Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 8
HS Veitur hf. - Opið söluferli Fyrirtækjaráðgjöf Kviku, fyrir hönd Hafnararðarkaupstaðar, auglýsir eftir kauptilboðum í 15,42% hlut bæjarins í HS Veitum hf. Félagið var stofnað 1. desember 2008 í kjölfar skiptingar Hitaveitu Suðunesja hf. í HS Veitur hf. og HS Orku hf. HS Veitur eru á meðal leiðandi fyrirtækja á sínu sviði og starfa á Suðurnesjum, víða á Suðurlandi og á syðsta hluta höfuðborgarsvæðisins. Félagið sér um drei€ngu og sölu á heitu vatni auk vatnsö‚unar, drei€ngar og sölu á köldu vatni á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum. Félagið annast drei€ngu á rafmagni á Suðurnesjum, í Vestmannaeyjum, Hafnar€rði, Garðabæ og í Árborg að öllu leyti eða að hluta. Höfuðstöðvar HS Veitna eru í Reykjanesbæ og hjá félaginu starfa um 95 manns. Hluthafar í félaginu eru ˆórir en þeir eru: Reykjanesbær með 50,10% hlut, HSV Eignarhaldsfélag slhf. með 34,38% hlut, Hafnarˆarðarbær með 15,42% hlut og Suðurnesjabær með 0,10% hlut. Frá og með ƒmmtudeginum 7. maí 2020 geta árfestar sem undirrita ferlisbréf og skila umbeðnum upplýsingum um árhagslega getu fengið afhend sölugögn um félagið. Áhugasamir árfestar eru beðnir um að hafa samband við fyrirtækjaráðgjöf Kviku með tölvupósti á netfangið hsveitur@kvika.is Icelandair Group mun bókfæra hjá sér hagnað upp á 15,4 milljónir dala, jafnvirði 2,3 milljarða króna, vegna sölu á 75 prósenta hlut í Icelandair Hotels. Þetta kemur fram í nýlegu uppgjöri félagsins fyrir fyrsta fjórð- ung ársins. Sem kunnugt er var gengið frá kaupum dótturfélags malasísku fyrirtækjasamsteypunnar Berjaya Corporation á 75 prósenta hlut í hótelkeðjunni í byrjun síðasta mán- aðar eftir að malasíska félagið náði samkomulagi við Icelandair Group um að lækka kaupverðið um tíu milljónir dala, jafnvirði nærri 1,5 milljarða króna, vegna kórónaveir- unnar. Heildarkaupverð eignarhlutarins var þannig um 6,7 milljarðar króna – 45,3 milljónir dala – miðað við núverandi gengi. Icelandair Group heldur í kjölfar sölunnar á fjórðungshlut í hótel- keðjunni en samkvæmt kaup- og söluréttarsamningum sem kaup- andi og seljandi hafa gert sín á milli verður félagið að halda á hlutnum í að minnsta kosti þrjú ár. Eins og greint var frá í Markað- inum í gær tók Tryggvi Þór Her- bertsson, eigandi ráðgjafarfyrir- tækisins Taurus og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisf lokksins, við stjórnarformennsku í Icelandair Hotels í kjölfar kaupa Berjayja Land Berhad en hann var helsti ráðgjafi malasíska félagsins í viðskiptunum. Aðrir í stjórn Icelandair Hotels eru Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Icelandair Group, og Foo Toon Kee, framkvæmdastjóri rekstrar Berjaya Hotels & Resorts. – kij Hagnast um 2,3 milljarða við sölu í Icelandair Hotels 6,7 milljarðar króna er kaup- verð Berjaya á 75 prósenta hlut í Icelandair Hotels. Smá sölu félög i n Hag a r og Skeljungur, sem eru á meðal f imm skráðra félaga á aðallista Kaup-hallar innar sem hafa nýtt hlutabótaleiðina til þess að bregðast við minnkandi umsvifum, keyptu eigin bréf fyrir alls 636 milljónir króna í mars og apríl. Skeljungur greiddi auk þess 600 milljóna króna arð til hluthafa en rúmlega helmingur starfsmanna félagsins er í skertu starfshlutfalli. Að minnsta kosti fimm skráð félög hafa nýtt hlutabótaleið ríkis- stjórnarinnar. Þetta staðfesta félögin í samskiptum við Frétta- blaðið en mismunandi er hvort þau hafi greitt út arð og haldið áfram endurkaupum á eigin bréfum á síðustu vikum. Félögin sem hafa auk Icelandair nýtt hlutbótaleiðina eru smásölufélögin Festi, Hagar og Skeljungur, og fjarskiptafélagið Sýn. Ekki fengust svör frá Origo, Arion banka, Brimi og Iceland Seafood við vinnslu fréttarinnar. Vinnuframlag rúmlega helmings starfsmanna Skeljungs var skert 8. apríl að sögn Árna Péturs Jóns- sonar, forstjóra Skeljungs. „Þannig var farið að tilmælum stjórnvalda um að reyna eftir fremsta megni að halda ráðningar- sambandi við starfsmenn okkar í stað þess að fara í uppsagnir. Með það að leiðarljósi forðuðumst við uppsagnir eins og við gátum og skertum frekar vinnuframlag starfsmanna,“ segir Árni Pétur í skrif legu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins. Þá greinir Árni Pétur frá því að laun hans og stjórnarmanna hafi verið lækkuð um 30 prósent í byrjun apríl auk þess sem laun framkvæmdastjórnar voru lækkuð um 25 prósent. Starfsmenn sem vinna í dreifingu Skeljungs eru í 75 prósenta starfs- hlutfalli en aðrir starfsmenn eru á bilinu 60-80 prósent. Stjórnendum Skeljungs reiknast til að hlutabóta- greiðslur sem