Feykir - 05.12.2018, Side 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Það er mas úr þér, vinur,
þetta: Léttir dettur.
Aldrei rasar reiðskjótur
rétt á sprettinn settur.
(Jón Ásgeirsson)
Theodór Arnbjörnsson frá Ósi
var fyrsti ráðunauturinn sem
sinnti starfi hrossaræktarráðu-
nautar Búnaðarfélags Íslands
sem aðalviðfangsefni. En fyrstu
afskipti Búnaðarfélags Íslands af
hrossarækt og hrossakynbótum
má rekja til ársins 1902, er félagið
réði til sín fyrsta ráðunautinn í
búfjárrækt. Það var Guðjón
Guðmundsson frá Finnboga-
stöðum í Strandasýslu en hann
var fyrsti Íslendingurinn sem
útskrifaðist sem búfræðikandidat
frá Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannhöfn og
var það aldamótaárið 1900. Stundaði hann eftir það
sérnám við skólann og ferðaðist svo um Bretland til
að kynna sér búfjárrækt og markaðsmál. Hann beitti
sér fyrir stofnun fyrsta hrossaræktarfélagsins;
Hrossaræktarfélags Austur-Landeyja, árið 1904 og
fyrstu sýningunni á vegum BÍ þar sem hross voru
sýnd, í Þjórsártúni 1906. Guðjón starfaði aðeins til
1908 en hann lést 13. maí það ár. Hann þótti þó
koma mikilli hreyfingu á búfjárræktina með stofnun
ræktunarfélaga og sýningahaldi. Næst var Ingi-
mundur Guðmundsson frá Syðrivöllum í Miðfirði
ráðinn búfjárræktarráðunautur. Hann varð búfræði-
kandidat frá Landbúnaðarháskólanum í Kaup-
mannahöfn árið 1908 og stundaði framhaldsnám í
búfjárfræði til 1910 er hann hóf störf hjá BÍ. Hann
starfaði þó sárstutt því hann drukknaði í mars 1912.
Hafði hann þá afkastað miklu starfi á svo stuttum
tíma en hann hafði m.a. sett upp fyrstu flokka-
tilraunina með fóðrun búfjár hér á landi með
mjólkurkýr á Hvanneyri. Að þessum tveimur yngri
mönnum gegnum hafði Sigurður Sigurðsson frá
Langholti í Flóa með hrossaræktarleiðbeiningarnar
að gera, en hann var gamall í hettunni, hafði til að
mynda starfað hjá Búnaðarfélagi Suðuramtsins sem
stofnað var 1837 og var undanfari Búnaðarfélags
Íslands en það var stofnað 1899. Sigurður var að
nokkru sjálfmenntaður í landbúnaðarfræðum en
sótti búnaðarnám í einn vetur í Danmörku og las í
fram-haldinu við norska landbúnaðarháskólann að
Ási í einn vetur. Árið 1920 var Theodór Arnbjörnsson
ráðinn til BÍ og sinnti fyrst sauðfjár- og hrossarækt
en eftir 1927; hrossaræktinni einvörðungu.
Theodór fæddist 1. apríl 1988 að Stóraósi í
Miðfirði. Hann varð búfræðingur frá Hólum 1913,
verkstjóri þar 1915 til 1917 og bóndi á Lamba-
nesreykjum í Fljótum 1917 til 1919. Til undir-
búnings starfa sinna fyrir Búnaðarfélag Íslands
sótti hann nám við Landbúnaðarháskólann í
Kaupmannahöfn árin 1919 til ´20. Theodór hóf
færslu ættbókar BÍ árið 1923, var það merkur áfangi
í sögu ræktunar íslenska hestsins. Theodór þótti
marka djúp spor í hrossaræktinni með stefnu sinni
og starfi. Hann þótti og mikill nákvæmnismaður og
var samhliða störfum sínum að hrossaræktar-
leiðbeiningunum féhirðir BÍ frá 1934 til dauðadags
5. janúar 1939.
HESTAR OG MENN
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Úr fórum Theodórs
Brynjar Þór, sem átti góðan leik, verst Gerald Robinson í liði ÍR, sem átti
ekki góðan leik. MYND: HJALTI ÁRNA
Dominos-deildin : Tindastóll – ÍR 92-51
Breiðhyltingar
sökkuðu í Síkinu
ÍR-ingar hafa síðustu
misserin mætt
grjótharðir í Síkið og
verið til tómra vandræða
fyrir Tindastólsmenn.
Það var því reiknað
með hörkuleik þegar
Breiðhyltingar komu í
heimsókn í 8. umferð
Dominos-deildarinnar
22. nóvember. Eftir
jafnan leik brutu Stólarnir
mótstöðu ÍR niður í
öðrum leikhluta og sögðu
síðan „bless“ í byrjun
síðari hálfleiks. Það lá
við að stuðningsmenn
Tindastóls væru farnir
að vorkenna gestunum
og þá er nú langt gengið.
Lokatölur voru 92-51.
