Feykir


Feykir - 05.12.2018, Blaðsíða 3

Feykir - 05.12.2018, Blaðsíða 3
Verum snjöll verZlum heima Vissir þú...? Að kaupa jólagjafir og annað til jólanna hér heima er stuðningur við samfélagið okkar. Njótum þess besta og jólahátíðarinnar saman. Þannig njótum við öll gleðilegra jóla. N ÝPR EN T EH F REKO haslar sér völl á Norðurlandi Fyrsta afhending á Norðurlandi verður þann 20. desember Það eru ýmsar leiðir færar fyrir framleiðendur að koma vörum sínum á framfæri þó svo að um lítið magn sé að ræða. Bændamarkaðir hafa verið vinsælir og á Facebook má finna hópa undir merkinu REKO þar sem viðskipti geta farið fram. Framleiðendur setja inn færslur þar sem þeir tilgreina hvað þeir eru með til sölu og verð þess inn í viðburð (event) sem stofnaður er fyrir hvern REKO afhendingardag. Til þess að komast að því fyrir hvað REKO stendur hafði Feykir upp á henni Sigrúnu Indriðadóttur á Stórhóli í Lýtingsstaðahreppi og sendi henni nokkrar spurningar. „REKO á uppruna sinn á finnskri grundu, en REKO er tekið úr sænsku og er stytting á „vistvænir og heiðarlegir viðskiptahættir“ Markmiðið er að færa neytendur og fram- leiðendur nær hvor öðrum, efla nærsamfélagið, sækja ekki vatnið yfir lækinn, ásamt því að styðja við smáframleiðendur. Vita hvað þú ert að borða og halda matarmenningu, matar- hefðum og matarhandverki á lofti. Og ekki skemmir að kolefnissporunum fækkar til muna. Sjö REKO hópar hafa verið stofnaðir á Snjáldurskinnunni (Facebook); REKO Norðurland, sunnanverðir Vestfirðir, Vestur- land, Reykjavík, Suðurland, Hornafjörður og Austurland. Þetta virkar þannig að fyrir hverja afhendingu er stofnaður viðburður inn í viðkomandi hópi. Inn í þennan viðburð setja framleiðendurnir stöðufærslur þar sem fram koma upplýsingar um þær vörur sem þeir bjóða hverju sinni, ásamt verði og viðskiptaupplýsingum. Neytendur panta svo vörur hjá framleið- endunum með því að skrifa athugasemdir við færslur framleiðenda eða senda þeim einkaskilaboð og greiða fyrir þær rafrænt. Framleiðendur mæta svo með vörurnar á fyrirfram ákveðinn stað á ákveðnum tíma og neytandinn sækir.“ Hvernig líkar bændum annars vegar við þetta fyrirkomulag og neytendum hins vegar? „REKO er enn mjög nýtt, búnar að vera sjö afhendingar á landinu og allir enn að læra svolítið inn á þetta. En bændurnir eru mjög ánægðir með þetta, engir milliliðir, þú mætir bara með vöruna sem búið er að selja og heldur svo þína leið eftir afhendinguna, þarft ekkert að burðast með óselda vöru eða flýta þér heim áður en allt þiðnar. Neytendur eru einnig ánægðir með að hitta framleiðandann, eiga þetta samtal eða handaband, geta á einu bretti sótt fullt af vörum, fjölbreytt og ekkert endilega í miklu magni, losnað við flutningskostnað, og hlúð að svo mörgu mikilvægu í leiðinni. Er allt uppi á borðum, heilbrigðisvottun og skattaskil? „Það er allt uppi á borðum. Þeir sem selja í gegnum REKO verða að vera með tilskilin leyfi og standa skil á sínu. Þegar neytandi hefur pantað vöru stofnar seljandinn kröfu í heimabanka, sem kaupandinn greiðir svo áður en að afhendingu kemur. Með vör- unum fylgir svo reikningur eða sendist rafrænt. Á afhendingar- stað er því aðeins um að ræða afhendingu vöru en ekki sölu.“ Hvenær má reikna með næstu afhendingum og hvar? „Fyrstu afhendingarnar á Norðurlandi verða þann 20. og 21. desember. Blönduósi 20. desember við Húnabúð kl: 12-13. Sauðárkróki 20. desember hjá N1 kl: 16-17. Akureyri 21. desember hjá Jötunvélum kl: 12-13. Hvernig pantar maður vörur gegnum REKO? Þetta er á Snjáldurskinnunni (Facebook), þú slærð inn REKO og getur þá valið einhvern landshluta (veljum) Norðurland. Ofarlega til vinstri (veljum) Viðburðir/Events á þeirri síðu er boðið upp á þrjá viðburði (veljum) REKO afhending á Sauðárkróki, 20. des kl. 16-17 / vöruframboð (veljum) Umræða/Discussion. Hérna bjóða svo framleiðendur vörur sínar. Neytandinn pantar með því að gera athugasemd við færslu framleiðanda eða eins og framleiðandinn biður um, fær kröfu í heimabankann sinn eða millifærir inn á reikning framleiðandans og sækir svo vörurnar sínar á planið við Verkmenntahús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki kl. 16-17. Þetta sama gildir um hina viðburðina REKO afhending á Blönduósi, 20. des kl. 12-13 / vöruframboð og REKO afhending á Akureyri, 21. des kl. 12-13 / vöruframboð.“ Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? „Ég býð öllum að gerast meðlimir í REKO hringjunum. Auðvitað er púlsinn okkar á REKO Norðurland núna. Við erum öll neytendur, og með ykkar hjálp mun þetta framtak eflast og lifa. Verið dugleg að deila, segja vinunum frá og prófa. Svo óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla, árs og friðar og hlakka til að hitta ykkur þann 20. og 21 . des. næstkomandi.“ /PF Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lét sig ekki vanta á fyrstu REKO afhendinguna í Reykjavík, á planinu hjá Lindum í Kópavogi. AÐSEND MYND. 46/2018 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.