Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 4
NEY TE NDUR Danska f jármála­ eftirlitið hefur tilkynnt starfsemi eCommerce2020, sem bauð upp á smálán á Íslandi, til lögreglu fyrir brot á lögum um peningaþvætti. Ecomm erce2020, sem er í eigu Kredia Group, hélt úti vörumerkj­ unum Kredia, Múla, 1909 og Hrað­ peningum. Orka Holding keypti allt hlutafé Kredia Group í byrjun apríl og hefur fært starfsemina yfir í félagið Núnú sem skráð er á Íslandi. Núnú býður upp á lán á bilinu 10 til 20 þúsund krónur með 11,27 prósenta vöxtum. Ondřej Šmakal, sem átti Kredia Group, er nú forstjóri Orka Vent­ ures. Eigandi og stjórnarformaður Orka Ventures og Núnú er Leifur Alexander Haraldsson, sem átti á tímabili félögin Kredia og Smálán áður en þau fóru í þrot fyrir nokkr­ um árum. Tilkynning fjármálaeftirlitsins danska snýr að vörnum eCommerce 2020 þegar kemur að peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarf­ semi, þarf að vera búið að gera áreiðanleikakönnun á viðskipta­ manni áður en lán er veitt. Segir í bréfi fjármálaeftirlitsins að fyrir­ tækinu sé gert að ráðast í úrbætur án tafar. Segir einnig að eComm­ erce 2020 hafi einungis veitt lán á Íslandi. Šmakal vill ekki tjá sig um málið og segir að hann sé hættur afskipt­ um af starfseminni á Íslandi. Ekki náðist í Leif Haraldsson við vinnslu fréttarinnar. Í tilkynningu sem Leifur gaf frá sér nýverið segir hann að viðskipta­ módel Núnú verði annað en Kredia Group sem hafi verið „á skjön við flest okk ar sam fé lags legu gildi“. Neytendasamtökin hafa staðið í stappi við Kredia Group og Almenna innheimtu síðasta árið. Hluti baráttunnar snýst um ólögleg lán sem eCommerce2020 hefur veitt undir því yfirskini að lánin væru dönsk þar sem fyrirtækið væri stað­ sett í Danmörku. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að starfsemin félli undir íslensk lög enda lánin veitt og innheimt á Íslandi. Málið er nú á borði áfrýj­ unarnefndar neytendamála. Brynhildur Pétursdóttir, fram­ kvæmdastjóri samtakanna, segist vona að nýlegar breytingar á lögum um neytendalán muni tryggja að fyrri viðskiptahættir smálána­ fyrirtækja séu liðnir undir lok. „Við sjáum ekki annað á þessari stundu en að Núnú starfi innan ramma laganna en í ljósi alls sem á undan er gengið getum við ekki ráðlagt neinum að eiga viðskipti við fyrir­ tæki sem er stýrt af, eða er í eigu manna sem hafa komið að eComm­ erce2020,“ segir Brynhildur. Hún segir helsta áhyggjuefnið í dag vera innheimtu útistandandi skulda við eCommerce2020. Vef­ síður vörumerkja Kredia Group vísa nú á vef Núnú og þeim sem eru með útistandandi lán er bent á vef Almennrar innheimtu til að semja um greiðslur. Almenn innheimta er ekki undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins, heldur Lögmannafélagsins. „Við erum með þó nokkuð mörg mál þar sem fólk er klárlega búið að ofgreiða og skuldar ekkert en það hefur aldrei komið til tals hjá þessum fyrir­ tækjum eða Almennri innheimtu að endurreikna lánin og greiða lán­ takendum það sem þeim ber,“ segir Brynhildur. „Fólk þyrfti að fara fyrir dóm­ stóla og það borgar sig tæplega. Þess vegna er svo mikilvægt að ólögleg starfsemi sé stöðvuð og að fyrirtæki geti ekki starfað án alls eftirlits og raunhæfra úrræða. Það er kannski svolítið dæmigert fyrir þetta mál allt að það sé síðan dönsk eftirlits­ stofnun sem stöðvi starfsemi fyrir­ tækis sem hefur komist upp með ólögleg okurlán á íslenskum lána­ markaði.“ arib@frettabladid.is Fjármálaeftirlit Dana sigar lögreglu á smálánafyrirtæki Danska fjármálaeftirlitið hefur tilkynnt starfsemi eCommerce 2020, sem bauð upp á smálán á Íslandi, til lögreglu þar í landi fyrir brot á lögum um peningaþvætti. Starfsemin var nýverið færð til Íslands sem Núnú. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir ekki ráðlagt að stunda viðskipti við fyrirtækið. Danska lögreglan hefur nú mál eCommerce2020 á sínu borði. MYND/GETTY Það er kannski svolítið dæmigert fyrir þetta mál allt að það sé dönsk eftirlitsstofnun sem stöðvi starfsemi fyrirtækis sem hefur komist upp með ólögleg okurlán á íslenskum lánamarkaði. Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmda- stjóri Neytenda- samtakanna ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 FÁRÁNLEGA LÁGT VERÐ Á NÝJUM DEKKJUM! Við bjóðum upp á takmarkað magn af hjólbörðum fyrir fólksbíla, minni jeppa, stærri jeppa og pallbíla. Ný og ónotuð dekk á ótrúlegu lágu verði. Uppgefið verð er heill umgangur eða 4 DEKK MEÐ VSK. Þekkt merki í boði s.s.: Michelin, Goodyear, Pirelli, Bridgestone, Firestone, Continental, Kumho og Falken. Hér fyrir neðan má sjá dæmi um hvaða dekk og stærðir eru í boði: 195/55R16 - 4 stk. sumardekk - 49.000 kr. 225/55R18 - 4 stk. sumardekk - 59.000 kr. 225/60R17 - 4 stk. sumardekk - 59.000 kr. 225/70R17 - 4 stk. sumardekk - 59.000 kr. 225/55R18 - 4 stk. sumardekk - 59.000 kr. 265/60R17 - 4 stk. sumardekk - 49.000 kr. 265/60R18 - 4 stk. sumardekk - 80.000 kr. 265/50R20 - 4 stk. sumardekk - 99.000 kr. 275/70R18 - 4 stk. sumardekk - 69.000 kr. 285/60R20 - 4 stk. sumardekk - 99.000 kr. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ISBAND.IS, DEKK@ISBAND.IS OG Í SÍMA 620-2321 FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ STJÓRNSÝSLA „Ég hef verið að sækja um lóðir hjá Isavia síðustu þrjú ár til að ráðast í atvinnuuppbyggingu á Keflavíkurflugvelli, nú fæ ég þau svör að ég fái ekki lóð því Isavia er ekki með samning við ríkið,“ segir Hilmar Á. Hilmarsson athafna­ maður. Bjargfastur ehf., fyrirtæki Hilm­ ars, falast eftir leigulóð til að reisa sex þúsund fermetra f lugskýli og reisa 600 fermetra skrifstofubygg­ ingu fyrir ýmiss konar flugstarfsemi inni á f lugvallarsvæðinu í Keflavík. Fyrirtækið sem mun nota lóðina er Ace Fbo ehf., sem sér um afgreiðslu fyrir einkaþotur og herf lugvélar. ACE FB er nú með sams konar starf­ semi í f lugskýli 1 á Reykjavíkurflug­ velli, sem var friðað nýverið. Hilmar segir allt tilbúið fyrir upp­ byggingu, bæði teikningar og deili­ skipulag af hálfu sveitarfélagsins. Það eina sem vantar sé lóðin. „Ég hef fengið þau svör frá Isavia að þetta strandi á því að það sé ekki samningur við ríkið um lóð­ ina. Formlega eigi ríkið lóðina og þeir geti ekkert gert fyrr en það sé komið,“ segir Hilmar. „Það er fárán­ legt að eitthvað sem myndi skapa atvinnu á Suðurnesjum strandi á skriffinnsku. Nú er kjörið tæki­ færi fyrir uppbyggingu. Við höfum tapað viðskiptum til annarra landa því það eru engin flugskýli laus.“ Samkvæmt upplýsingum frá Isavia er undirbúningur fyrir útboð langt kominn. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir lóðamálin í eðlilegu ferli. „Lóðir á Kef lavíkurf lugvallar­ svæðinu eru auðvitað takmörkuð gæði og ekki afhentar til einstakra aðila öðruvísi en að undangengnu auglýstu og opnu útboði. Undirbún­ ingur undir útboð lóða er í eðlilegu ferli,“ segir Guðjón. – ab Athafnamaður vill reisa sex þúsund fermetra flugskýli í Keflavík Flugskýlið byggir á sömu teikningu og þetta skýli á Gatwick-flugvelli. VELFERÐARMÁL Tilkynningum sem bárust Barnavernd Reykjavíkur fjölgaði um 15 prósent í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. Alls bárust 468 tilkynningar um 332 börn. Fyrstu fjóra mánuði ársins barst 1.731 tilkynning vegna 1.590 barna. Í báðum tilvikum er aukningin um níu prósent frá sama tíma í fyrra. Alls voru 220 tilkynninganna í apríl vegna vanrækslu, 135 vegna áhættuhegðunar barna og 113 vegna of beldis. Í 71 tilviki var barn metið í yfir­ vofandi hættu. Fyrstu fjóra mánuði ársins eru slík tilvik 241 talsins en voru 189 á sama tíma á síðasta ári. Í apríl voru alls 2.057 virk mál á borði Barnaverndar Reykjavíkur og hafa þau aldrei verið fleiri. – sar Málum fjölgar hjá Barnavernd COVID 19 Þórólfur Guðnason sótt­ varnalæknir sagðist í gær hafa ákveðið í samráði við heilbrigðis­ ráðherra að flýta næstu aðgerðum í afléttingu samkomutakmarkana. Næsta skref verði 25. maí, viku fyrr en áætlað var. Þriðja daginn í röð voru engin staðfest tilfelli af COVID­19 á Íslandi og voru 39 með virkt smit í gær. Undanfarna átta daga hafa tveir greinst en 88 manns náð bata. Kynnt verður síðar hver ný fjölda­ takmörk verða eftir maílok. Þórólf­ ur sagði að rætt hefði verið um að hið minnsta hundrað manns. – kpt Flýta afléttingu takmarkana Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Leifur Haralds- son, stjórnar- formaður Orka Ventures 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.