Feykir - 05.12.2018, Blaðsíða 6
Síkið er heimavöllur Tindastóls í körfunni. Stólarnir þykja erfiðir heim að sækja og
stemningin klikkar sjaldnast. Andstæðingar Stólanna segja erfitt – en gaman – að
mæta í Síkið, enda vanalega vel mætt á pallana og þegar mikið er undir eru
svalirnar umhverfis völlinn þétt staðnar. Það má teljast fífldjarft að skella á
einhverjum viðburði eða fundi á Sauðárkróki á sama tíma og Stólarnir spila í Síkinu
– ekki einu sinni Framsóknarfélagið mundi reyna það þó mikið lægi við.
Hér fer á eftir örlítil upprifjun á sögu Síkisins og atburðum og uppákomum sem
sumir muna kannski allt öðruvísi en söguritari.
Trítilóð Tindastóls-stemning í Síkinu síðastliðið vor. Stuðningsmenn Stólanna missa sig örlítið í kjölfar risatroðslu Chris Davenport á lokamínútum erfiðs leiks gegn liði ÍR. MYND: HJALTI ÁRNA
Feykir fjallar um heimavöll Tindastóls í körfunni
sumar 1988, eða á svipuðum
tíma og Stólarnir hófu leik í
efstu deild. Hann segist hafa
farið að velta fyrir sér að gaman
væri að nefna íþróttahúsið á
Sauðárkróki einhverju grípandi
og skemmtilegu nafni. Í raun
var aðeins eitt hús á landinu,
þar sem körfubolti var iðkaður
af alefli, sem bjó að grípandi og
ógnvænlegu nafni en það var
að sjálfsögðu Ljónagryfjan í
Njarðvík. Þangað fóru menn
vart nema skjálfandi á bein-
unum, enda var stemningin
mikil og Njarðvíkingar nær
ósigrandi, með frábært lið ár
eftir ár.
Að sögn Þórhalls var hann á
báðum áttum varðandi það að
finna nafn á húsið, kannski var
hálf lélegt að elta Njarðvíkingana
í þessum efnum og ljóst að
nafnið þurfti að hitta í mark ef
það átti að festast. Þórhalli datt
þó í hug að þar sem lið
Tindastóls væri frá Sauðárkróki
og leikmennirnar flestir Króks-
arar, þá væri ekki óeðlilegt að
tengja þá við krókódíla og
íþróttahúsið því við krókódíla-
síki – eða í stuttu og grípandi
máli; Síkið.
Og með áhorfendur allt í
kring og leikmennina svaml-
andi til sigurs í suðupottinum
var völlurinn nánast eins og
krókódílasíki. Nafngiftin smell-
passaði. Þannig að Þórhallur
fór að nefna heimavöll Stólanna
Íþróttahúsið á Sauðárkróki var
tekið í notkun árið 1985 en
flestum þykir orðið sjálfsagt að
tala um það sem Síkið, þó
kannski þyki ekki öllum mikill
glæsibragur yfir nafninu.
En af hverju Síkið?
Þórhallur Ásmundsson, fyrrum
ritstjóri Feykis, kom fyrstur
fram með þessa nafngift, að
öllum líkindum fljótlega eftir að
lið Tindastóls komst upp í efstu
deild vorið 1988. Körfubolta-
áhugi hafði lengi verið land-
lægur í Skagafirði og ekki
minnkaði hann þegar menn
voru komnir í löglegt hús á
Króknum og þurftu ekki lengur
að spila heimaleiki á Akureyri
eða Húnavöllum. Var stefnan
fljótlega sett á að komast í efstu
deild.
