Feykir - 18.07.2018, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
28
TBL
18. júlí 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Smáforrit fyrir
Húnaþing vestra
Húnaþing vestra
Ferðamálafélag Húnaþings vestra hefur gefið út app
eða smáforrit sem nefnist „Hunathing“. Hefur það að
geyma allar helstu upplýsingar um Húnaþing vestra og
þá þjónustu sem þar er í boði. Á vef Húnaþings vestra
segir að tilgangur appsins sé „að auka jákvæða
upplifun ferðamanna á svæðinu sem og að auðvelda
þeim sem leiðsegja gestum um svæðið sitt.“
Verkefnið styrku Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Húnaþing vestra og Samtök
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Finna má smáforritið
bæði fyrir Apple og Android undir nafninu „Hunathing“.
/FE
Lokasýning nemenda
Virginia Tech háskólans
Skagaströnd
Nemendur Virginia Tech háskólans í Bandaríkj-
unum sem dvalið hafa í Nes listamiðstöð síðustu
sex vikurnar héldu lokasýninguna sína þann 10. júlí
sl. á Skagaströnd.
Þrettán nemendur stóðu að sýningunni en hópur-
inn samanstendur af nemendum í grunn- og
meistaranámi í skapandi tækni en undir það fellur
meðal annars kvikmyndagerð, ljósmyndun, tölvu-
leikjahönnun og sýndarveruleiki.
Í boði var að spila tölvuleiki sem hannaðir voru
meðan á dvöl þeirra stóð, ýmis vídeóverk voru sýnd
ásamt textíllistaverkum. /LAM
Áhugasamur gestur í tölvuleik sem hannaður var meðan á dvöl nemendanna stóð. MYNDIR: LAM Valdimar O. Hermannson
ráðinn sveitarstjóri
Blönduósbær
Sveitarstjórn Blönduósbæjar hefur ráðið Valdimar O.
Hermannsson sem sveitarstjóra og var ráðningin
staðfest á fundi sveitarstjórnar í gær, 12. júlí. Valdimar
hefur undanfarin tvö ár starfað sjálfstætt, meðal annars
sem verkefnastjóri, nú síðast fyrir Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga.
Valdimar er markaðsfræðingur að mennt en hefur
einnig lagt stund á fjölbreytt nám, m.a. í viðskiptafræðum,
stjórnun, markmiðasetningu og leiðtogaþjálfun bæði
hérlendis sem og í Evrópu, Japan og USA.
Valdimar var fulltrúi í bæjarstjórn Fjarðabyggðar í tólf ár
og sat þar í bæjarráði í sex ár. Hann hefur gegnt fjölmörg-
um trúnaðarstörfum á vettvangi sveitarstjórnarstigsins á
landsvísu, m.a. sem formaður Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi, stjórnarformaður Austurbrúar ses., Náttúru-
stofu Austurlands, HAUST og SHÍ. Þá situr hann í
ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, og þekkir því
vel til stöðu sveitarfélaga á svæðinu. Áður starfaði Valdimar
meðal annars í tólf ár sem rekstrarstjóri hjá Heil-
brigðisstofnun Austurlands og um tíma einnig sem for-
stöðumaður innkaupasviðs HSA en þar áður aðallega við
innkaupa- og rekstrarstjórn fyrirtækja.Valdimar er í sam-
búð með Vilborgu Elvu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi.
Sveitarstjórn Blönduósbæjar fagnar ráðningu Valdimars
og hlakkar til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem
framundan eru í samstarfi við hann. Valdimar mun hefja
störf sem sveitarstjóri Blönduósbæjar 14. ágúst n.k. sam-
kvæmt samkomulagi þar um. /LAM
Sveitarstjórn Blönduósbæjar ásamt Valdimar sem er fjórði frá vinstri.
MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON
Verk unnið úr jurtalituðum bútum.
„Alvöru gína“ eftir Lori Black.
„Miðnæturhiminn.“ 1000 bita púsluspil málað með akrýlmálningu
sem rúllar yfir vídeóverk. Vinnuborð nemanda.