Bæjarbót - 01.03.1987, Síða 6
6
Óháð flokkadrætti
sér þess
T>eir eru líka teljandi« * v0sbúðin
sjómanna
I afmælishófi SVFG flutti
Karl Steinar Guðnason alþing-
ismaður og verkalýðsleiðtogi
ræðu þá sem hér fer á eftir, en
hann veitti blaðinu fúslega leyfi
tii að birta ræðuna.
Ég flyt ykkur kveðjur og
árnaðaróskir sjómanna og
verkafólks frá Keflavík, Njarð-
víkum, Vogum og Höfnum.
Þeim byggðum sem í aldanna
rás hafa haft hvað mest sam-
skipti við sjómenn þá er byggt
hafa upp Grindavík.
Það fólk, sem þrátt fyrir
harða lífsbaráttu hefur dugað en
ekki drepist. Dugað gegn harð-
æri, aflabresti og úrtölum.
Fólk, sem byggt hefur upp
traust og myndarlegt samfélag
hér í Grindavík, - hvar sjórinn,
seltan og sannfæringin um að
hér geti þrifist gott mannlíf
hefur flutt fólkið hér frá gamla
íslandi til þess nýja eins og sagt
er í bókinni hans Tómasar Þor-
valdssonar.
Þar er þess getið hve gamli
tíminn var fólkinu erfiður
a.m.k. á okkar mælikvarða,
-þeirra, sem nú njóta þeirra lífs-
gæða, sem forfeður okkar lögðu
grundvöll að.
Þar er getið um ferðalýsingu
Sir George Steuart Mackenzie,
sem kom til landsins árið 1810,
hvar segir að í Grindavík hafi
fólkið komið út úr kotum sínum
eins og maurar úr moidarbing.
í áðurnefndri bók, sem andar
af sögu liðins tíma má sjá svip-
leiftur minninga manns, sem
upplifði ferðina frá fátækt til
allsnægta.
Verkalýðsbarátta, - stéttarvit-
und verkafólks og sjómanna á
sér litríka sögu. Það voru sjó-
menn, sem fyrstir vöktu hug-
sjónir um rétt hins vinnandi
manns hér á landi.
Hugsjón um samtök og sam-
stöðu birtist fyrst með stofnun
Hásetafélags Reykjavíkur, sem
síðar varð aflvaki stærri hluta.
Grindvíkingar eiga sér líka lit-
ríka sögu í þessum efnum. Hér í
þessu dæmigerða sjávarplássi
hafa margir mestu andans menn
íslendinga lifað sínar bestu
stundir. Hér var skrifuð einhver
sterkasta frásögn af verkalýðs-
baráttu. Frásögn eða skáldsaga,
sem átti þátt í að Halldór Kiljan
Laxnes hlaut Nóbelsverðlaun á
sínum tíma.
Tíminn er afstætt hugtak.
Aldur er afstætt hugtak. Þrjátíu
ár eru ekki langur tími á mæli-
kvarða sögunnar. Þrjátíu ár eru
langur tími á mælikvarða félags,
en félög eða samtök eru í raun
ekki gamalt fyrirbæri á íslandi.
Sú þjóðfélagsbylting, sem við
tölum svo oft um að hafi gerst,
er enn að gerast. Það stendur
ekkert í stað. Það er allt á hreyf-
ingu. Kyrrstaða skapar stöðnun,
Það viljum við frábiðja okkur.
Við sem höfum hugsjónir
verkalýðshreyfingar að leiðar-
ljósi vitum líka að ekkert gerist
af sjálfu sér. Þjóðfélagið er eins
og leirinn, sem hægt er að móta.
Afl, samstöðu getur mótað.
Sundrung og sundurlyndi móta
aldrei neitt.
Ég játa það hér að margt í
umhverfinu er mér áhyggjuefni.
Þegar ég var ungur drengur var
bryggjan leikvöllurinn og seinna
var það sjórinn, sem freistaði.
Það þótti ekki viðræðuhæfur
maður, sem ekki vissi hvernig
fiskiríið gekk. Hversu mörg
skippund höfðu borist að landi
þennan eða hinn daginn.
