Feykir


Feykir - 26.09.2018, Blaðsíða 4

Feykir - 26.09.2018, Blaðsíða 4
AÐSENT Af fornum ferðaleiðum – dýrmætum menningararfi og hindrun af mannavöldum á Kjalvegi hinum forna Fornar ferðaleiðir og vörður sem vegvísar eru merkur minnisvarði um ferðamáta og erfið lífsskilyrði fyrri kynslóða. Fornar alfaraleiðir, svonefndar þjóðleiðir, teljast nú með okkar dýrmætustu menningarminjum og heyra undir lög um minjavernd og óheimilt er að hindra för um þær. Benda má á Kjalveg hinn forna sem magnað dæmi en þar má enn sjá samfelldar og skýrar reiðgötur og þar standa geysimiklar vörður enn, hvorutveggja áhrifamiklir minnisvarðar um fyrri tíma - og rekja ferðaleiðina, nánast óslitið milli byggða, norðanlands og sunnan. Margir eiga sér draum um að fara ríðandi yfir Kjöl. Á síðast- liðnu sumri létum við, lítill, sjö manna, hestaferðahópur þann draum rætast. Eitt helsta mark- mið ferðarinnar var að fara í fótspor forfeðra og -mæðra og ríða hinn forna Kjalveg. Næturhólf og gisting var ákveðin í samræmi við ásættanlegar dagleiðir, fyrir menn og hesta, eða milli 30 og 40 km á dag. Gekk greiðlega að panta hvoru- tveggja og alls staðar var verðið sambærilegt; svefnpokaplássið kostaði 5.500-6.000 kr., gerðis- gjald á hross kr. 80 og heyrúllan á 15.000 kr. Nema á Hveravöllum. Þar er eldri gistiskáli með eldunaraðstöðu og rúmar hann um 30 manns. Ekki var mögulegt að kaupa svefnpokapláss fyrir okkur sjö, heldur var aðeins boðið uppá tvo afarkosti; að leigja allan gistiskálann á 150.000 kr. eða kaupa gistingu í yngri skálanum og þá uppábúin rúm og morgunmat. Það þýddi einnig að við vorum í raun neydd til að kaupa kvöldverð í veitingasalnum þar sem eldunar- aðstaða fylgir ekki gistingu í uppábúnu rúmunum. Þarna var, auk þessa, heyrúllan seld á 23.000,- krónur, áberandi dýrari en í hinum næturhólfunum. Okkur þótti ljóst að rekstraraðili aðstöðunnar, Hveravallafélagið ehf., væri þarna að nýta ein- okunaraðstöðu sína til hins ítrasta – og þótti okkur vansi að. En til að geta farið þann hluta gamla Kjalvegar sem liggur um Þjófadali urðum við að fá nátthaga/næturhólf fyrir hrossin á Hveravöllum, ekki var um annað að ræða. Eftir talsverðar vangaveltur, ákváðum við að halda næturhólfinu á Hvera- völlum en kaupa gistinguna í Gíslaskála og keyra á milli. Við sendum staðarhaldaran- um á Hveravöllum upplýsingar um þessa lendingu mála, en þá kom þetta svar: „Sæl Bara að þú vitir þá gengur okkar gestir fyrir með aðstöðu fyrir hrossin þannig að kannski verður ekki pláss. Kveðja / Best regards…” Nú voru góð ráð dýr. Við gátum sem sagt ekki fengið staðfest næturhólf fyrir hrossin á Hveravöllum umrædda nótt, heldur áttum við að mæta með þreytt og svöng ferðahross, upp á von og óvon, hvort þau fengju næturhólf og hey – eða ekki. Það er trúlega flestum ljóst að slíkum ókosti getur enginn sem ferðast með hross tekið. Staðan var þá sú að ef við á annað borð ættum að geta upplifað að ríða þann hluta hins forna Kjalvegar sem liggur um Þjófadali (við vorum ekki með rekstur, þar sem slíkt er ekki leyfilegt þar) var ekki um annað að ræða en að ganga að skil- málum staðarhaldara á Hvera- völlum og gengum við að skárri skilmálanum. Sem þó var orðinn langt umfram verð á gistingu og nátthaga á öðrum áningar- stöðum Kjalvegar. Það er skemmst frá því að segja að ferðin var farin og alls staðar voru móttökur með sóma, nema á Hveravöllum. Það vakti sérstaka athygli okkar að eldri gistiskálinn reyndist mannlaus þá nótt sem við gistum að Hveravöllum. Það skal skýrt tekið hér fram að ekki var neitt út á starfsfólk staðarins að setja, það vann sína vinnu og var alúðlegt. Hins vegar talaði enginn starfsmanna íslensku og erfitt reyndist að útskýra fyrir þeim að umhirða og sala á heyi hjá þeim væri fyrir