Feykir


Feykir - 05.12.2018, Page 11

Feykir - 05.12.2018, Page 11
Aðferð: Allt sett saman í pott inn í ofn í 1½ klst., fyrst við 180°C í 1 klst., hækkið þá hitann í 200°. Takið lokið af pottinum síðustu 30 mínúturnar. Sósa: Notið soðið af skönkunum en bætið við smá rauðvíni og rjóma ásamt salti og pipar. Berið fram með steiktum sætum kartöflum, lauk og gulrótum. Ég mæli með að drekka jólabjór eða rauðvín með matnum. EFTIRRÉTTUR Nú ættu að vera komnar piparkökur inn á flest heimili svo njótum þeirra með heitum súkkulaði-drykk fyrir börnin og bætum staupi af brandy með fyrir fullorðna. Takk fyrir og gleðileg jól. Hallgrímur skorar á mömmu sína, Sigríði Hallgrímsdóttur á Markhöfða. SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Skaut. Feykir spyr... Hver er uppáhalds jólasveinninn? Spurt á Kirkjutorgi UMSJÓN palli@feykir.is „Kertasníkir. Hann er langskemmtilegastur.“ Hulda Þórey Halldórsdóttir „Gáttaþefur. Hann er með svo langt nef.“ Friðrik Henry Árnason „Stúfur. Mér finnst hann skemmtilegur. Hann gefur mér stundum gjafir í skóinn. “ Snæfríður Áskelsdóttir „Kertasníkir. Hann er seinastur og ég elska kerti eins og hann.“ Álfheiður Lilja Ólafsdóttir KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Krossgáta Tilvitnun vikunnar Trúarbrögð. Þau hafa gefið fólki von í heimi sem er sundraður vegna trúarbragða. – Jon Stewart Su do ku Hallgrímur Valgeir, eða Halli Valli, býr á Hvammstanga ásamt konu sinni, Linu Yoakum sem er frá Litháen, og syninum Maximus. Hallgrímur segir að þau hafi gaman af að elda alls kyns mat og hér gefur hann okkur spennandi uppskriftir af rauðrófusúpu og lambaskönkum. FORRÉTTUR Rauðrófusúpa - fyrir 4-6 1 laukur 2 hvítlauksrif 1 msk engifer 2 rauðrófur 1 stór kartafla, smátt skorin 1 l vatn smá hunang, eftir smekk salt og svartur pipar Aðferð: Steikið lauk, hvítlauk og engifer í 4-5 mínútur. Bætið öðru hráefni við og sjóðið í 20-30 mínútur. Maukið allt með sprota og súpan er næstum klár. Jógúrtsósa: 1 dós hrein jógúrt 1 tsk engifer 4 mintulauf Aðferð: Mixið allt saman. Súpan sett í skál og jógúrtsósan út á. Skreytið t.d. með því að fara með matskeið í jógúrtina hring eftir hring. AÐALRÉTTUR Lambaskankar fyrir 4 (passar að áætla einn skanka á mann) 4 lambaskankar 2 greinar rósmarín 3 bollar vatn 2 bollar rauðvín 3 msk hunang 1 msk kanill salt eftir smekk pipar eftir smekk 1 laukur 3 gulrætur 2 stilkar sellerí 4 epli Rauðrófusúpa og skankar ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is Hallgrímur Valgeir Yoakum eldar Hallgrímur Valgeir Yoakum og sonur hans Maximus. MYND ÚR EINKASAFNI 46/2018 11 Ótrúlegt – en kannski satt.. Á 18. öld voru sett lög á Englandi sem kváðu á um að líta mætti á konur sem máluðu á sér varirnar sem nornir sem reyndu að tæla menn í hjónaband og mætti refsa þeim samkvæmt því. Ótrúlegt, en kannski satt, þá ber hver kona að jafnaði tæp 3 kíló af varalit á sig á lífsleiðinni. Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Seglið ei við látum lafa. Listavel ég brúði fer. Erum tvö á orkugjafa. Athvarf smárra er best í mér. FEYKIFÍN AFÞREYING

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.