Stólarnir, þjálfaðir af Kára
Mar, sem spilaði líka, fengu
haustið 1988 til sín einn öflug-
asta leikmann Íslands á þessum
tíma, Njarðvíkinginn Val Ingi-
mundarson, en annars var byggt
á efnilegum heimamönnum
eins og Jolla Sverris og Sverri
bróður hans, Bjössa Sigtryggs,
Halla Freyju, Gústa Kára og
fleiri köppum. Stemningin í
húsinu varð strax ógurleg en
það var þá helmingi minna en
það er í dag. Fyrst voru
áhorfendur eingöngu á svölun-
um góðu allt í kringum völlinn,
líkt og nú, en síðan bættist við
stúka norðanmegin í húsinu (nú
er stúkan vestanmegin). Þeir
sem stóðu fyrir aftan körfu-
spjöldin voru í minna en
metersfjarlægð frá körfunum og
því ofan í leikmönnum liðanna.
Sæmilega handleggjalangir
áhorfendur gátu nánast varið
skot úr hornunum – nálægðin
var hreinlega geggjuð.
Þórhallur hafði aðeins skrif-
að um íþróttir í Feyki en tók að
sér að stýra blaðinu um mitt
Síkið – er staðurinn!
UMFJÖLLUN
Óli Arnar Brynjarsson
Einn eftirminnilegasti leikur Stólanna í gamla Síkinu var spilaður
16. október 1988 í því sem þá kallaðist Flugleiðadeildin. Haukar
voru meistarar á þessum tíma, með snillinga eins og Pálmar
Sigurðs, Henning Hennings og Króksarann Inga Petru í sínu liði.
Mætingin í Síkið var að öllum líkindum meiri en lög og reglur gerðu
ráð fyrir. Dómarar voru Kristján E. Möller og Króksarinn Helgi
Bragason sem heimamönnum þótti sjaldnast nægilega hliðhollur
Tindastóli miðað við uppruna.
Kári Marísson, sem þjálfaði og lék með Stólunum á þessum
tíma, var spurður hvort þetta væri eftirminnilegasti leikurinn
sem hann hefði tekið þátt í í Síkinu og hann svarar: „Þessi leikur
stendur upp úr og þá fyrst og fremst var hann ótrúlega spennandi
og fáránlegar körfur skoraðar til að jafna hann, bæði í venjulegum
leiktíma sem og framlengingunum. Einnig er ógleymanlegt einvígi
Pálmars Sigurðssonar í Haukum sem skoraði 48 stig og setti
lokakörfuna spjaldið oní á flautunni í lok venjulegs leiktíma, og Vals
Ingimundarsonar sem skoraði 54 stig.“
Leikurinn var eins og Kári segir þrí framlengdur eftir að hafa
endað 106-106 í venjulegum leiktíma. Að lokinni fyrstu framlengingu
var staðan 118-118, því næst 127-127 en Haukarnir höfðu betur að
lokum, 134-141.
Valur Ingimundar var öflugur í liði Stólanna með 54 stig og 22
fráköst eftir að hafa spilað allar 55 mínúturnar. Eyjólfur Sverris
skilaði 31 stigi á 24 mínútum og Bjössi Sigtryggs og Kári Mar voru
með 12 stig hvor. Á þessum tíma voru tíu leikmenn á skýrslu og
bæði lið voru búin að missa helminginn af liði sínu út af með fimm
villur áður en yfir lauk.
Háspenna í Síkinu TINDASTÓLL - HAUKAR 134-141
Leikurinn gegn meisturum Hauka 1988
NÝKRÝNDIR ÍSLANDSMEISTARAR TINDASTÓLS Í 1. DEILDINNI Í KÖRFUBOLTA 1988.
Efri röð frá vinstri: Friðrik Jónsson, liðsstjóri, Karl Jónsson, Jón Þór Jósepsson, Ágúst
Kárason, Jón Már Guðmundsson, Haraldur Leifsson, Björn Sigtryggsson, Stefán
Reynisson og Kári Marísson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Jóhann Magnússon, Sverrir
Sverrisson, Eyjólfur Sverrisson og Pétur Vopni Sigurðsson. MYND ÚR FEYKI VORIÐ 1988
6 46/2018