Fréttablaðið - 07.05.2020, Síða 28

Fréttablaðið - 07.05.2020, Síða 28
Þeir sem hafa áhuga á garð-yrkju eða hafa gaman af því að dunda sér í garðinum geta grætt á því að taka þátt í umræðu um þessi viðfangsefni á netinu. Þar má finna bæði íslenska og alþjóð- lega spjallhópa þar sem hægt að fá bæði innblástur, hugmyndir og hjálp. Á Facebook er stór íslenskur spjallhópur sem heitir Ræktaðu garðinn þinn – garðyrkjuráðgjöf, og þar eru rúmlega 37 þúsund meðlimir, en stjórnandi hópsins er Vilmundur Hansen, grasa- og garðyrkjufræðingur. Þar skiptist fólk á alls kyns hug- myndum og upplýsingum og þar er líka hægt fá góð ráð frá reyndum garðyrkjumönnum. Umræðan er líf leg og að sjálfsögðu sniðin að séríslenskum aðstæðum, þannig að jafnvel þó fólk sé ekki að leita að neinu sérstöku getur verið gaman að fylgjast með hópnum og fá góðar hugmyndir eða innblástur frá umræðunni. Þeir sem vilja grafa enn dýpra geta svo líka kynnt sér umræðuna um garðyrkju á vefsíðunni Reddit, þar sem hægt er að finna umræðu um næstum allt milli himins og jarðar og milljónir notenda koma saman til að ræða áhugamálin sín. Garðyrkja er mikið áhuga- og metnaðarmál hjá mörgum og þessir einstaklingar safnast saman á umræðuvettvangnum „Gardening“, þar sem hægt er að sjá ótrúlega fjölbreytni frá görðum um allan heim. Þar eru 2,6 milljón notendur frá öllum heimshornum sem skiptast á myndum, hugmyndum og frá- sögnum af plöntum og garðyrkju. Þar eru til dæmis myndir af vel heppnuðum ræktunum, hlægi- lega misheppnuðum ræktunum, framkvæmdum og viðhaldi og alls konar skemmtilegum lausnum á hinum ýmsu vandamálum garð- yrkjumannsins. Notendur gefa svo hverjir innleggjum annarra stig, þannig að það sem er áhugaverðast fær yfirleitt f lest stig og verður því mest áberandi á síðunni. Þannig að þarna birtist ekki bara fjölbreytt efni frá öllum heimshornum, heldur er því raðað eftir því hvað fólki finnst áhugaverðast. Virk umræða um garðyrkju á netinu Á netinu er hægt að taka þátt í umræðu um garðyrkju og fá alls kyns fræðslu, hugmyndir og innblástur frá öðrum. MYND/GETTY Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Garðhús fást í ýmsum stærðum. MYND/GETTY Garðhús eru afar vinsæl og eru til í ýmsum útfærslum og stærðum. Garðhús henta vel sem geymsla fyrir grillið, hjólin eða garðverkfærin. Garðhúsin er þó hægt að nýta í margt annað en geymslu. Sum garðhús bjóða upp á að hægt sé að leggja rafmagn og vatnslagnir í þau og þau geta þann- ig nýst sem gestahús eða frístunda- hús. Það er jafnvel hægt að búa til gufubað í garðinum með því að nota garðhús. Samkvæmt byggingarreglu- gerð eru garðhús eða smáhýsi ekki byggingarleyfisskyld að uppfylltum ákveðnum skilyrðum samanber 2.3.5. grein byggingarreglugerðar, „enda sé slík bygging ekki óheimil samkvæmt gildandi deiliskipulagi“. Flatarmál smáhýsis má að hámarki vera 15 fermetrar. Fjar- lægð milli smáhýsa innbyrðis og frá glugga eða hurð húss, svo og frá útvegg timburhúss er að minnsta kosti þrír metrar. Veggur smáhýsis sem snýr að lóðarmörkum og er nær lóðarmörkum en þrír metrar er glugga- og hurðalaus. Mesta hæð útveggja eða þaks á smáhýsi er 2,5 metrar mælt frá yfirborði jarðvegs. Ef smáhýsi er nær lóðar- mörkum en þrír metrar skal liggja fyrir skriflegt samþykki lóðarhafa þeirrar nágrannalóðar og skal það lagt fram hjá byggingarfulltrúa. Ef smáhýsið fellur utan þessara marka þarf að sækja um bygg- ingarleyfi. Eins ber sá sem hyggst reisa smáhýsi í garðinum hjá sér ábyrgð á því að ekki skapist hætta fyrir fólk og eignir og að ekki sé gengið á rétt nágranna. Garðhús er hægt að kaupa til- búin til samsetningar á fjölmörg- um stöðum og því er um að gera að kynna sér úrvalið vel og allar reglur og kvaðir sem húsunum fylgja áður en hafist er handa við að reisa slíkt hús í garðinum. Garðhús njóta vinsælda Vandaðar vinnuvélar og kerrur í garðinn og skógræktina Stema Basic 134.990 Tilvalin í garðinn Ásafl er umboðs- og þjónustuaðili Stema á Íslandi ÁSAFL Ásafl ehf. Hjallahrauni 2 220 Hafnarfirði Sími: 562 3833 Opið 8:30 - 17 virka daga asafl@asafl.is asafl.is Til á lager. Kítku við Til á lager. Kítku við Stubbatætarar, jarðvegsþjöppur, trjáklofningsvélar og margt fleira. Ásafl er umboðs- og þjónustuaðili Stema á Íslandi Til á lager. Kítku við Ásafl er umboðs- og þjónustuaðili Kato á Íslandi KATO 19VXT KATO HD27 V4 8 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RGARÐAR OG HELLULAGNIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.