinu
Tókstu þátt í einhverjum keppnisgreinum eða starfi á Lands-
móti og hvernig gekk? -Ég fór í jóga, fjallgöngu, keppti í
Strandhandbolta með íþróttafélaginu Mjóu ræmunum og erum við
Landsmótsmeistarar eftir stórskemmtilega keppni. Aðstoðaði við
framkvæmd nokkurra keppnisgreina sem var stórskemmtilegt og
gefandi. Ég er stoltust af þvi að hafa fengið Kraft til að koma til
okkar og Perlað af Krafti var yndisleg stund. Sannast aftur og enn
hvað við erum frábær og tilbúin í að láta gott af okkur leiða. Vil
þakka öllum sem komu og tóku þátt í þessu með okkur fyrir
hjálpina.
Hvernig þótti þér takast til með mótið? -Landsmótið tókst vel og
margt skemmtilegt í boði svo sem kynning á nýjum íþróttagreinum.
Biathlon og Ringo fannst mér mjög áhugavert og jákvætt að koma
inn með nýjar keppnisgreinar.
Ætlarðu að mæta á næsta Landsmót? -Stefnan er að sjálfsögðu
sett á næsta Landsmót. /FE
Guðný Guðmundsdóttir á Sauðárkróki
„Jákvætt að koma inn
með nýjar keppnisgreinar“
Mjóu ræmurnar. Guðný lengst til vinstri. MYND ÚR EINKASAFNI
Gullslegnir Molduxar. Árni, Valli, Geiri, Margeir og Palli lengst til hægri. MYND AÐSEND
10 28/2018
Páll Friðriksson á Sauðárkróki
„Væri meira en til í
að mæta á svona hátíð aftur“