starfsmenn félagsins fengu í apríl hafi numið 6-7 millj- ónum króna. „Þetta er í stöðugri endurskoðun hjá okkur og gerum við ráð fyrir að draga úr skerðingunni núna í maí og ekki er gert ráð fyrir því að fólk verði í skertri vinnu í júní,“ segir Árni Pétur. Skeljungur greiddi arð til hlut- hafa að fjárhæð 600 milljónir króna í byrjun apríl. Seinna í sama mánuði lauk endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd um miðjan mars. Kaup Skeljungs á eigin bréfum námu alls 186 milljónum króna. Skerðing í veitingasölu og fataverslun hjá Högum Hagar segjast ekki hafa nýtt hluta- bótaleiðina innan dagvöruversl- ana, vöruhúsa, framleiðslustöðva eða dótturfyrirtækja. Hins vegar hafi leiðin verið nýtt innan eininga þar sem starfsemi var lögð af eða dróst verulega saman, til að mynda í veitingasölu og fataverslun. Það hafi verið gert „í þeim tilgangi að viðhalda ráðningarsambandi og koma í veg fyrir uppsagnir vegna óvissu um rekstrarhorfur“, eins og það er orðað í svari Haga við fyrir- spurn Fréttablaðsins. Hagar segja að á þessu stigi sé ekki hægt að áætla fjárhagslegu áhrifin sem hlutabætur hafa haft eða munu hafa á reksturinn. Ekki var gefið upp hversu margir starfsmenn væru á hlutabótum heldur vísað til þess að nánari útlistun yrði ekki birt fyrr en í ársreikningi félagsins sem verður opinber 18. maí. Hagar eru með virka endur- kaupaáætlun upp á 500 milljónir króna sem var hrint í framkvæmd 28. febrúar og gildir fram til aðal- fundar félagsins sem verður haldinn um miðjan júní. Frá því að endur- kaupaáætlun Haga var hrint í fram- kvæmd hefur félagið keypt eigin hluti fyrir 450 milljónir króna sem samsvarar 90 prósentum af fjár- hæðinni sem að hámarki verður keypt fyrir. Veltur á fluginu Festi er með starfsmenn ELKO og N1 á hlutabótum vegna ákvarðana heilbrigðisyfirvalda um takmark- anir í starfsemi dótturfélaga sam- stæðunnar. Alls starfa 1.900 manns hjá Festi og er fjöldi starfsmanna á hlutabótum innan við sex prósent. Engir starfsmenn Krónunnar, Bakk- ans Vöruhúss eða móðurfélagsins Festar eru á hlutabótaleiðinni. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar, bendir á að verslun ELKO í Leifsstöð sé lokuð en þar eru starfs- menn í 25 prósenta starfshlutfalli. „Þegar f lug hefst af tur þá munu starfsmenn ELKO í Leifs- stöð hefja aftur störf en hvenær það gerist er erfitt að tímasetja,“ segir Eggert Þór. Hann bendir einnig á að N1 sé með 20 manna hámark á fjölda inni á þjónustu- stöðvum félagsins og því sé ekki þörf fyrir alla starfsmenn. „Þar af leiðandi þurftum við að setja hluta af þeim á hlutabótaleið- ina en við gerum ráð fyrir að taka starfsmenn N1 til baka þegar höml- um á fjölda verður af létt í byrjun júní,“ segir Eggert þór. Starfsmenn N1 sem eru á hlutabótum eru að meðaltali í 50 prósenta starfi. Þá segir Eggert Þór að heildar- áhrif hlutabótaleiðarinnar á rekstur Festar nemi um 45 milljónum króna á mánuði en heildarlaunakostnaður samstæðunnar er um 850 milljónir króna á mánuði. Stjórn Festar hafði samþykkt að greiða arð að fjárhæð tæplega 660 milljónir króna til hluthafa en ákveðið var að fresta ákvörðun um greiðslur arðs fram í september. Þá hefur stjórn félagsins heimild til að virkja áætlun um kaup á eigin bréf- um sem nemur allt að 10 prósentum af hlutafé en henni hefur ekki verið hrint í framkvæmd. Síðustu endur- kaupaáætlun Festar lauk í mars. Fimmtungur hjá Sýn Fjöldi starfsmanna fjarskiptafélags- ins Sýnar sem er á hlutabótaleiðinni er í kringum 90 sem er um fimmt- ungur af heildarfjölda starfsmanna félagsins. Meðalskerðing á starfs- hlutfalli er í kringum 30 prósent. „Sýn er að nýta sér hlutabóta- leiðina fyrir þá starfsemi félagsins sem ekki gat sinnt sínum störfum vegna aðstæðna í samfélaginu og má þar nefna vegna lokunar versl- ana, mötuneytis og starfsemi vett- vangsþjónustu,“ segir í skrif legu svari Heiðars Guðjónssonar, for- stjóra Sýnar, en fjarskiptafélagið hefur hvorki greitt arð til hluthafa né ráðist í endurkaup á þessu ári. Nýta bætur þrátt fyrir endurkaup Hagar og Skeljungur hafa bæði keypt eigin bréf samhliða því að nýta hlutabótaleiðina. Minnst fimm skráð félög hafa skert starfs- hlutfall. Skerðing hjá helmingi starfsmanna Skeljungs sem greiddi 600 milljónir í arð í apríl. Laun stjórnenda lækkuðu verulega. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Hagar segjast ekki hafa nýtt hlutabótaleiðina innan dagvöruverslana. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 30% launalækkun tók forstjóri Skeljungs á sig í byrjun apríl. MARKAÐURINN 7 . M A Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.