Feykir


Feykir - 05.12.2018, Blaðsíða 1

Feykir - 05.12.2018, Blaðsíða 1
Við þjónustum bílinn þinn! Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða- menn með áralanga reynslu. Nýttu þér netverslun Skoðaðu vöruúrvalið á lya.is Helgina 23.–24. nóvember komu yfir eitthundrað 10–12 ára börn saman á TTT móti á Löngumýri, ásamt öllum prestum í Húnavatns- og Skagafjarðar -prófastsdæmi. Að sögn Sigríðar Gunnarsdóttur, sóknarprests á Sauðárkróki, tókst mótið vel í alla staði enda mikið sungið, lært og leikið. „Við köllum TTT, tíu til tólf ára starfið, Stubbana og höldum Stubbafundi alla fimmtudags eftirmiðdaga í Safnaðar- heimilinu á Sauðárkróki þar sem er sungið og leikið á alls oddi,“ segir Sigríður sem var mög ánægð með stemningu helgarinnar. „Hún var ljómandi fín, alltaf góð stemning á Löngumýri, krakkarnir skemmtu sér vel og voru til fyrirmyndar.“ Þrátt fyrir að fréttir segi af og til af minnkandi aðsókn í kirkjur eða úrsagnir úr Þjóðkirkjunni segir Sigríður að krakkar í dag hafi almennt áhuga á kristilegu starfi. „Já, mörg hafa það. 20-30 krakkar mæta að meðaltali á hvern Stubbafund og þau eru mjög áhugasöm. Foreldrarnir gefa samt örugglega tóninn í þessu eins og öðru, þau sem fá hvatingu að heiman eru líklegri til að koma.“ Aðspurð um hvort kirkjan, eða önnur trúfélög, séu komin með einhver öpp til að auðvelda fólki aðgang að Guðsorðinu, segir hún svo vera því Biblían er þegar komin í app og að- gengileg á www.biblia.is. Nú er aðventan byrjuð og Sigríður vill hvetja fólk til að koma til kirkju. „Margir segjast alltaf vera á leiðinni. Það er heilmikið um að vera í flestum kirkjum á aðventu og jólum og þar er í boði andleg næring og boðskapur sem byggir upp.“ is. /PF Holræsa- og stífluþjónusta Bjóðum alhliða lagnahreinsun og lagnamyndun Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958. Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is Það viðraði vel til útiveru þegar fjöldi 10-12 ára barna kom saman á Löngumýri fyrir skömmu. MYND: BRYNDÍS VALBJARNARDÓTTIR 46 TBL 5. desember 2018 38. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BLS. 6–8 BLS. 8 Guðmundur St. Ragnarsson stýrir áskorendapennanum Kærar kveðjur heim! BLS. 10 Feykir fjallar um heimavöll Tindastóls í körfunni Síkið – er staðurinn! Erindi flutt á málþingi í Miðgarði í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins Fullveldi – frelsi – lýðræði – hvað er nú það? Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Stórprent í toppgæðum Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum TTT mót á Löngumýri Rúmlega 100 börn skemmtu sér saman í gleði og leik SÆLKERAFERÐ UM SKAGAFJÖRÐ Tilvalin jólagjöf fyrir vini og ættingja heima eða erlendis Eldað undir bláhimni er bæði á íslensku og ensku ÞÚ GETUR NÁLGAST EINTAK Í NÝPRENTI Hér er laust pláss! Hafðu samband í síma 455 7171 og tryggðu þér frábæran stað til að minna á þig eða fyrirtækið þitt – Feykir er sprækur sem lækur!

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.