Feykir


Feykir - 05.12.2018, Blaðsíða 2

Feykir - 05.12.2018, Blaðsíða 2
Það hefur vakið athygli nú þegar allt er orðið hvítt að hinn nýi gervigrasvöllur á Sauðárkróki bræðir ekki af sér snjóinn eins og menn ætluðu. Skýringarinnar er að leita í rafkerfinu þar sem ekki reynist óhætt að keyra völlinn á fullum afköstum. Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og forvarnamála í Sveitarfélaginu Skagafirði, segir að rafmagninu hafi slegið út vegna ofálags, þegar bræðslan, lýsingin á vellinum og á íþróttavellinum eru kveikt. „Þetta er í vinnslu og skýrist á næstu vikum. Annars er það þannig að ólíklegt er að völlurinn muni ná að bræða svona mikinn snjó af sér, mun alltaf kalla á það að völlurinn verði hreinsaður, hvernig sem það verður svo gert. Bæði notast menn við vélar annar staðar sem og skóflur, þ.e. handmokstur. Það er alla vega mín vitneskja eftir samtöl við vallarstjóra annars staðar á landinu. Bræðslan mun fyrst og síðast tryggja ófrosinn völl sem hægt er að nota þegar búið er að hreinsa snjóinn af.“ Þorvaldur segir að eftir hláku fyrr í vetur hafi vatnið „drenað“ beint í gegn sem sýnir að völlurinn sé alveg þíður. „Við þurfum svo að sjá hvernig þetta verður þegar við getum farið að keyra bræðsluna á fullum afköstum. Þetta er náttúrulega nýtt fyrir okkur og erum við einfaldlega að læra á þetta ennþá,“ segir hann./PF Þann 1. desember sl. fögnuðu Íslendingar 100 ára fullveldisafmæli sínu með ýmsum hætti (Ég sat t.d. skemmtilega dagskrá í Miðgarði meðan vinnu- félagi minn dó næstum úr leiðindum yfir dagskrá RÚV á sama tíma). Svo vel vildi til að daginn bar upp á helgi svo menn gátu notið hans í hvívetna. Ég hef stundum hugsað um það af hverju 1. desember er ekki gert hærra undir höfði en raun ber vitni alla jafna. Í mínum huga er sú stund er Ísland fékk fullveldið, árið 1918, mun stærri en þegar sjálfstæðið náðist 1944 eftir að danski konungurinn hafði legið kylliflatur undir hæl Hitlers og félaga í síðari heimstyrjöldinni. Í hugum margra, og þar er ég með talinn, hefur sjálfstæðisbarátta Íslendinga staðið allt frá því að Íslendingar glötuðu sjálfstæði sínu við gildistöku Gamla sáttmála sem gerður var við Hákon gamla 1262 þegar Sturlungaöldin leið undir lok, svo til einhvers var unnið 1. desember 1918. Á WikiPediu segir að baráttan hafi lengi vel verið rislítil og jafnvel ekki meiri en hljóðlát ósk í hugum landsmanna, en á 19. öld hafi hún eflst til muna og tók kipp þegar Jörundur hundadagakonungur gerði valdaránstilraun á Íslandi sumarið 1809. Sjálfstæðisbaráttan náði svo hámarki í baráttu Jóns Sigurðssonar, sem öðrum fremur var leiðtogi sjálfsstæðissinna, og kristallast í orðunum „vér mótmælum allir“, sem féllu á þjóðfundinum 1851. Svona til gamans læt ég hér fylgja smá stubb um fyrstu fjöldamótmæli á Íslandi sem nefnd hafa verið Norðurreið Skagfirðinga. „Norðurreið Skagfirðinga var ferð sem fjölmennur hópur Skagfirðinga fór í maí 1849 að amtmannssetrinu á Möðruvöllum í Hörgárdal til að mótmæla embættisfærslu Gríms Jónssonar amtmanns og krefjast afsagnar hans. Megn óánægja ríkti á meðal bænda um störf Gríms en hann var sagður hrokafullur og skeytingarlaus gagnvart Íslendingum og hugsa fyrst og fremst um hag Dana.“ Þegar Skagfirðingarnir mættu á staðinn hittu þeir ekki á amtmann, sem lá veikur í rúminu, en þess í stað gengu þeir umhverfis húsið, lásu upp samþykkt fundarins við Vallalaug, hrópuðu „Lifi þjóðfrelsið! Lifi félagsskapur og samtök! Drepist kúgunarvaldið!“. Ég man sem krakki að frí var gefið í skólum til að minnast fullveldisins 1. desember en svo er ekki lengur og er það miður. Fer ég fram á það að Alþingi Íslendinga taki sig saman og styðji þingsályktunartillögu sem sjö þingmenn Miðflokksins og einn úr Flokki fólksins lögðu fram sl. vor, en þar er vilji til að gera 1. desember aftur að almennum frídegi. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Til hamingju Ísland Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Í síðustu viku var tæpum 164 tonnum landað á Skagaströnd og var Þórsnes SH með mestan afla þeirra tíu báta sem þar lögðu upp. Á Sauðárkróki barst 381 tonn á land og var Málmeyjan aflahæst með tæp 193 tonn. Tveir bátar lönduðu á Hofsósi rúmlega sex og hálfu tonni og á Hvammstanga landaði Harpa HU rúmum þremur og hálfu tonni Heildarafli vikunnar á Norðurlandi vestra var 556.064 kíló. /FE Aflatölur 25. nóv. – 1. des. 2018 Þórsnes SH með 100 tonn SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKAGASTRÖND Auður HU 94 Landbeitt lína 4.095 Bragi Magg HU 70 Línutrekt 292 Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 7.032 Dísa HU 91 Landbeitt lína 514 Fengsæll HU 56 Línutrekt 1.751 Guðmundur á Hópi HU 203 Lína 7.741 Hafrún HU 12 Dragnót 6.182 Kristinn SH 812 Landbeitt lína 33.297 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 3.333 Þórsnes SH 109 Lína 100.433 Alls á Skagaströnd 164.670 SAUÐÁRKRÓKUR Dagur SK 17 Rækjuvarpa 18.001 Drangey SK 2 Botnvarpa 152.398 Málmey SK 1 Botnvarpa 192.617 Onni HU 36 Dragnót 14.786 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 3.271 Alls á Sauðárkróki 381.073 Hofsós Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 3.853 Þorgrímur Sk 27 Landbeitt lína 2.818 Alls á Hofsósi 6.671 Hvammstangi Harpa HU 4 Dragnót 3650 Alls á Hvammstanga 3650 Hvítur gervigrasvöllur Rafkerfið ræður ekki við full afköst Blönduós Vilko hefur vinnslu og pökkun fyrir Ölgerðina Kári Kárason, framkvæmdastjóri Vilko, og Gunnar B. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Ölgerðarinnar, undirrituðu nýverið samning um vinnslu og pökkun á nokkrum vörutegundum fyrir Ölgerðina. Verkefni þessi munu skapa ný framtíðarstörf há Vilko og nýta þann vélakost sem Vilko hefur fjárfest í undanfarin ár og er hér um mjög jákvætt skref að ræða fyrir fyrirtækið. Hér eru um að ræða framleiðslu á olíu, kryddum, poppi o.fl. „Forsvarsmenn beggja fyrirtækja eru samtaka um að auka þetta samstarf enn frekar á komandi mánuðum og árum sem er kærkomið fyrir atvinnulíf okkar hér á Norðulandi vestra. Þetta verkefni skapar ekki bara störf í Vilko heldur mun þetta fara hátt í að tvöfalda það vörumagn sem við sendum frá okkur með flutningsfyrirtækjum auk þess sem vélar og tæki þarf að þjónusta og viðhalda,“ segir á Facebooksíðu Vilko. Áætlað er framleiðsla hefjist fyrir áramót og að nýjar vélar komi í þessari viku. /FE Norðurland vestra 604 tonna byggðakvóti til landshlutans Nýlega úthlutaði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, 14.305 tonnum í sértækan og almennan byggðakvóta en samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða er 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund dregið af leyfilegum heildarafla og varið til ýmissa tímabundinna ráðstafana til þess að auka byggðafestu. Alls fá 45 byggðarlög í 27 sveitarfélögum úthlutað almennum byggðakvóta. Hámarks- úthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og lágmarksúthlutun 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar. Fimm byggðarlög á Norðurlandi vestra fengu úthlutun af almennum byggðakvóta, alls 604 þorskígildistonn. Skagaströnd fékk 300 tonn, Hvammstangi 133. Bönduós 86, Sauðárkrókur 70 og Hofsós 15. Nánar má kynna sér úthlutunina á vefsíðu Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. /FE Feykir fékk senda þessa mynd sem sýnir hvítan gervigrasvöllinn á Sauðárkróki. 2 46/2018

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.