Ég minnist einnig viðræðna
við Emil heitinn Jónsson ráð-
herra. Stundum var það í viður-
vist félaga okkar Svavars Árna-
sonar. Alltaf spurði Emil um
fiskiríið. Hann hafði lítið við
okkur að tala fyrr en það var
upplýst. Þar fór maður, sem
hafði tilfinningu fyrir því hverju
við lifum af.
Það er mér áhyggjuefni
almennt hve fjölmiðlar og
skólakerfið vinnur að mínu mati
markvisst að því að minnka veg
útgerðar, sjómennsku og fisk-
vinnslu. Trúnaðarkona í Bæjar-
útgerð Reykjavíkur sagði mér
fyrir nokkru sögu: Hún sagði að
kennari í Reykjavík hefði komið
þangað með nemendur sína til
að skoða fiskiðjuverið. Er það
hafði gerst kallaði hann á nem-
endurna og sagði: ,,Jæja
krakkar, ef þið verðið ekki dug-
leg að læra þá lendið þið hér.“
Vafalaust hafa nemendurnir
íhugað lengi og vel það ægilega
hlutskipti. Eitt er víst að í
hugum læriföðursins var það
botninn.
í nokkur ár hefi ég setið á
Alþingi. Aldrei hefi ég heyrt
ráðamenn spyrja um fiskiríið, -
um það hvort þeir hafi róið í dag
eða hvort það sé hugur í mönn-
um. í þessari æðstu stofnun
þjóðarinnar hefur vissulega
margt breyst. En það eru ein-
staklingar þar innandyra sem
vissulega hafa seltuna í sér
ennþá.
Einn þeirra er Garðar Sigurðs-
son, - sem reyndar er verið að
hrekja þaðan núna. Garðar er
afskaplega orðheppinn maður
og fer oft á kostum og gaman-
samur mjög.
Eitt sinn var verið að ræða í
Sameinuðu þingi um málefni
skreiðarverkunar. Garðar mælti
fyrir nefndaráliti og sagði að
það væru víst ekki margir þar
inni sem vissu hvernig skreið liti
út. Guðmundur Jaki kallaði
fram í og sagði:
„Þú hefðir átt að koma með
skreiðarband til að sýna þeim.“
Þá gall í Guðrúnu Helgadóttur,
sem vildi leggja orð í belg og
sagði: „Það eru nú margar
skreiðirnar hér inni“ Garðar leit
þá hvasst til Guðrúnar, - glotti
-horfði yfir gleraugun og sagði:
„Já, Guðrún, það er ýmislegt
farið að þorna upp hér inni.“
Hvað varðar sjómannastétt-
ina í heild finnst mér afskipta-
leysið átakanlegt. Á hátíðis og
tyllidögum er oft margt talað og
skrafað. Þar eru hetjur hafsins
lofaðar og hafðar í frammi
hátíðlegar yfirlýsingar um mikil-
vægi sjómannastarfsins.
Reynslan er því miður sú að
oftast er þetta einungis svokall-
að sunnudagskjaftæði, - sem
gleymist næsta dag. Helst er það
fréttnæmt þegar öfundast er yfir
góðum sölutúrum, - eða góðum
afla. Það eru hinsvegar fáir til
frásagnar í fjölmiðlum þegar
aflaleysi og ömurleiki kaup-
tryggingar verður hlutskipti sjó-
manna.
Þeir eru líka teljandi, sem
gera sér þess nokkra grein hve
vinnutíminn, vosbúðin og vök-
urnar eiga stóran þátt í störfum
sjómanna.
Sú staðreynd hlýtur að lýsa
veginn að hvergi í heiminum er
haldið uppi velferðar og menn-
ingarríki þar sem fiskveiðar eru
undirstaðan, - nema hér á ís-
landi. Alls staðar annarsstaðar
er þessi atvinnugrein styrkt af
ríkinu. Hér er það sjávarútveg-
urinn sem styrkir alla hina.
Það er meðal annars þess
vegna sem við hljótum að gera
þá kröfu til þjóðfélagsins að sjó-
mannastéttin sé metin að verð-
leikum.
—Að reisn hennar verði meiri.
