Feykir - 05.12.2018, Page 3
Verum snjöll
verZlum
heima
Vissir þú...?
Að kaupa jólagjafir og annað til jólanna hér heima
er stuðningur við samfélagið okkar.
Njótum þess besta og jólahátíðarinnar saman.
Þannig njótum við öll gleðilegra jóla.
N
ÝPR
EN
T EH
F
REKO haslar sér völl á Norðurlandi
Fyrsta afhending á Norðurlandi verður þann 20. desember
Það eru ýmsar leiðir færar
fyrir framleiðendur að koma
vörum sínum á framfæri þó
svo að um lítið magn sé að
ræða. Bændamarkaðir hafa
verið vinsælir og á Facebook
má finna hópa undir merkinu
REKO þar sem viðskipti geta
farið fram. Framleiðendur
setja inn færslur þar sem
þeir tilgreina hvað þeir eru
með til sölu og verð þess
inn í viðburð (event) sem
stofnaður er fyrir hvern
REKO afhendingardag. Til
þess að komast að því fyrir
hvað REKO stendur hafði
Feykir upp á henni Sigrúnu
Indriðadóttur á Stórhóli í
Lýtingsstaðahreppi og sendi
henni nokkrar spurningar.
„REKO á uppruna sinn á
finnskri grundu, en REKO er
tekið úr sænsku og er stytting á
„vistvænir og heiðarlegir
viðskiptahættir“ Markmiðið er
að færa neytendur og fram-
leiðendur nær hvor öðrum, efla
nærsamfélagið, sækja ekki
vatnið yfir lækinn, ásamt því að
styðja við smáframleiðendur.
Vita hvað þú ert að borða og
halda matarmenningu, matar-
hefðum og matarhandverki á
lofti. Og ekki skemmir að
kolefnissporunum fækkar til
muna.
Sjö REKO hópar hafa verið
stofnaðir á Snjáldurskinnunni
(Facebook); REKO Norðurland,
sunnanverðir Vestfirðir, Vestur-
land, Reykjavík, Suðurland,
Hornafjörður og Austurland.
Þetta virkar þannig að fyrir
hverja afhendingu er stofnaður
viðburður inn í viðkomandi
hópi. Inn í þennan viðburð setja
framleiðendurnir stöðufærslur
þar sem fram koma upplýsingar
um þær vörur sem þeir bjóða
hverju sinni, ásamt verði og
viðskiptaupplýsingum. Neytendur
panta svo vörur hjá framleið-
endunum með því að skrifa
athugasemdir við færslur
framleiðenda eða senda þeim
einkaskilaboð og greiða fyrir
þær rafrænt. Framleiðendur
mæta svo með vörurnar á
fyrirfram ákveðinn stað á
ákveðnum tíma og neytandinn
sækir.“
Hvernig líkar bændum annars
vegar við þetta fyrirkomulag
og neytendum hins vegar?
„REKO er enn mjög nýtt, búnar
að vera sjö afhendingar á
landinu og allir enn að læra
svolítið inn á þetta. En
bændurnir eru mjög ánægðir
með þetta, engir milliliðir, þú
mætir bara með vöruna sem
búið er að selja og heldur svo
þína leið eftir afhendinguna,
þarft ekkert að burðast með
óselda vöru eða flýta þér heim
áður en allt þiðnar. Neytendur
eru einnig ánægðir með að hitta
framleiðandann, eiga þetta
samtal eða handaband, geta á
einu bretti sótt fullt af vörum,
fjölbreytt og ekkert endilega í
miklu magni, losnað við
flutningskostnað, og hlúð að svo
mörgu mikilvægu í leiðinni.
Er allt uppi á borðum,
heilbrigðisvottun og skattaskil?
„Það er allt uppi á borðum. Þeir
sem selja í gegnum REKO verða
að vera með tilskilin leyfi og
standa skil á sínu. Þegar
neytandi hefur pantað vöru
stofnar seljandinn kröfu í
heimabanka, sem kaupandinn
greiðir svo áður en að
afhendingu kemur. Með vör-
unum fylgir svo reikningur eða
sendist rafrænt. Á afhendingar-
stað er því aðeins um að ræða
afhendingu vöru en ekki sölu.“
Hvenær má reikna með næstu
afhendingum og hvar?
„Fyrstu afhendingarnar á
Norðurlandi verða þann 20. og
21. desember.
Blönduósi 20. desember við
Húnabúð kl: 12-13.
Sauðárkróki 20. desember hjá
N1 kl: 16-17.
Akureyri 21. desember hjá
Jötunvélum kl: 12-13.
Hvernig pantar maður vörur
gegnum REKO?
Þetta er á Snjáldurskinnunni
(Facebook), þú slærð inn REKO
og getur þá valið einhvern
landshluta (veljum) Norðurland.
Ofarlega til vinstri (veljum)
Viðburðir/Events á þeirri síðu er
boðið upp á þrjá viðburði
(veljum) REKO afhending á
Sauðárkróki, 20. des kl. 16-17 /
vöruframboð (veljum)
Umræða/Discussion. Hérna
bjóða svo framleiðendur vörur
sínar. Neytandinn pantar með
því að gera athugasemd við
færslu framleiðanda eða eins og
framleiðandinn biður um, fær
kröfu í heimabankann sinn eða
millifærir inn á reikning
framleiðandans og sækir svo
vörurnar sínar á planið við
Verkmenntahús Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á
Sauðárkróki kl. 16-17.
Þetta sama gildir um hina
viðburðina REKO afhending á
Blönduósi, 20. des kl. 12-13 /
vöruframboð og REKO afhending
á Akureyri, 21. des kl. 12-13 /
vöruframboð.“
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri?
„Ég býð öllum að gerast
meðlimir í REKO hringjunum.
Auðvitað er púlsinn okkar á
REKO Norðurland núna. Við
erum öll neytendur, og með
ykkar hjálp mun þetta framtak
eflast og lifa. Verið dugleg að
deila, segja vinunum frá og
prófa. Svo óska ég ykkur öllum
gleðilegra jóla, árs og friðar og
hlakka til að hitta ykkur þann 20.
og 21 . des. næstkomandi.“
/PF
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lét sig ekki vanta á fyrstu
REKO afhendinguna í Reykjavík, á planinu hjá Lindum í Kópavogi. AÐSEND MYND.
46/2018 3