Heildarframlag ÍR liðs-
ins voru 37 punktar í
leiknum en Stólarnir voru
með 120 punkta. Pétur átti
flottan leik og gerði 22 stig,
átti sex stoðsendingar og
tók fimm fráköst. Brynjar
Þór gerði 20 stig á 20
mínútum, Dino var með
16 stig, Alawoya 13 stig og
13 fráköst og Danero 12
stig og 11 fráköst. Það eina
sem var neikvætt í leiknum
var að það komu ekki
mörg stig af bekknum en
það er ekki hægt að setja út
á framlag Tindastólsmanna
sem spiluðu vörnina af
fítonskrafti. Viðar gerði til
dæmis ekkert stig í
leiknum en ÍR-ingar hefðu
örugglega verið sáttari
hefði hann bara verið
heima hjá sér.
Lið Tindastóls er nú á
toppnum ásamt Njarðvík.
Næsti leikur Tindastóls
verður í Smáranum 9. des.
en næsti heimaleikur er
gegn liði Skallagríms þann
13. desember. /ÓAB
1. deild kvenna : Hamar - Tindastóll
Tveir sigrar gegn Hamri
Kvennalið Tindastóls gerði góða ferð í Hveragerði um
helgina en stelpurnar léku tvo leiki við heimastúlkur
í Hamri og gerðu sér lítið fyrir og unnu þá báða. Að
loknum sjö umferðum er lið Tindastóls í fimmta sæti
1. deildar með sex stig, jafn mörg og lið Þórs frá
Akureyri sem hefur leikið fjóra leiki.
Lið Hamars og Tindastóls mættust fyrst á
laugardeginum og var um hörkuleik að ræða. Heimastúlkur
byrjuðu betur en jafnræði var með liðunum í öðrum og
þriðja leikhluta en alltaf voru Stólastúlkur yfir. Í fjórða
leikhluta náðu heimastúlkur að minnka muninn í 57-60,
en Stólastelpur náðu að tryggja sér sigur á lokamínútunum.
Lokatölur voru 63-68 fyrir Tindastól.
Leikurinn á sunnudeginum var frekar jafn framan af
og Stólastúlkur alltaf með yfirhöndina en í síðasta leikhluta
fór lið Tindastóls á kostum og gerði 31 stig gegn ellefu
stigum Hamars. Lokatölur því 41-71. Frábær árangur hjá
Stólastelpum ÓAB/SG
Theodór Arnbjörnsson hrossaræktarráðunautur BÍ við dómstörf á Suðurlandi um 1930.
LJÓSMYND: EINKASAFN THA, SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS.
Theodór var að auki afar ritfær maður en eftir hann
liggja þrjár bækur: Hestar sem kom út 1931 og
Járningar 1938, þessi rit eru vel kunn á meðal
hestafólks og hið fyrrnefnda er sígilt öndvegisverk
og var enda endurútgefið árið 1975. Bæði þessi rit
komu út hjá Búnaðarfélagi Íslands í ritröðinni
Búfræðirit Búnaðarfélagsins. Þriðja ritið sem liggur
eftir Theodór heitir Sagnaþættir úr Húnaþingi og
kom út hjá Ísafoldarprentsmiðju að honum látnum
árið 1941. Þá birtist eftir hann fjöldi greina í
búnaðarritinu Frey og víðar.
Ritið Sagnaþættir úr Húnaþingi er hvoru tveggja
listavel skrifað og fróðlegt. Lengsti bálkurinn þar
ber heitið Sagnir af Þingeyrarfeðgum, Ásgeiri
Einarssyni og Jóni Ásgeirssyni. Margt er það fróðlegt
að finna sem verður nánar rakið í annarri grein en
eins og frægt er var Jón Ásgeirsson mjög rómaður
sem hestamaður og víðkunnur sem gleðimaður.
Faðir hans, Ásgeir, var mikill bóndi, harðduglegur
og auðsæll, var hann og þingmaður og einn af al-
traustustu fylgismönnum Jóns Sigurðssonar forseta
í hans baráttu.
Vísan hér í upphafi greinarinnar er eftir Jón
Ásgeirsson og ber í sér mikinn vísdóm á sviði reið-
mennsku en til marks um hve margþætt efnistök
Theodórs eru í sagnaþættinum skal tilfærð önnur
vísa sem hljóðar svo:
Nú er hlátur nývakinn,
nú er grátur tregur.
nú er ég kátur, nafni minn,
nú er ég mátulegur.
(Jón Ásgeirsson, sumir telja þó vísuna eftir Jón
Þorvaldsson en kveðna við Jón Ásgeirsson)
„Og hefur drykkjugleði ekki verið betur lýst á
íslenzku.“ Eins og Theodór kemst að orði. Hann
dregur þó hvergi undan með hve ofdrykkja Jóns var
skaðvænleg og segir undir lok sagnaþáttarins:
„Gleðinni unni hann mest, og gleðinni fórnaði hann
öllu, einnig gæfu sinni. Því eru sagnir um Jón
Ásgeirsson sagnir um gleðimann en ekki
gæfumann.“
Þar sem þetta er síðasta greinin eftir mig sem
birtist hér í Feyki núna fyrir hátíðirnar, óska ég
öllum gleðilegra jóla, árs og friðar og þakka
samfylgdina á árinu sem er að líða.
Kristinn Hugason
46/2018 5