neðan allar hellur og með öllu óásættanleg þar sem einungis var til boða myglað, úldið og gjörónýtt hey; frá ysta lagi að því innsta. Og fyrir það máttum við veskú, borga fullt verð. Það gefur augaleið að við svo búið má ekki sitja. Þessir viðskiptahættir hljóta að vera til virkilegrar umhugs- unar. Fyrir alla þá er málið varðar og er annt um fornan menningararf, hvernig háttað er arðtekju af þjóðlendum og hvort um er að ræða eðlilegt nátt- og gistigjald á fornum ferðaleiðum eða eru aðilar að nýta sér einok- unaraðstöðu og hafa í frammi það sem hreinlega mætti kalla „tollheimtu“. Þess má geta að á vef Ferða- málastofu segir í frétt frá 10. júní 2013 að Húnavatnshreppur, aðaleigandi Hveravallafélagsins ehf., hafi samið við Iceland Excursions, Allrahanda ehf., um uppbyggingu ferðaþjónustu á Hveravöllum og selt fyrirtækinu meirihluta í Hveravallafélaginu ehf. sem hafi þar lóðaleigu- samning um nýtingu 50 ha lands næstu áratugina: https://www. ferdamalastofa.is/is/um-ferda- malastofu/frettir/allrahanda- tekur-yfir-ferdathjonustu-a- hveravollum. Vera Roth Kristín I. Pálsdóttir Ib Göttler Andri Stefánsson Guðný Guðlaugsdóttir Hörður Finnbogason Unnur Rut Rósinkransdóttir Körfuknattleiksdeild Tindastóls Samningar undirritaðir hjá mfl. kvenna Körfuknattleiksdeild Tindastóls mun tefla fram meistaraflokki kvenna í 1. deild fyrir komandi keppnistímabil og var skrifað undir samninga við tólf leikmenn sl. sunnudag. Á Fésbókarsíðu körfuknatt- leiksdeildar kemur fram að liðið sé skipað ungum stelpum í bland við reynslumikla leik- menn. Liðið mun njóta liðs- styrks bandaríska leikstjórn- andans Tessondra Williams sem fædd er árið 1990 og hefur spilað víðsvegar um Banda- ríkin. Á síðasta tímabili lék hún með breska liðinu Durham University. Þá hefur verið samið við litháíska þjálfarann Arnoldas Kuncaitis um þjálfun liðsins. Arnoldas er vel menntaður í þjálfun körfubolta og mun nýtast liðinu vel á komandi tímabili. Honum til halds og trausts sem aðstoðarþjálfari verður Skagfirðingurinn Rúnar Áki Emilsson. „Frumraun liðsins var núna um helgina þegar Þór Akureyri kom í heimsókn á laugardag- inn. Tindastóll bar sigur úr býtum og lokatölur 67-39. Flottur sigur hjá stelpunum og létu stuðningsmenn ekki sitt eftir liggja og fjölmenntu í Síkið,“ segir á FB-síðu körfu- knattleiksdeildar Tindastóls. /PF Bandaríski leikstjórnandinn Tessondra Williams mun verða í lykilhlutverki í kvennaliði Tindastóls í vetur MYND: FB SÍÐU KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR TINDASTÓLS Á Kjalvegi hinum forna. Ein af fjölmörgum vörðum sem vísa veginn yfir fjallveginn. Hrútfell í baksýn. MYND: HÖRÐUR FINNBOGASON, 2018 F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR 1847: Guðmundur Jónsson í Bjarnastaðahlíð var skipaður hreppstjóri í Lýtingsstaõahreppi ásamt Jónasi Jónssyni á Syðsta- Vatni. Áður höfðu Páll Magnússon á Ytri-Mælifellsá og Gunnlaugur Hinriksson á Tunguhálsi haft þann starfa með höndum-. - Ólafur Ólafsson í Sólheimum varð hreppstjóri í Akrahreppi eftir Jónatan Þorfinnsson á Uppsölum. Í maí: Séra Ólafur Þorvaldsson prestur í Saurbæjarþingum hafði brauðaskipti við séra Jón Halldórsson á Hjaltastöðum 24. nóvember 1846 og fluttist þangað um vorið. Jón Samsonarson þingmaður Skagfirðinga bjó sig undir alþing um veturinn og vorið. Það átti nú að halda öðru sinni. Hann boðaði fundi í sumum hreppum, stefndi þangað bændum, kynnti þeim ýmsar tillögur sínar og bað þá segja skoðun sína á þeim. ,,Hagaði hann allri aðferð á hverri samkomu sem gjört hafði verið á hinu fyrsta fulltrúa-alþingi, er hér á landi hefir veriõ haldið.“ /PF Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947 Í gamla daga... 4 36/2018

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.