—Að hlutur hennar verði meiri.
Það varð ríki Rómverja að
falli þegar þeir hættu að nenna
að vinna. Það verður íslensku
þjóðfélagi að falli hætti menn
aðjjekkja undirstöðuna.
I bókinni hans Tómasar Þor-
valdssonar segir frá tímum von-
leysis. Einnig frá því þegar sigur
vannst í baráttunni fyrir framtíð
byggðarlagsins.
Þar segir hann: „Það lífsstríð
var tvísýnt og ekki sársauka-
laust. Hér ríkti eymd í bernsku
minni, þótt við fyndum ekki
ýkja mikið fyrir henni. Við
drógumst aftur úr öðrum
byggðarlögum á íslandi.“
Og síðan segir hann: „Það
var svo komið, að vermenn
héldu ekki til sjóróðra í Grinda-
vík, - nema þeir fengju ekki
skipsrúm annarsstaðar.
Þetta verkaði lamandi á
okkur.
Og við vorum í sjálfheldu.
Við gátum ekki fylgt þróun
tímans, þótt við fegnir vildum,
-við gátum ekki stækkað skipin
þótt við hefðum haft peninga til
þess því að hér var engin
aðstaða, engin höfn og brim-
lendingin svona illræmd og
heiftúðug.
Það hvarflaði að mörgum að
gefast upp. - Og sumir gerðu
það.
Fyrsta fjölskyldan flutti burt,
- og síðan hver af annarri. - Það
var sár blóðtaka. - En við lifðum
af.“
Þetta er saga mikillar baráttu,
kjarks og þrautsegju. En ég
spyr: „Hvar erum við stödd i
dag. Erum við óhult í þeirri tog-
streitu um aflann, sem nú
stendur yfir.“?
Erum við óhult fyrir skömmt-
unarstjórum kerfisins? Héðan
af Suðurnesjum streyma nú þús-
undir tonna af kvóta til annarra
landshluta. Skipin hverfa af
braut og á þessu svæði þar sem
vaxtarbroddur útgerðar og sjó-
mennsku hefur verið stolt okkar
síðustu áratugina.
Er ekki ástæða til að staldra
við? - Er ekki varnarbaráttu
þörf? - Eitt er víst að í þessu sem
öðru þarf að berjast.
Karl Steinar Guðnason
í þeirri baráttu þarf líka og
aftur samstöðu, - kjark og
þrautsegju. Þá vinnst líka sigur.
Þá komast ráðamenn ekki upp
með að svipta Suðurnesjamenn
lífsbjörginni. Þá lifum við af.
Góðir félagar:
Það er tekið eftir því þegar
sagt er frá fundum Sjómanna-
og vélstjórafélags Grindavíkur.
Það er mikið mein samtaka sjó-
manna hve erfitt er að fá menn
til fundarsóknar. Það er hins-
vegar oft uppörvandi að heyra
fréttir af starfi ykkar hér í
Grindavík. Þið hafið líka haft
dugandi menn í forystu, sem
haldið hafa um stjórnvölinn af
öryggi og festu. Samstarf okkar
nágranna hefur líka verið svo
sem best hefur verið á kosið.
Ég endurtek innilegar ham-
ingjuóskir í tilefni tímamót-
anna.
Ef menn standa saman um
hagsmuni sjómanna, - um hags-
muni byggðarlagsins þá getum
við áfram gunnreifir sungið það
stef, sem ætíð snertir hjörtu
Suðurnesj amanna.
,,Sagt hefur það verið
um Suðurnesjamenn,
fast þeir sóttu sjóinn
og sækja hann enn.“
^otrsentt
davvk-
y --T{
tovariVerrti /
\N Homavan
^Ute&bQraÍ-
'10°’
Keitele
Á __ Jyvéskylí
NástfrWÁ \/
Tampere ~L. ’ J
rammenorsL . \p
Hiiumat
tltaiiö) ■
•Öv Vánem,
F.istland
Verð aðeins kr. 33.000,-
(Innifalið: Flug, rútur og ferjuferðir, gisting,
morgunmatur og fararstjórn).
Upplýsingar gefur Halldór Ingvason í síma 8183