Fréttablaðið - 07.05.2020, Síða 10
Hengillinn er klasi móbergsfjalla við dyragætt Reykjavíkur og sést vel þaðan. Þetta er gömul megineldstöð og sú eina sem tilheyrir eldstöðva-kerfi Reykjanesskaga. Undir Hengl-inum er kvikuhólf sem skýrir mikla
jarðhitavirkni svæðisins og er jarðvarðminn nýttur
í Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun, ein-
hverjum stærstu jarðhitavirkjunum í heimi.
En Hengillinn er ekki aðeins risastór ofn heldur
einnig sérstök náttúruperla, hvort sem hún er heim-
sótt gangandi eða á fjalla- eða ferðaskíðum. Þetta á
ekki síst við um hæsta tindinn, Vörðu-Skeggja, sem
gnæfir upp í 805 m hæð í norðvesturhluta fjallaklas-
ans og bíður rólegur eftir að verða heimsfrægur eins
og náttúrulaugarnar í Reykjadal vestar í Henglinum.
Þennan útvörð Hengilssvæðisins ættu allir að heim-
sækja en ekki tekur nema hálftíma að aka úr Reykja-
vík að gönguleiðunum og útsýnið af toppnum er
mergjað. Hægt er að velja um nokkrar leiðir og velja
f lestir Sleggjubeinsskarð sem er auðveldast nálgast
af veginum að Hellisheiðarvirkjun. Þaðan er stikuð
gönguleið í gegnum Innstadal og eftir Hveragili og
síðan fylgt móbergshryggjum upp á Skeggja. Til
baka má velja aðra leið vestar eða austar. Gönguleið
norðanmegin eftir Dyradal er þó enn tilkomumeiri.
Er þá ekinn Nesjavallavegur í átt að Þingvöllum uns
komið er að þessum þrönga og svipmikla dal. Snar-
brattur norðurveggur Skeggja blasir við beint í suður
og minnir á Dólómítana í ítölsku Ölpunum. Þarna eru
engar hitaveituleiðslur, borholur né virkjanir og auð-
velt að gleyma sér í stórkostlegri náttúru sem skartar
hellum og stórkallalegum hraunmyndunum.
Botni dalsins er fylgt að klettaveggnum og síðan
sneitt upp brattar brekkur austan Skeggja en hátind-
inum er auðveldast að ná úr suðaustri. Á veturna er
rétt að hafa jöklabúnað með í för en þessi brekka
er líkt og aðrar brekkur Hengilsins frábær fyrir
fjallaskíði, ekki síst þær sem liggja niður að Sleggju-
beinsskarði eða fram af norðvesturhlíðum hans. Af
Vörðu-Skeggja er einstakt útsýni til norðurs
yfir Þingvallavatn, Ármannsfell, Skjaldbreið
og Hlöðufell og í austri blasir sjálf Hekla við
ásamt Tindfjöllum og Eyjafjallajökli.
Í næsta nágrenni eru síðan Vífilfell
og Bláfjöll og í vestur höfuðborgin
eins og hún leggur sig ásamt Esju
Móskarðshnúkum og Skálafelli.
Skeggi minnir
á Dólómítana
Horft í átt að
Vörðu-Skeggja
úr Dyradal en
í návígi minnir
norðurveggur-
inn á ítölsku
Dólómítana.
MYND/TG
Hengillinn er megineldstöð með kvikuhólfi sem skýrir jarðhitavirknina. MYND/ÓMB
Í Henglinum eru fantagóðar fjallaskíðabrekkur – nánast við dyragætt Reykjavíkur. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð