Bæjarbót - 01.03.1987, Síða 14
14
Óháð flokkadrætti
Nokkur barnanna stilltu sér upp fyrir Ijósmyndarann, ásamt starfsstúlkunum Gunnhildi Björg-
vinsdóttur og Sigríði Ágústsdóttur.
Leikskóli í stað verbúðar:
„Viljum heimafólkið út á
vinnumarkaðiim*4
—rætt við Ágústu Gísladóttur í Gullvík hf.
Þessi ungi maður, Guðmundur Þórður Ásgeirsson, hélt
nýlega tombólu og safnaði alls 310 krónum, sem hann lét
renna til Heimilis aldraðra. ,,Mérgekk vel að safna hlutum og
líka að selja“ sagði Guðmundur.
Það hlýtur að vera mjög fátítt
að fiskverkunarfyrirtæki reki
fullkominn leikskóla, sem jafn-
framt er dagheimili með öll til-
skilin leyfi frá bæjaryfirvöldum
og félagsmálaráðuneyti. Þetta
gerir Gullvík hf. hér í Grindavík
og er aðstaðan sem börnunum
er boðin mjög aðlaðandi og
geysilega vel búin. Leikskóli
Gullvíkur getur tekið 16 heil-
dagsbörn, eða 32 hálfan daginn.
Hann er ekki orðinn fullsetinn
og rétt er að geta þess að hann er
ekki eingöngu fyrir börn starfs-
fólks fyrirtækisins, heldur geta
allir foreldrar sótt um fyrir börn
sín, þ.e. séu þau á aldrinum 3ja
mánaða og allt að 12 ára aldri!
Ágústa Gísladóttir
Með vorinu mun Kristín Páls-
dóttir ljúka sínu fóstrunámi og
taka við stjórn leikskólans, en
hún hefur verið ráðgefandi
varðandi uppbygginguna
hingað til. Nú eru þær Sigríður
Ágústsdóttir, Gunnhildur
Björgvinsdóttir og Svanhvít
Másdóttir starfandi við leikskól-
ann. Bæjarbót spurði Ágúsíu
Gísladóttur, sem á Gullvík,
ásamt manni sínum, Hafsteini
Sæmundssyni, af hverju þau
hefðu farið út í að breyta húsi,
sem upphaflega var ætlað sem
verbúð, í nýtískulegan leikskóla.
„Grunnurinn er náttúrulega
sá að mörg vandkvæði fylgja
því að vera með verbúð. Það
kostar eiginlega vakt allan sólar-
hringinn. í gegn um störf mín í
félagsmálaráði er mér svo full-
kunnugt um þörfina fyrir barna-
gæslu í bænum. Okkur hjón-
unum kom því saman um að
prófa þetta. Þetta er bara einfalt
reikningsdæmi, að reikna út
kostnað við rekstur verbúðar,
matráðskonu og annað sem
fylgir, og síðan að reikna út
kostnaðinn við leikskólann og
gæslu. Annars er grunnhug-
myndin á bak við þetta auðvitað
sú að gera heimafólki kleyft að
koma út á vinnumarkaðinn í
auknu mæli, en þurfa ekki að
byggja um of á aðkomufólki,
sem kemur hér á vertíð.“
Er ekki kominn gífurlegur
kostnaður á þetta?
„Jú, auðvitað kostar þetta
mikið fé. Líklega höfum við lagt
í þetta hátt á aðra milljón. Það
er þó ekki eingöngu vegna leik-
skólans. í álmunni höfum við
líka innréttað fallega skrifstofu
fyrir fyrirtækið og einnig mjög
góða aðstöðu fyrir okkar starfs-
fólk, t.d. er þarna þrek og kraft-
þjálfunarherbergi og ljósa-
bekkur. Allt þetta kostar mikið
fé, en í staðinn fáum við heima-
fólk til okkar í vinnu við góðar
aðstæður og án þessara venju-
legu áhyggja af barnagæslunni“
sagði Ágústa að lokum.
Agœtu lesendurl
Ef einhver hefur áhuga
á að sjá um fastan þátt
í blaðinu er bara að hafa
samband!
tlakkarihn^
8060
Ú Við bjóðumi
Heita grMrettl
' HátmTLr - tekið heim
* TH losá búðaverðt
I Utselt gos “
I Fljóta þjonustu
NOTALEGUR STAÐUR
FYRLR ALLA FJÖLSKYLD UNA
VOR
SJOMANNA
STOFA
SÍMI 8570
Utsvör og
aðstöðugjöld 1987
Greiðið á réttum tíma og forðist óþarfa kostnað.
Bœjarsjóður Grindavíkur