Bæjarbót - 05.01.1990, Blaðsíða 7
Janúar 1990
Bæjarbót, óháð fréttablað 7
— Kveiktu nú á perunni —
— leggðu saman tvo og tvo og fáðu út fjóra!
1. Flugleiðir hf.
Flakkarinn selur farseðla milli landa og innanlands, hvort heldur um er að
ræða pakkaferðir, einstaklingsferðir eða hópferðir.
Nú eru sólarferðir til Florída og Kanaríeyja í brennidepli, ásamt hinum
vinsælu og ódýru viku- og helgarferðum til Evrópu.
Pakkaferðir innanlands, t.d. til Akureyrar, ísafjarðar og fleiri staða njóta
alltaf vinsælda.
2. Tryggingamiðstöðin hf.
Flakkarinn er með umboð fyrir Tryggingamiðstöðina, sem fjölmargir
Grindvíkingar hafa snúið sér til með sínar tryggingar á undanförnum
misserum. Enda er félagið þekkt af sterkri stöðu, sanngirni og heiðarleika.
Tryggingamiðstöðin býður góðan afslátt af iðgjöldum heimilis- og
húseigendatrygginga, sé bíllinn einnig tryggður hjá félaginu. Yið bjóðum
allt að 70% bónus!
Gagnkvæmt traust — vertu vel tryggður!
3. Úrval/Útsýn hf.
Flakkarinn er kominn með umboð fyrir ferðaskrifstofuna Úrval/Útsýn,
stóra og sterka á markaðnum, auk þess að selja í ferjuna Norrænu.
Hjá þessum aðilum er starfsfólk alveg óþreytandi við að hugsa upp og
skipuleggja áhugaverðar ferðir vítt og breitt um hnöttinn.
Allar upplýsingar um ferðaframboð þessara aðila liggja frammi á
skrifstofu Flakkarans.
4. Bæjarbót
Flakkarinn og Bæjarbót
eru fyrst og fremst þjónustuaðilar. Blaðið hefur fyrir löngu markað sér
traustan sess meðal lesenda sinna. Efni þess er býsna fjölþætt, en fregnir af
bæjarmálefnum Grindavíkurbæjar, sjávarútvegnum og íþróttum taka
mest rými í blaðinu.
Að ógleymdum auglýsingum auðvitað!
Það eru þær sem leggja grunninn að fjárhagslegri undirstöðu blaðsins og
hér skal minnt á að verð fyrir auglýsingar í Bæjarbót er með því lægsta sem
þekkist í sambærilegum blöðum. Fjölmargir áhugasamir lesendur utan
Grindavíkur hafa tryggt sér áskrift og missa því aldrei af blaðinu.
Ágæti lesandi!
Flakkarinn og Bæjarbót þurfa á þér að halda og þurfir þú að ferðast,
tryggja, lesa fréttir sem snerta þig eða tjá þig opinberlega þarft þú á
Flakkaranum og Bæjarbót að halda!
Hagurinn er beggja!
FLAKKARINN — BÆJARBÓT
— Björn Birgisson —
Víkurbraut 19 - Grindavík - Símar 68060 og 68767