Bæjarbót - 01.09.1990, Blaðsíða 9

Bæjarbót - 01.09.1990, Blaðsíða 9
September 1990 Bæjarbót, óháð fréttablað 9 Vatnsveita Grindavíkur: Hverju hafa allar fram- kvæmdirnar skilað? — Jón Sigurðsson bæjartæknifræðingur skrifar í reglugerð um Vatnsveitu Grindavíkur kveður svo á að „Vatnsveitan er eign Grindavík- urbæjar og er rekin í þeim til- gangi að fullnægja vatnsþörfum heimila og fyrirtækja í kaup- staðnum svo og að sjá bæjarfé- laginu fyrir nægu vatni til brunavarna“. Telja má það frumskilyrði að nóg sé af góðu ferskvatni svo hjól atvinnulífs- ins geti snúist með eðliiegum hætti og fagurt mannlíf fái dafnað í vaxandi bæ. Undanfarin 4 ár hafa farið fram töluverðar endurbætur á vatnsveitunni eins og bæjarbú- um hefur greinilega verið Ijóst, „allar götur uppgrafnar“. En hafa allar þessar framkvæmdir skilað einhverjum árangri? Hér á eftir er tekin saman stutt grein- argerð sem e.t.v. varpar ein- hverju ljósi á þá spurningu. Hér verður ekki rakin saga vatnsveitunnar enda aðrir sem kunna betri skil á henni en und- irritaður. Þó má segja að áður fyrr var notast við brunnvatn eða regnvatn, sem safnað var í þrær af þökum húsa. Það þraut stundum í langvarandi þurrk- um. Hafist var handa við borun eftir neysluvatni nokkru ofan við þorpið og vatnsveitan lögð um hreppinn á sjötta áratugn- um. Síðar með aukinni vatns- þörf voru einnig boraðar holur í svokallaðri Moldarlág austan við þorpið. Vatn úr þessum borhol- um, var lítils háttar saltmengað og hart, og þess vegna ekki vel hæft til drykkjar. Dælingu úr þessum borholum var hætt í feb. 1987. Hitaveita Suðurnesja hefur séð bæjarfélaginu fyrir köldu ® Jón Sigurðsson. vatni frá Svartsengi síðan 1982. Við áhleyingu vatnsins frá Svartsengi inn á bæjarkerfið kom fram mikill leki í asbest- lögnunum. En þrátt fyrir stöð- ugar viðgerðir var ljóst að lekinn í kerfinu var mjög mikill og erfitt var að finna lekastaði þar sem jarðvegurinn er gljúpur og vatnið hripar niður í hraunið. Árið 1987 var hafist handa við endurnýjun vatnsæðanna í götunum og heimæðum að lóðarmörkum en þá voru lagðir 1432m, árið 1989 954m og nú í sumar 1720m af plastlögnum (PEH). Plastið er mjög ending- argott og er talað um a.m.k. 300 ára líftíma. Vatnsveituframkvæmdirnar hafa verið boðnar út hverju sinni og hefur verktakafyrirtæk- ið Litlafell sf. verið lægstbjóð- endur. Hafa þeir skilað þessu verkefni vel úr hendi. Póstur og Sími og Hitaveita Suðurnesja hafa fengið að nýta vatnsveitu- skurðina með lagningu nýrra strengja. Hafa þessar stofnanir greitt á hvern meter fyrir afnot af skurðunum. Á meðfylgjandi línuritum er sýnt kaldavatnsrennsli til bæjar- ins frá Svartsengi á tímabilinu 1. sept. 1988 till 31. ágúst 1990. 'A þeim má lesa að veruleg minnk- un er á vatnsrennsli til bæjarinns þegar á líður tímabilið. Þrátt fyrir samdrátt í atvinnulífinu hefur ekki minnkað rennslið á köldu vatni gegnum mæla til fyrirtækjanna í formi auka- vatnsskatts, en mars-júlí 1988 var rennslið 100.000 rúmm., mars-júlí 1989 80.000 rúmm. og í mars-júlí 1990 103.000 rúmm. Sala gegnum mæla er u.þ.b. 30% af því heildarvatnsmagni sem keypt er af Hitaveitu Suður- nesja. ® Svona fóru gömlu asbeströrin þegar vatninu frá Svartsengi var hleypt á kerfið. Það sem ávinnst hefur með þessum framkvæmdum mætti því helst telja: 1. Vatnsrennslið frá Svartsengi hefur stórlega minnkað. Mikill sparnaður í vatnskaupum við HS. 2. Aukinn þrýstingur á kerfinu, þ.e.a.s. aukin þægindi og öryggi í fiskvinnslunni. 3. Sverari lagnir og því meira vatn til slökkvistarfa. 4. Bilanir koma varla til og því enginn uppgröftur. I reglugerð um vatnsveitu Grindavíkur kveður svo á um að „Húseigandi á vatnslögnina frá lóðarmörkum inn í hús og ber honum skylda til að halda við lögnina á eigin kostnað“. Nokk- uð hefur borið á að þessar heim- æðarnar eru gerónýtar. Margir húseigendur hafa brugðist vel við og endurnýjað þessar lagnir jafn- hliða framkvæmdum í götunni og koma þar með í veg fyrir að fá þetta í hausinn síðar. Gat á heimæð sem samsvarar við 2 kg þrýsting, að gatið sé líkt og sver- asti hluti blýants tapast 11/s sem þýðir ca. kr. 100.000.- í kostnað fyrir bæjarfélagið á ári. Húseig- anda er einnig bent á leka krana innanhúss, leka salerniskassa og almenna sóun á neysluvatni með sírennsli skrifast allt á kostnað skattgreiðanda. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur eftirlit með neysluvatni á Suðurnesjum og eru tekin 2 sýni af vatninu í Grindavík í hverjum mánuði og send á rannsóknar- stofu Hollustuverndar ríkisins. Hafa niðurstöður verið mjög góðar og vatnið talið vera sér- staklega hreint. Frá árinu 1982 hafa verið áform um að reisa miðlunar- geymi fyrir vatnsveituna á Sel- hálsi. Undirritaður telur að ekki sé tímabært að ráðast í þá fram- kvæmd heldur að halda áfram að endurbæta dreifikerfið, því enn er um 25% af asbesti í heild- arvatnslagnakerfi bæjarins. Gríndavík 20. sept. 1990. Bæjartæknifræðingurinn í Grindavík. Vantar ykkur akstur fyrir einstaklinga eða hópa? Laufey Jónsdóttir Símar 985-23894 og 68094 allan sólarhring- inn! Páll Gíslason Símar 985-34343 og 68732. 8 sæta Minibus. Geymið auglýsinguna!

x

Bæjarbót

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarbót
https://timarit.is/publication/1421

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.