Feykir - 26.09.2018, Blaðsíða 9
Inga Birna Friðjónsdóttir / söngkona
„Elska þungan bassa og gott
beat með óvæntum twistum“
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Að þessu sinni er það Inga Birna
Friðjónsdóttir sem svarar Tón-lystinni
en á dögunum gaf hún út nýtt lag,
One Night, ásamt félögu sinni,
Karitas Hörpu Davíðsdóttur, en
þær söngkonur skipa saman dúóið
Hedband. Karitas kannast örugglega
margir viið en hún sigraði í The Voice
Ísland snemma árs 2017. Með þeim
í laginu er tónlistarmaðurinn og
pródúsentinn Thorisson.
Inga Birna, sem er elst þriggja systkina,
býr nú í Reykjavík en hún bjó fyrstu tíu
ár ævinnar í Svíþjóð en fluttist síðan á
Krókinn. Foreldrar hennar eru Auður
sjúkraþjálfari og Friðjón læknir. „ Þau
búa þar enn gömlu hjúin en ég er búin
að vera á flakki frá 16 ára aldri,“ segir
hún. Ingu Birnu er margt til lista lagt,
var stórefnilegur freestyle-dansari, er
fatahönnuður að mennt en hefur nú
síðustu misserin hellt sér út í tónlistina
meðfram öllu öðru sem lífið býður upp á.
Hugmyndin að Hedband segir hún
að hafi kviknað í gríni þegar þær stöllur
sóttu lagasmíðanámskeið saman en var
fljótlega snúið upp í alvöru þegar þær
voru sammála um að hugmyndin væri
of skemmtileg til að gera hana ekki að
veruleika. „Síðasta púslið í spilið var
síðan þegar Borgar (Thorisson) kom inn
í þetta með hárrétta hljóðheiminn og þá
var ekki aftur snúið. One Night er fyrsta
lag Hedband og Thorisson og er vinna
við fleiri lög hafin enda stefnum við á að
gefa út EP plötu snemma á næsta ári,“
segir Inga Birna.
„Mitt hljóðfæri er raddböndin eins og
er en ég er byrjuð að læra á píanó,“ segir
hún en ásamt því að vera í Hedband
vinnur Inga Birna einnig að sínu fyrsta
sóló-lagi sem væntanlegt er með
haustinu.
Hvaða lag varstu að hlusta á? –
Afmælissönginn, sambýlsimaður minn
er 29 ára í dag! [18. september]
Uppáhalds tónlistartímabil? Þau eru
nú nokkur. Spice Girls og Backstreet-
boys tímabilið var geggjað.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? Ég hef verið að
uppgötva fullt af ungum og geggjuðum
kvenkyns tónlistarmönnum í gegnum
GRL PWR playlistann á Spotify. Elska
þungan bassa og gott beat með
óvæntum twistum í útsetningum.
Norskar, sænskar og danskar tón-
listarkonur eru að heilla mig mikið.
Hvers konar tónlist var hlustað á á
þínu heimili? Þar fór fremstur meðal
jafningja Sven Ingvars heitinn. Ég setti
líka oft Sléttuúlfana á á vínil og dansaði
mikið með. Stuðmenn, Íslandsperlur og
Eros Ramazotti var líka mikið spilað.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér? Big Willie Style, með Will Smith.
Hvaða græjur varstu þá með? Massívu
græjurnar sem ég fékk frá foreldrum
mínum þegar ég var ekki meira en níu
ára held ég. Risa hátalarar og geggjað
sound, pabbi er græjukall.
Hvert var fyrsta lagið sem þú mannst
eftir að hafa fílað í botn? Við gerum
okkar besta sem Valgeir Guðjónsson
samdi þegar Íslendingar urðu
B-Heimsmeistarar árið 1989.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? Sem betur fer tekst mér
auðveldlega að gleyma þeim lögum en
ég á mjög erfitt með t.d. Too Much To
Ask með Niall Horan og lög í þeim stíl.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað
læturðu hljóma í græjunum til að
koma öllum í stuð? One Night með
Hedband og Thorisson!
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? One Night með Hedband og
Thorisson... :o)
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og
hvern tækirðu með þér? Þessi er easy,
ég færi á Lifehouse einhvers staðar í
Bandaríkjunum og tæki Elvu sys með!
Hvað músík var helst blastað í bílnum
þegar þú varst nýkominn með bílpróf?
Ég hlustaði rosalega mikið á MUSICK
með Maus.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera eða haft mest
áhrif á þig? Tina Dickow, sá hana og
eiginmanninn, Helga Jónsson, koma
fram í Norræna húsinu í sumar og þar
þyrmdi yfir mig þessi öfundar tilfinning.
Ég vissulega öfundaði þessi fallegu hjón
af þeirra lífi en þau eru bæði geggjaðir
tónlistarmenn og saman skapa þau
músík og andrúmsloft sem heillar mig
upp úr skónum.
Hver er að þínu mati besta plata sem
gefin hefur verið út? No Name Face
með Lifehouse.
Úlfar með kontrabassann að spinna af fingrum fram í myndatöku fyrir Íslensku
tónverkamiðstöðina. Myndin er tekin rétt upp úr aldamótum. MYND: SÓLA
toppurinn
Vinsælast á Playlista
Ingu Birnu á þessum
tímapunkti:
Darlings
SUSANNE SUNDFÖR
Obvious
ORKID
Mermaid
SKOTT
Let Me Fall
ZÖE
Way Down
MØ
Moln
MENKE
HEDBAND Karitas og Inga Birna. MYND: SAGA SIG
Lögreglan á
Norðurlandi vestra
Átta fíkni-
efnamál á
Norðurlandi
vestra
Átta fíkniefnamál höfðu,
þann 19. september sl.,
komið til kasta lögreglunnar
á Norðurlandi vestra það
sem af er september. Á
Facebooksíðu embættisins
kemur fram að aukin
áhersla hefur verið lögð
á fíkniefnamál og hefur
lögreglan m.a. nýtt
sér aðstoð fíkniefna-
leitarhunda.
Sum málanna tengjast
akstri undir áhrifum fíkni-
efna og má m.a. þakka
auknu umferðareftirliti í
umdæminu að þau voru
upplýst. Lögreglan minnir á
fíkniefnasímann 800-5005.
Í hann má hringja til að
koma á framfæri upplýs-
ingum um fíkniefnamál. /PF
Lögreglumál
Kannabis-
ræktun
stöðvuð
Lögreglan á Norðurlandi
vestra stöðvaði
kannabisræktun í
heimahúsi á Skagaströnd
á dögunum. Húsleit var
gerð að fenginni heimild
og fannst þá ræktunin
auk tækja til framleiðslu
á landa. Þá var lagt hald
á tunnur með gambra.
Eins var lagt hald á önnur
efni sem send voru til
greiningar.
Á Facebooksíðu Lögregl-
unnar á Norðurlandi vestra
kemur fram að íbúi í húsinu
hafi játað eign sína á
efnunum og ræktuninni og
var hann handtekinn. Í að-
gerðunum naut lögreglan
aðstoðar leitarhunds. /PF
36/2018 9